Hvað er símenntun?  

Símenntun felur í sér að menntun sé ekki bundin við ákveðið tímabil, heldur geti varað alla tíð, allir séu sífellt að læra. En jafnframt er innifalið að nám þurfi ekki að fara fram innan veggja skóla og þar með eru viðurkenndar miklu fjöbreyttari leiðir til náms og margvíslegra inntak en við erum vön. Ríkulegt námsframboð um allt land Fræðslusetrinu Starfsmennt er sönn ánægja að kynna fyrir þér námsframboð á komandi hausti vítt og breytt um landið. Um er að ræða metnaðarfullt úrval spennandi námskeiða sem ættu að höfða til flestra. Námskeiðunum má skipta í tvo flokka, annars vegar í almenn námskeið og hins vegar í starfstengd námskeið (námskerfi).

frontImgAlmenn námskeið eru ætluð öllum áhugasömum félagsmönnum aðildarfélaga starfsmenntar óháð störfum þeirra. Leitast er við að styrkja hæfni fólks, bæði í daglegu lífi og starfi. Tekið er á þáttum sem meðal annars snúa að bættri þjónustulund, sjálfstrausti, samskiptum vinnufélaga og vellíðan í starfi. Einnig geta áhugasamir sótt um tölvunámskeið sem ætlað er fyrir byrjendur og lengra komna. Almenn námskeið eru kjörinn vettvangur fyrir þá sem vilja hefja nám aftur eftir eftir langt hlé.

Starfstengd námskeið eru ætluð tilteknum starfshópum eða starfsstéttum og eru sérstaklega sniðin að persónulegum og faglegum þörfum þeirra. Markmiðið er að styrkja starfsmenn enn frekar í starfi. Starfstengdu námskeiðin eru ýmist röð skyldunámskeiða (námskerfi) sem þarf að taka öll í einu eða námskerfi sem samanstendur af fjölda stakra námskeiða sem hægt er að taka eftir þörfum. Með því að smella hér að neðan geturðu fengið yfirlit námsframboðs í þínum landshluta á komandi hausti. Til að fá ítarlegri upplýsingar um dagsetningar, kennara og lengd námskeiðanna sem og til að skrá sig á námskeið er nauðsynlegt að fara inn á heimasíðu Starfsmenntar.


Þjónusta við stofnanir - Ráðgjafi að láni

Starfsmennt býður upp á þjónustu fyrir stofnanir þeim að kostnaðarlausu. Stjórnendur eða aðrir forsvarsmenn ríkisstofnana sækja um ráðgjöf sem felst meðal annars í greiningu og mati á þörf stofnunarinnar fyrir endur- og símenntunaráætlun. Þær stofnanir sem sækja um þátttöku hafa aðgang að ráðgjafa í 45 klukkustundir. Mismunandi er eftir stofnunum hvernig sú vinna fer fram, en hún getur grundvallast á viðtölum, rýnihópavinnu eða öðrum þáttum sem starfsmenn og stjórnendur viðkomandi stofnunar telja henta við þeirra aðstæður. Að lokinn greiningarvinnu liggja fyrir hugmyndir og tillögur að því sem betur mætti fara innan viðkomandi stofnunar til að styðja við uppbyggingu og viðhald endur- og símenntunar starfsmanna. Má þar nefna hönnun námskerfa (í anda Járnsíðu og Áfanga), tillögur að námskeiðum og þjálfun í notkun starfsmannasamtala fyrir starfsmenn og stjórnendur.

Bæklingur Starfsmenntar til þín

Undanfarna mánuði hefur starfsfólk Fræðslusetursins Starfsmenntar lagt drög að útgáfu ítarlegs upplýsingabæklings sem kynnir þjónustu setursins á komandi hausti. Um er að ræða 40 bls. bækling sem gefinn er út í fyrsta skipti og hefur metnaður starfsfólks legið í því að gera hann sem glæsilegastan. Bæklingurinn skiptist upp í fjóra hluta;

1) Um Starfsmennt er fyrsti hlutinn og kynnir hann Fræðslusetrið Starfsmennt ítarlega, upphaf þess, þróun og þá þjónustu sem það veitir meðal annars í gegnum heimasíðuna. einnig er hér að finna áhugaverða grein um símenntun á 21. öldinni sem Jón Torfi Jónasson prófessor ritar.

2) Starfstengd námskeið er annar hluti bæklingsins og varpar hann ljósi á öll þau námskeið sem falla undir starfstengd námskeið eða námskerfi. Þá er átt við námskeið eða námskerfi sem eru ætluð tilteknum starfshópum eða starfsstéttum og eru sniðin sérstaklega að faglegum þörfum þeirra. 

3) Almenn námskeið er þriðji hluti bæklingsins og eru þau ætluð öllum áhugasömum félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar óháð störfum þeirra.

4) Þjónusta við stofnanir - ráðgjafi að láni er lokahluti bæklingsins og kynnir hann hvað felst í þeirri þjónustu.  Von okkar hjá Starfsmennt er sú að bæklingurinn gefi greinagott yfirlit um það námsframboð sem í boði er á komandi hausti. Í  kjölfarið vonumst við til að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi, skrái sig til þátttöku á heimasíðu okkar www. smennt.is og skemmti sér vel með okkur.