Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Náms- og starfsráðgjöf fyrir starfsfólk
Fræðslusetrið Starfsmennt býður ríkisstofnunum upp á þjónustu náms- og starfsráðgjafa fyrir starfsfólk sitt. Náms- og starfsráðgjöfinni er ætlað að styðja við símenntun einstaklinga og kynna fyrir þeim nám og möguleika til frekari starfsþróunar. Eitt meginmarkmið náms- og starfsráðgjafar er að efla vitund einstaklinga um hæfileika sína, viðhorf og áhuga þannig að þeir geti notið sín í námi og starfi. Gildi náms- og starfsráðgjafar getur verið mikið fyrir einstaklinginn ef vel tekst til en þjónustan hefur einnig víðari skírskotun. Þær stofnanir sem kalla eftir náms- og starfsráðgjafa fá til liðs við sig fagmann til að aðstoða við uppbyggingu mannauðs á vinnustað. Náms- og starfsráðgjöf er ætluð öllum þeim starfsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar sem vilja viðra skoðanir sínar um þróun eigin náms- og starfsferils. Framkvæmd þess verkefnis er með þeim hætti að Fræðslusetrið Starfsmennt sendir ráðgjafa til þeirra stofnana sem eftir því óska. Boðið verður upp á stuttar hópkynningar og síðan einstaklingsviðtöl á vinnustað. Náms- og starfsráðgjöf verður þó áfram í boði fyrir félagsmenn á skrifstofu Starfsmenntar þar sem veittar eru allar nánari upplýsingar.
Ráðgjafi að láni til stofnana
Starfsmennt hefur um nokkurra ára skeið boðið upp á verkefni sem nefnist Ráðgjafi að láni og er þar unnið að eflingu markvissrar mannauðsstjórnunar innan stofnana. Hver stofnun ákveður sitt viðfangsefni í samstarfi við þann ráðgjafa sem ráðinn er til verksins. Starfsmennt hefur fengið til liðs við sig hóp mannauðsráðgjafa til að liðsinna þeim stofnunum sem áhuga hafa og hafa hátt á fimmta tug ríkisstofnana tekið þátt í verkefninu. Verkefnin sem ráðgjafinn vinnur varða öll uppbyggingu mannauðsstjórnunar og símenntunar og má þar nefna vinnu eins vinnustaðargreiningar, gerð starfsmannastefnu eða starfslýsinga, ráðgjöf um ráðningarmál og nýliðafræðslu eða undirbúning fyrir innleiðingu starfsmannasamtala. Ávinningurinn af Ráðgjafa að láni hefur verið mikill og birst m.a í sérhönnuðum námsleiðum fyrir einstaka starfshópa og stuðningsaðgerðum á vinnustað.
Almennt starfsnám á næstunni
Almenn námskeið Starfsmenntar eru opin öllum og miða að því að efla almenna og nú orðið sjálfsagða hæfnisþætti sem nýtast alls staðar. Námskeiðin eru þverfagleg þar sem m.a er fjallað um bætta vinnustaðarmenningu, þjónustulund, samskipti og tjáningu. Almennu námskeiðin sem framundan eru hjá Starfsmennt í október og nóvember eru mismikil að efnum. Af minni námskeiðum má nefna námskeiðið Miðlun upplýsinga og góð þjónustulund sem er 8 stunda námskeið sem miðar að því að styrkja starfsmann í starfi og efla þjónustu stofnana. Að tjá sig án kvíða er 16 stunda námskeið fyrir þá sem vilja bæta framsögn sína og ná betur til áheyrenda. Starfsandi og samstarfsvilji er 12 stunda námskeið er fjallar um hópasamsetningu innan vinnustaða. Einnig ber að nefna námskeið í notkun starfsmannasamtala bæði fyrir almenna starfsmenn og stjórnendur.
Fjarkennd tölvunámskeið um allt land
Á vegum Starfsmenntar eru í boði fjarkennd tölvunámskeið sem notið hafa mikilla vinsælda. Hér er um að ræða netnámskeið þar sem kennt er á ýmis tölvuforrit til að efla almennt tölvulæsi starfsfólks og auka þannig hæfni þeirra til sértækari aðgerða. Námið er einstaklingsmiðað að því leyti að þátttakendur ráða hraða sínum í náminu. Um er að ræða 80 stunda grunnnám sem enn er opið fyrir skráningar á og svo sex framhaldsnámskeið sem eru 26 stundir hvert. Þar má nefna t.d. framhaldsnámskeið í Excel þar sem farið er í flóknari hluta töflureiknisins Excel. Power-Point sem kennir hvernig má búa til áhrifamiklar og skemmtilegar glærusýningar. Í Myndvinnslu er farið í hvernig skal vinna með stafrænar myndir- svo eitthvað sé nefnt. Öll námskeiðin má sjá hér og eru þau félagsmönnum aðildarfélaga Fræðslusetursins Starfsmenntar að kostnaðarlausu.