Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf ágúst 2009
Starfstengd símenntun haustið 2009
Þessa dagana standa yfir skráningar í námskeið á vegum Fræðslusetursins Starfsmenntar og Námsvísir haustannar verður borinn út næstu dagana. Starfsmenn og stjórnendur geta valið úr afar fjölbreyttu námsframboði sem ýmist er ætlað einstaka starfsstéttum, stofnunum eða opið öllum. Hér fyrir neðan má sjá stuttar kynningar á helstu námskeiðum haustsins ásamt tengingum inn á skráningarsíður þar sem finna má allar frekari upplýsingar. Að venju er námið félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en aðrir greiða þátttökugjöld. Við viljum hvetja alla viðtakendur til að huga að eigin starfsþróun og velja nám sem henta þeirra einstöku leið. Starfskonur Starfsmenntar veita fúslega alla aðstoð og senda námsvísi haustsins í stærri upplögum til stofnana og stéttarfélaga ef eftir því er óskað.
Á haustönn 2009 eru m.a. eftirtaldar námsleiðir í boði:
Á vettvangi – námsleið fyrir læknaritara
Námsleiðin telur alls 132 stundir. Boðið verður upp á þrjár 20 stunda námslotur um Rannsóknaraðferðir í Reykjavík og á Akureyri, , Starfstengda ensku og Trúnað við skjólstæðinga. Heilsugæslur og heilbrigðisstofnanir geta óskað eftir uppsetningu náms í héraði.Hæfni - námsleið fyrir heilbrigðisritara
Námsleiðin telur alls 126 stundir en er skipt í 6 námslotur. Tvær 20 stunda lotur verða í boði á haustönn þar sem fjallað verður um Þjónustustjórnun og Skipulag og utanumhald viðburða.Járnsíða – námsleið fyrir starfsfólk sýslumannsembætta
Námsleiðin er alls 184 stundir og er skipt upp í 31 námskeið. Námið er sett upp í samstarfi við embættin en boðið upp á námslotur á höfuðborgarsvæðinu. Þar verður fjallað um innheimtu skatta og gjalda, þjónustustjórnun og upplýsingamiðlun.Skrifstofubraut í fjarnámi
Starfsmennt hefur samið við MK um að bjóða upp á einingabært fjarnám fyrir skrifstofufólk. Þannig er komið til móts við þarfir starfsfólks sem vinnur fjölbreytt störf á skrifstofu. Gert er ráð fyrir að nemendur hefji nám á skrifstofubraut I en skólinn metur hvar reyndir starfsmenn geta hafið nám. Námið hefst 11. sept.Starfsnám stuðningsfulltrúa- grunn- og framhaldsnám
Hér er um umfangsmikið samfellt starfsnám að ræða og telur grunnnámið alls 160 stundir og framhaldsnámið 80 stundir. Námið hentar starfsmönnum sem vinna með fötluðum, öldruðum eða sjúkum. Grunnnámið hefst 31. ágúst en framhaldsnámið hefst 5. október.Tollstjórinn - NÝTT
Starfsmennt og Tollstjórinn hafa hafið samstarf um uppsetningu símenntunarkerfis starfsmanna á innheimtusviði tollsins. Námsleiðin er alls 228 stundir og er skipt upp í faglegan kjarna, samskiptakjarna, starfsþjálfunarlotu og val. Stór hluti námskeiða í kjarna verða í boði í vetur eða alls 13 námskeið.Tryggingastofnun ríkisins
Starfsmennt hefur haldið námskeið fyrir starfsfólk TR undanfarið og í haust verða fjögur námskeið í boði fyrir félagsmenn aðildarfélaganna ásamt fjarkenndu tölvunámi að eigin vali.Vinnumálaskólinn – námsleið fyrir starfsfólk
Fyrstu yfirferð þessarar 100 stunda námsleiðar lýkur haustið 2009 með námskeiði um Leiðsögn og ráðgjafafærni sem fjarkennt verður í september um allt land.Vísdómur – námsleið fyrir starfsfólk dómstóla
Þessi námsleið er alls 140 stundir og verða fjögur námskeið í boði á haustönn: réttarheimildir, greiðsluaðlögun , meðferð sakamála og meðferð texta og ritun.
Fjarkennt tölvunám
Starfsmennt býður upp á fjarkennt tölvunám sem notið hefur mikilla vinsælda vegna úrvals námsefnis og persónulegrar leiðsagnar kennara sem veitir símaráðgjöf alla daga. Boðið er upp á grunnnám (80 stundir) og framhaldsnámskeið í Word, Excel, skipulag og tímastjórnun með Outlook, PowerPoint, gerð kynningarefnis og fréttabréfa með Publisher og myndvinnslu.
