SearchImg



Námskeið framundan


Gæðastarf og gildi símenntunar - NÝTT!

 


Skráning fyrir veffréttabréf
Nafn
Netfang
Skráning

 
Könnun 
 
Hvar fréttir þú af námi og þjónustu Starfsmenntar?

Af heimasíðu

Í auglýsingu í blöðum

Með tölvupósti

Með veffréttabréfi

Á vinnustaðnum

Í kynningarbæklingi


 
 

Starfstengdar námsleiðir -SKRÁNING HÉR

Starfstengdar námsleiðir  eru sérsniðnar að þörfum starfshópa og stofnana og unnar í breiðu samstarfi innan stýrihópa. Hér má nefna heildstæð símenntunarkerfi eins og Járnsíða-námsleið fyrir starfsmenn sýslumannsembætta, Vísdóm fyrir héraðsdómstóla, Vinnumálaskólann, Á vettvangi fyrir læknaritara, Hæfni fyrir heilbrigðisritara og Heilsu. Einnig er hér að finna brúarnám innan framhaldsskóla og starfsnám stuðningsfulltrúa. Þá má finna hér Launaskólann fyrir launafulltrúa hjá ríki og bæ.

Almenn þverfagleg námskeið -SKRÁNING HÉR

Á almennum námskeiðum Starfsmenntar er leitast við að styrkja starfshæfni fólks þverfaglega. Hér er um að ræða almenna hæfnisþætti eins og bætt samskipti á vinnustað, margskonar stjórnun s.s mannauðsstjórnun, verkefnastjórnun, upplýsinga-, þjónustu- og þekkingarstjórnun ásamt skrifstofustjórn, tungumálakunnáttu og tjáningu. Einnig má finna hér nýtt nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum og talsmenn breytinga á vinnustöðum. Þá má sjá hér almennt starfsnám s.s. Framrás og Rekspöl  og 18 námskeið fyrir atvinnuleitendur sem kennd verða á þriðjudögum og fimmtudögum alla vorönnina í BSRB húsinu.

Tölvunámskeið -SKRÁNING HÉR

Fjarkennd tölvunámskeið Starfsmenntar hafa notið mikilla vinsælda. Þau eru bæði ætluð byrjendum og lengra komnum. Markmiðið er að efla tölvuþekkingu nemenda með kennslu á algengustu forritunum og gera þá sjálfstæða í heimi tölvutækninnar. Námskeiðin fara öll fram í fjarnámi undir öruggri leiðsögn kennara sem veitir aðstoð í gegnum þjónustusíma alla virka daga.

Námsvísir Starfsmenntar haustið 2010

Í námsvísinum er að finna upplýsingar um námsframboð setursins og þjónustu við stofnanir. Bæklingnum er dreift í hús til allra félagsmanna aðildarfélaga setursins svo og stofnana og samstarfsaðila. Hér má kynna sér fjölbreytt framboð starfstengds náms sem eflir almenna starfshæfni og kemur til móts við aukna kröfur sem gerðar eru til starfsmanna. Smellið hér til að lesa bæklinginn.

Starfsmenntaverðlaun 2008
Fræðslusetrið Starfsmennt hlaut Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs 2008 í flokki skóla og fræðsluaðila vegna verkefnisins Járnsíða sem unnið er í samvinnu við Félag sýslumanna. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem þykja vinna framúrskarandi starf í starfsmenntun eða sinna vel nýjungum á því sviði. Verðlaunin eru Starfsmennt hvatning til að halda áfram að þróa og bjóða ríkisstarfsmönnum upp á hágæða starfstengda símenntun um allt land.


Fréttir

20.04.2010

Laust starf verkefnastjóra hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt

Laust starf verkefnastjóra hjá Starfsmennt. Sjá hæfniskröfur hér.

PlusSignImage

14.04.2010

Skáning á haustönn er hafin

                            PlusSignImage

24.03.2010

Á vettvangi - Trúnaður og miðlun upplýsinga

Fræðslusetrið Starfsmennt heldur námslotuna Trúnaður og miðlun upplýsinga fyrir læknaritara í samvinnu við Endurmenntun HÍ. Námið skiptist í fjóra hluta, Siðfræði starfsins – Trúnaður og þagnarskylda, Lög og regluverk hjá heilbrigðisstofnunum, Heimildarleit og gagnasöfnun og Markviss ritun og meðferð skriflegra upplýsinga. Námið er haldið hjá Endurmenntun HÍ.

PlusSignImage

17.03.2010

Stjórnun streitu og álags

Á námskeiðinu greina þátttakendur eigin streituviðbrögð og streituþol. Einnig er farið í markvissar aðferðir til að stjórna og meðhöndla streitu og álag. Námskeiðið er haldið 14. apríl kl. 8.30-12 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89. Nánari upplýsingar og skráning hér.PlusSignImage




Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070