Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf ágúst 2010
Símenntun er samofin störfum
Námsvísir Starfsmenntar haustið 2010 er þessa dagana að berast til félagsmanna og inn á stofnanir en skráningar standa nú yfir á netinu. Opinberum starfsmönnum standa nú til boða starfstengdar námsleiðir þar sem fræðsluþarfir ríma við starfsmarkmið stofnana eða þverfagleg námskeið sem efla almenna starfshæfni. Þá geta atvinnuleitendur og þeir sem horfa fram á breyttar aðstæður á vinnustað sótt frábær súpunámskeið þar sem færustu sérfræðingar kenna eða fengið viðtal við náms- og starfsráðgjafa. Forsvarsmenn stofnana geta einnig pantað farandfyrirlestra inn á vinnustaði eða sótt um Ráðgjafa að láni til að vinna að afmörkuðum mannauðsverkefnum. Öll þjónusta Starfsmenntar er félagsmönnum að kostnaðarlausu og þeirra mannauðssjóða sem gert hafa sérstaka samninga fyrir sitt fólk en einnig opin öðrum sem þá greiða þátttökugjöld.Starfstengd símenntun... gefur augaleið
Starfsnám stuðningsfulltrúa – grunn- og framhaldsnám
Þetta umfangsmikla nám er ætlað þeim sem vinna í þjónustu við fatlaða eða sjúka og vilja styrkja faglegan grunn. Námið hentar einnig atvinnuleitendum sem hyggja á starf á sama vettvangi með samningi við Vinnumálastofnun. Grunnnám (160 kst) hefst 6. sept og 11. okt. í Reykjavík en framhaldsnámið (80 kst) 13. sept og 11. okt í Reykjavík en fjarkennt verður á Ísafjörð.
Launaskólinn – námsleið fyrir launafulltrúa og þá sem koma að kjara- og starfsmannamálum hjá ríki og sveitarfélögum
Þetta 83 stunda nám hefur hlotið frábærar viðtökur en því er skipt í 4 sjálfstæð þemu þar sem þátttakendur geta valið úr stök námskeið. Fjallað er um Ráðningar og starfslok á opinberum vinnumarkaði, Vinnutíma og afgreiðslu launa, Launaðar fjarvistir og Mannauðsmál. Á vefgátt Launaskólans má fá allar nánari upplýsingar og skrá sig til leiks.
Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum
Þessi framsækna og hnitmiðaða 52 stunda námsleið hlaut frábærar viðtökur síðasta vetur og var vel sótt af þeim sem vilja styrkja stjórnunar- og skipulagshæfni sína. Námið er ætlað skrifstofufólki sem vinnur með stjórnendum og vill sérhæfa sig í þannig samstarfi. Markmið námsins er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að geta tekist á við fjölbreytt og flókin verkefni. Áhersla er lögð á sveigjanleika, sjálfstæði, forgangsröðun ásamt kynningu á samskipta- og leiðtogahæfni. Námið hefst 11. október og er kennt hjá EHÍ þaðan sem fjarkennt er á Akureyri, Ísafjörð, Sauðárkrók og Egilsstaði.Nýr Vettvangur – breytt starf fyrir atvinnuleitendur ofl.Atvinnuleitendur og aðrir þeir sem nú takast á við breytingar í starfi geta sótt 16 námskeið sem ætlað er að styrkja stöðu á vinnumarkaði með því að auka sjálfsþekkingu, starfshæfni og þátttöku í símenntun. Boðið er upp stutt námskeið um valin efni þar sem kennarar koma úr röðum færustu sérfræðinga og fjalla um málefni sem nýtast í atvinnuleit og almennri hæfnisuppbyggingu. Kennt er alla þriðjudaga og fimmtudaga á haustönninni í BSRB húsinu. Boðið er upp á frábærar súpur í hádeginu en námskeiðin eru oftast haldin kl. 10-13. Hér má sjá yfirlit yfir námskeiðin og hér má skrá sig til leiks.
