Hvað er Starfsmennt?

Fræðslusetrið Starfsmennt var stofnað árið 2001 til að sinna heildstæðri þjónustu á sviði endur- og símenntunarmála fyrir opinberar stofnanir og starfsmenn þeirra. Setrið er því þjónustuaðili fræðslumála fyrir félagsmenn þeirra fjölmörgu aðildafélaga sem að setrinu standa. Það metur þörf fyrir fræðslu hjá einstökum stofnunum og stofnanahópum, kemur á starfstengdum námskeiðum, leggur fram nýjungar á starfsþróunarverkefnum og veitir stofnunum ráðgjöf.

Starfsemi Fræðslusetursins  hefur falist að mestu leyti í því að bjóða upp á margvísleg námskeið sem styrkja persónulega hæfni einstaklinga sem og getu þeirra í starfi. Námskeiðin falla einkum undir almenn námskeið, starfstengd námskeiðtölvunámskeið og Járnsíðu (skóli fyrir starfsmenn sýslumannsembættanna). Jafnframt hefur setrið hrint úr vör stóru starfsþróunarverkefni sem ber heitið Ráðgjafi að láni og er hugsað fyrir stofnanir sem vilja koma á virkri símenntunaráætlun fyrir starfsmenn sína. Hefur þetta reynst mjög vel og hefur fjöldinn allur af stofnunum tekið þátt í verkefninu við góðan orðstír.





Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070