Almenn námskeið
Almenn námskeið Starfsmenntar eru opin öllum þvert á stofnanir eða starfsgreinar. Þar er fjallað um almenna hæfni sem nauðsynleg er í öllum störfum og nýtist einnig utan vinnunnar. Hér má sjá námskeið sem taka á tungumálakunnáttu, samskiptahæfileikum, stjórnunarþáttum og samfélagslegri þekkingu.
Að tjá sig án kvíða (16 stundir).
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja ná tökum á frammistöðukvíða eða auka öryggi sitt í flutningi máls.Enska fyrir atvinnulífið (20-30 stundir eða einingabært nám)
Í dag þykir það sjálfsögð færni að geta bjargað sér á ensku og á þessum námskeiðum er orðaforði efldur og öryggi í talmáli aukið. Í Reykjavík er hægt að velja um einingabært nám hjá MK eða skiptingu eftir getu hjá Námsflokkum Hafnarfjarðar. Námið er einnig haldið um allt land s.s. á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og á Selfossi.Framrás 1 – Ég og starfið (36 stundir)
Hér er fjallað um mikilvægi heilbrigðs sjálfstrausts sem grunn að góðum samskiptum og vellíðan á vinnustað. Reyndir sálfræðingar fjalla um gildi sjálfsmyndar og sjálfsþekkingar. Skráning hér.Færnimappa og áhugasvið (9 stundir)
Þátttakendur vinna yfirlit yfir eigin þekkingu, hæfni og reynslu í svokallaða færnimöppu sem getur nýst til að ákveða stefnu í námi eða til að greina veikleika og styrkleika í starfi. Skráning hér.Nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu (32-36 stundir)
Megintilgangur námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauðinn á hverjum vinnustað út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana. Námið fer fram í Reykjavík og á Akureyri sem fjarkennir til Egilsstaða, Ísafjarðar, Selfoss og Siglufjarðar.Nám fyrir starfsmenn í stjórnunareiningum (54 stundir) NÝTT
Markmið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við breiðara starfssvið og flóknari verkefni sem aðstoðarmenn stjórnenda. Miklu skiptir að stjórnendur geti falið starfsfólki að fullvinna verkefni og tryggja góða yfirsýn. Hér er stefnt að því að treysta starfsgrunn faglegra og úrræðagóðra starfsmanna með því að veita þeim innsýn í stjórnunarfræði og treysta skipulags- og samstarfshæfni. Námið samanstendur af 11 spennandi námsþáttum. Námið hefst 5.okt. í Reykjavík.og hér má skrá sig til leiks.Rekspölur 1 (60 stundir)
Hér er lögð áhersla á persónulega hæfni, almenna þekkingu og samspil einkalífs og starfs ásamt umfjöllun um samfélagslega innviði. Skráning hér.Starfsandi og samstarfsvilji (12 stundir)
Á þessu námskeiði er tekin fyrir hópasamsetning og mismunandi hlutverk einstaklinga. Þá er fjallað um vinnustaðarmenningu og hvernig auka megi starfsgleði og samstarfsvilja. Skráning hér.Starfsmannasamtöl fyrir starfsmenn eða stjórnendur (4-8 stundir)
Á þessum námskeiðum eru starfsmenn undirbúnir undir að fara í starfsmannasamtöl og stjórnendur fá dagsnámskeið til að þjálfast í að taka viðtölin þannig að þau skili tilætluðum árangri.Upplýsinga- og skjalastjórnun (10 stundir)
Hér er fjallað um aðferðafræði upplýsinga- og skjalastjórnunar og hagnýt ráð sem gera þátttakendum kleift að þróa eða skilja betur þau kerfi sem unnið er eftir.Verkefnastjórnun (24 stundir) – NÝTT OG ENDURBÆTT
Hér er kynnt hugmyndafræði verkefnastjórnunar, helstu aðferðir, tæki og tól. Einnig er fjallað um hvernig verkefnastjóri getur virkjað samstarfsfólk sitt til athafna og gildi góðs upplýsingaflæðis. Námskeiðið er kennt í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og á Selfossi.Þjónustustjórnun (4 - 20 stundir) NÝTT
Góð þjónusta skiptir stofnanir miklu máli hvað varðar skilvirka starfsemi, starfsánægju og ímynd. Hér er fjallað um hvernig gera má góða þjónustu enn betri og hvað ber að varast. Stuðst er við fjölbreyttar kennsluaðferðir og er þetta nám kennt í Reykjavík 3. nóv. Einnig er í boði fjarkennt 4 stunda námskeið þar sem þátttakendum gefst kostur á að horfa á skemmtileg og afar fræðandi myndbönd. Það námskeið hefst 2. nóv. fyrir allt landið og má skrá sig hér.
