Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf ágúst 2008
Fjölbreytt fræðsla fyrir starfsfólk
Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða í haust fyrir starfsfólk og stofnanir. Markmið með námi Starfsmenntar er að koma til móts við breytingar á starfsumhverfi og störfum og greiða leið að metnaðarfullri símenntun. Allt nám á vegum Starfsmenntar er unnið í samráði starfsmanna og stjórnenda og klæðskerasniðið að þörfum stofnana og starfshópa. Námið er félagsmönnum flestra aðildarfélaga BSRB að kostnaðarlausu og nýverið bættust í þann hóp bæjarstarfsmenn sem tilheyra Mannauðssjóði KJALAR. Fjölbreytt og sveigjanleg þjónusta á sviði símenntunar og starfsþróunar er því í boði um allt land og skráningar nú þegar hafnar.
Almennt starfsnám: Tungumál, tölvur og stjórnun
Almenn námskeið Starfsmenntar eru opin öllum og miða að því að efla almenna og nú orðið sjálfsagða hæfnisþætti sem nýtast allstaðar. Enskunám er því haldið víðsvegar um landið, þar sem talmál er þjálfað en einhver tungumálakunnátta er okkur öllum nauðsynleg. Þá eru í boði fjarkennd tölvunámskeið sem notið hafa mikilla vinsælda. Hér er um að ræða endurnýjuð 80 stunda grunnnámskeið og sex framhaldsnámskeið þar sem farið er dýpra í einstaka forrit. Samskipta- og sjálfskönnunarnámskeið eru fjögur talsins og mismikil að efnum. Framrás I (36 stundir) er í fararbroddi undir handleiðslu Jóhanns Inga Gunnarssonar, sálfræðings ásamt Rekspeli I (60 st.) sem oft hefur lagt grunn að frekari landvinningum þátttakenda á sviði menntunar. Þá er hugað að vinnustaðarmenningu á námskeiðinu Starfsandi og samstarfsvilji (12 st.) og tjáning og framsögn efld í Að tjá sig án kvíða (16 st.) Stjórnunarnámskeið Starfsmenntar er á sviði verkefnastjórnunar og hefur það tveggja daga námskeið verið afar vel sótt og biðlistar myndast. Tvö námskeið verða haldin í haust þar sem bæði aðferðir og helstu forrit verða kynnt.
Starfstengdar námsleiðir og samstarf við stofnanir
Stærsti hluti þjónustu Starfsmenntar eru starfstengdar námsleiðir sem settar eru upp í samstarfi við stofnanir. Um er að ræða heildstæðar námsleiðir sem ætlaðar eru tilteknum hópum en bjóða um leið upp á einstaklingsbundið val. Þátttakendur velja því ákveðna námsþætti úr heildstæðum námspakka sem hentar þeirra þörf fyrir símenntun. Stuðningsfulltrúar geta þannig sótt starfsnám stuðningsfulltrúa og Stoð þeirra heldur áfram á Selfossi. Þá er Vinnumálaskólinn fyrir starfsfólk Vinnumálastofnunar á fullri ferð og boðið upp á fjölda námskeiða í Reykjavík og á Sauðárkróki. Sama má segja um Vísdóm sem ætlaður er starfmönnum dómstóla og Járnsíðu sem starfsmenn sýslumannsembætta sækja. Þar verða þrjár lotur í boði í Kópavogi en hægt að kalla eftir námskeiðum heim í hérað. Það sama á reyndar við um aðrar ríkisstofnanir. Þær geta nýtt sér margskonar þjónustu á sviði símenntunar og mannauðseflingar s.s. fengið Ráðgjafa að láni eða kallað eftir farandfyrirlestri sem nýtist félagsmönnum Starfsmenntar.
Nám fyrir heilbrigðisstéttir
Starfsfólk á heilsugæslustöðvum og heilbrigðisstofnunum er stór hluti þjónustuþega Starfsmenntar. Heilsa er þverfagleg námsleið sem búin var til fyrir þennan hóp og undir nafni Heilsu verður boðið upp á 20 stunda nám í mannauðsstjórnun á Selfossi og á Reyðarfirði. Hér er um nýjung að ræða sem starfsfólk er hvatt til að nýta sér til að kynnast innviðum þessarar stjórnunaraðferðar. Læknaritarar hafa löngum unnið með Starfsmennt að sinni símenntun og verða þrjú námskeið í boði á þessu hausti. Stjórnun verkefna og gæða verður haldið í annað sinn og nýtt 24 st. hagnýtt enskunámskeið haldið af kennara sem fékk mikið lof meðal læknaritara síðast. Þá verður afar fróðlegt nám haldið á Akureyri um Skjalastjórnun og úrvinnslu upplýsinga fyrir hópinn. Hæfni er heiti á námsleið fyrir heilbrigðisritara og verða tvær 20 stunda lotur í boði. Annarsvegar Stjórnun verkefna í Reykjavík og hinsvegar Miðlun og framsetning upplýsinga á Sauðárkróki. Þá eru námskeið um starfsmannasamtöl haldin víðsvegar um landið í samráði við stofnanir en einnig opin öllum á höfuðborgarsvæðinu.
Nú er lag að huga að símenntun haustsins og skrá sig til leiks á ofangreindum skráningar- og upplýsingasíðum á vef Starfsmenntar.