Reglur um Fræðslusetrið Starfsmennt

1. grein
Fræðslusetrið Starfsmennt
Fræðslusetrið heitir Starfsmennt. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.  Fræðslusetrið Starfsmennt er sett á stofn og starfar á grundvelli bókunar í kjarasamningi fjármálaráðherra f.h ríkissjóðs annars vegar og eftirtalinna félaga;

SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
Kjalar - stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu
Samflots bæjarstarfsmannafélaga
Félags flugmálastarfsmanna ríkisins
Félags starfsmanna stjórnarráðsins

Fræðslusetrið Starfsmennt starfar með því skipulagi og skv. þeim markmiðum sem segir í reglum þessum. Stjórn Fræðslusetursins skal setja sér nánari starfsreglur í samræmi við markmið þess.
Önnur stéttarfélög ríkisstarfsmanna geta gerst aðili að Fræðslusetrinu Starfsmennt með samþykki stjórnar.

2. grein
Markmið og hlutverk.
Markmið Fræðslusetursins er að efla símenntun þeirra starfsmanna stofnana sem aðild eiga að því og stuðla að markvissri starfsróun þeirra, með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni og jafnframt að auka möguleika stofnana á að þróa starfsemi sína þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma.

Hlutverk Fræðslusetursins er að ná ofangreindu markmiði með því að gera tillögur um fræðslu, vera umsjónaraðili og/eða framkvæmdaaðili, taka á móti hugmyndum og vera stefnumótandi. Fræðslusetrið Starfsmennt leggur í þessu efni áherslu á að ljá stofnum atfylgi sitt og veita þeim þjónustu og ráðgjöf. Í því felst meðal annars að greina og meta þörf fyrir fræðslu og þjálfun og gerð áætlana á því sviði.
 
3. grein
Fjármál og tekjur.
Tekjur Fræðslusetursins eru:
•Framlag er nema skal 0,25% af heildarlaunum félagsmanna aðildarfélaga.
•Framlög Þróunar- og símenntunarsjóða samningsaðila samkvæmt reglum þeirra á hverjum tíma.
•Vaxtatekjur.
•Sjálfsaflafé.
Fræðslusetrið tekur þátt í kostnaði við fræðslu starfsmanna.
Fræðslusetrinu er heimilt að afla tekna með sölu námsefnis eða námskeiða samkvæmt ákvörðun stjórnar.
Fjármuni Fræðslusetursins skal ávaxta á þann hátt sem stjórn þess telur hagkvæmasta á hverjum tíma.
Fræðslusetrið getur tekið að sér rekstur og umsýslu Þróunar- og símenntunarsjóða félaganna samkvæmt samkomulagi við stjórnir sjóðanna.
Reiknisár Fræðslusetursins er almanaksárið. Uppsetning ársreiknings og endurskoðun skal gerð af löggiltum endurskoðanda.
Fulltrúar stéttarfélaganna í stjórn Fræðslusetursins skulu tilnefna tvo skoðunarmenn reikninga setursins.
Ársreikning skal senda til samningsaðila.

4. grein
Skipun stjórnar

Stjórn Fræðslusetursins skal skipuð fjórum mönnum til tveggja ára í senn, tveimur skipuðum af fjármálaráðherra og tveimur af stéttarfélögunum. Stjórnin kýs sér formann og varaformann úr sínum hópi. Stjórnin skal funda reglulega, halda gerðabók og rita í hana samþykktir sínar. Til þess að samþykkt sé lögmæt þarf meirihluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði.
Stjórnin skal árlega gera skýrslu um störf sín og senda samningsaðilum.

5. grein
Framkvæmdastjóri

Stjórnin skal ráða framkvæmdastjóra Fræðslusetursins. Framkvæmdastjóri skal stýra hinu daglega starfi og sjá um framkvæmd ákvarðana stjórnar.

6. grein
Breytingar

Breytingar á reglum þessum skulu háðar samþykki samningsaðila.

Reykjavík, 14. júní 2005

F.h. fjármálaráðherra 
F.h. SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu
F.h. Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
F.h. Kjalar - stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu
F.h. Samflots bæjarstarfsmannafélaga

Reykjavík, 1. janúar 2006

F.h. Félags flugmálastarfsmanna ríkisins
F.h. Félags starfsmanna stjórnarráðsins





Fræðslusetrið Starfsmennt
Ofanleiti 2 · 103 Reykjavík · Sími 550 0060 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070