Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

Nýr haustbæklingur

 

 

Hægt er að skoða námskrá haustsins með því að smella á myndina hér að ofan. Til þess að opna námskrána þarf Adobe Acrobat Reader - hægt að sækja hér.

 

Ágúst 2007


 

Fjölbreytt námsframboð í haust


Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á fjölbreytt nám fyrir ríkisstarfsmenn á þessari haustönn. Starfsfólk getur valið úr fjölda starfstengdra námskeiða eftir því hvað hentar þeim og þeirra vinnustað best. Þá  geta stofnanir enn sem fyrr kallað eftir sérstakri þjónustu inn á vinnustaðina, hvort sem það er Ráðgjafi að láni til að vinna að eflingu mannauðs eða farandfyrirlesarar sem koma með styttri innlegg. Á þennan hátt leitast Starfsmennt við að koma sem best til móts við bæði þarfir starfsmanna og stofnana og teflir fram fjölbreyttu námsframboði og
sveigjanlegri þjónustu.  Nú á næstu dögum ætti námskrá haustsins að berast í hús félagsmanna og stofnana sem tengjast Starfsmennt en einnig er hægt að nálgast bæklinginn í rafrænu formi hér vinstra megin á síðunni.
 

Starfstengdar námsleiðir

 
Flest námskeið Starfsmenntar eru innan svokallaðra starfstengdra námsleiða. 
 
Á þessari önn er boðið upp á margar nýjar námsleiðir sem hannaðar hafa verið innan stýrihópa Starfsmenntar. Hér má t.d. nefna Lausnir fyrir lyfjatækna og Stoð sem er 40 stunda námsleið fyrir starfsfólk svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra. Stoð er ætlað að koma til móts við breyttar kröfur og vinnulag á vinnustað og fer námið fram út um allt land.
 
En fleiri starfstengdar námsleiðir líta einnig dagsins ljós nú í haust. Leiksviðtæknar sem sjá um hljóð, mynd og leikmuni leikhúsanna hafa hannað námsleið sem nefnd er Á fjölunum og starfsfólk heilsugæslustöðva og heilbrigðisstofnana tekur þátt í námsleið sem nefnd er Heilsa. Þessar námsleiðir eru einnig í boði á landsvísu og byggir Starfsmennt þar á góðu samstarfi við fræðsluhaldara um allt land og öflugu vefkerfi sem nær fljótt og vel til þátttakenda. 
 

Almenn námskeið

 
Almenn námskeið Starfsmenntar eru stök námskeið sem nýtast öllum starfsstéttum og er þar tekið á ýmsum almennum hæfnisþáttum sem koma að notum bæði í einkalífi og starfi. Hér er um að ræða t.d. minni námskeið þar sem enskukunnátta er efld, sjálfstraust aukið, starfsandi styrktur eða tekið á
samskiptum á vinnustað. Þá er boðið upp á námskeið til að vinna gegn kvíða við að koma fram og tala máli sínu. Námskeiðið Starfið-heimilið-lífið er ætlað þeim sem vilja ná tökum á hraða og stressi og finna jafnvægi milli þessara grunnþátta. Þá hafa námskeiðin um innleiðingu starfsmannaviðtala verið mjög vinsæl og eftirsótt út um allt land ásamt námi í verkefnastjórnun.
 
Af stærri námskeiðum má nefna tvær klassískar námslínur sem verða  einnig fjarkenndar á þessari önn en þær eru Rekspölur I – almennt starfsnám og Framrás II þar sem fjallað er um þjónustuviðmót og þjónustumenningu. Rekspalar- og Framrásarnámskeiðin hafa alla burði til að leggja mikilvægan grunn að frekara námi og þekkingarleit þátttakenda.
 
 

Tölvunám og ráðgjöf

 
Tölvunámskeið Starfsmenntar hafa notið mikilla vinsælda en þau eru fjarkennd gegnum netið og þar sem kennari veitir mjög góða leiðsögn og býður upp á símaþjónustu, þá eru tæknileg vandræði sjaldnast til trafala. Boðið er upp á 80 stunda grunnnám og sex 24 stunda framhaldsnámskeið. 
 
Önnur einstaklingsmiðuð þjónusta sem Starfsmennt veitir er náms- og starfsráðgjöf fyrir félagsmenn aðildarfélaganna. Markmiðið með námsráðgjöfinni er að gefa félagsmönnum tækifæri til að viðra hugmyndir sínar um símenntun og starfsþróun við sérmenntaða ráðgjafa og átta sig á styrkleikum sínum og lífsstefnu. Áhugasamir geta pantað viðtöl við námsráðgjafa á skrifstofu Starfsmenntar fyrir Reykjavíkursvæðið og hjá öllum símenntunarmiðstöðvum á landsbyggðinni. Þá er einnig í boði fyrir félagsmenn námskeið um áhugasvið og starfsferil þar sem þátttakendur taka saman á einn stað færni sína, nám og starfsreynslu. Slík færnimappa leggur góðan grunn að frekari starfsþróun og símenntunarmöguleikum starfsmanna.
 
Öll þjónusta Starfsmenntar er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaganna og greiðir Starfsmennt einnig út ferða- og dvalarstyrki skv. reglum setursins. Allar frekari upplýsingar um námsframboð og þjónustu við stofnanir veita starfskonur Fræðslusetursins Starfsmenntar í síma 525 8395 og fara skráningar í nám fram á heimasíðu setursins: www.smennt.is 
 
Upp aftur