Talsmaður breytinga
Íslenskur vinnumarkaður gengur nú í gegnum mikið umbrotaskeið og því hefur verið hönnuð 72 stunda námsleið til að mæta þeim breytingum. Aukin menntun og þjálfun til að takast á við breyttar aðstæður ásamt greiðu flæði upplýsinga getur skipt öllu máli um hvernig til tekst. Þessi námsleið hentar þeim sem hafa sýnt leiðtogafærni, leikni í samskiptum og hafa áhuga á hæfnisuppbyggingu á vinnustað. Í náminu er lögð áhersla á að þróa, breyta og skapa nýtt vinnulag í breiðu samstarfi. Námið hefst 9. nóvember og er kennt í EHÍ alla þriðjudagseftirmiðdaga til 22. mars. Hér má skrá sig til leiks og fá allar nánari upplýsingar um námsskrá og afar spennandi námsþætti.
Skrifstofubraut í fjarnámi
Starfsmennt hefur samið við MK um að bjóða upp á einingabært fjarnám fyrir skrifstofufólk. Þannig er komið til móts við þarfir starfsfólks sem vinnur fjölbreytt störf á skrifstofu. Fjarnám á skrifstofubraut I og II hefst 27. sept og hér má skrá sig á 1. önn. Staðbundið nám hefst 24. ágúst.
Stutt námskeið sem efla starfshæfni og stjórnun
Að tjá sig án kvíða (16 kst)
Á þessu námskeiði er leitast við að efla sjálfstraust og þor til að tjá sig fyrir framan hóp. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Enska fyrir atvinnulífið (24 kst)
Þessi námskeið eru haldin í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar um allt land og ætlað að auka öryggi í talmáli. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Framrás 1 – Ég og starfið (kst)
Hér er um eitt besta námskeið sinnar tegundar að ræða þar sem frábærir leiðbeinendur fjalla um sjálfstraust, tilfinningagreind og samskipti. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Rekspölur 1 (60 kst)
Hér er lögð áhersla á persónulega hæfni, almenna þekkingu og samspil einkalífs og starfs ásamt umfjöllun um samfélagslega innviði. Þetta námskeið hefur reynst góður grunnur að frekara námi eða þátttöku í félagsstörfum. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Verkefnastjórnun (24 kst)
Hér er aðferðafræði þessa vinsæla verklags kynnt á hnitmiðaðan hátt. Farið er í mótun hugmyndar, markmiðssetningu, framkvæmdaáætlun, verkáætlun og tímaáætlun ásamt kostnaðargreiningu og kynningaráætlun. Námið hefst í Reykjavík 11. nóv. og er fjarkennt til Egilsstaða, Selfoss, Akureyrar og Ísafjarðar.
Nám í mannauðsstjórnun (32 kst)
Hér er boðið upp á stutt nám í mannauðsstjórnun þar sem sjónum er beint að vinnustaðnum, fólkinu og samskiptum þess. Megintilgangur námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauðinn á hverjum vinnustað út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana. Kennsla hefst í Reykjavík 25. nóv. Nánari upplýsingar hér og skráning.
Upplýsinga- og skjalastjórnun (10 kst)
Hér er fjallað um aðferðafræði upplýsinga- og skjalastjórnunar og hagnýt ráð sem gera þátttakendum kleift að þróa eða skilja betur þau kerfi sem unnið er eftir. Nánari upplýsinar og skráning hér.
Þjónustustjórnun (4 - 20 kst)
Hér er fjallað um hvernig gera má góða þjónustu enn betri og hvað ber að varast. Annarsvegar er boðið upp á stutt fjarkennt nám 20. sept. þar sem örmyndbönd verða sýnd og hinsvegar 20 stunda úrvinnslunámskeið í Reykjavík 5. nóv.Allir samstarfsaðilar Fræðslusetursins Starfsmenntar geta óskað eftir að öll námskeið sem kynnt eru í Námsvísi haust 2010, séu sett upp í héraði eða kallað eftir farandfyrirlestrum inn á vinnustaði.
Fjarkennt tölvunám – þegar þér hentar og á þínum hraða
Ein vinsælustu námskeið Starfsmenntar hafa verið fjarkennd tölvunámskeið sem nýst hafa fólki víðsvegar um landið. Námskeiðunum er ætlað að efla almennt tölvulæsi starfsmanna og auka þannig möguleika þeirra til að takast á við sérhæfðari aðgerðir. Tvö námskeið hefjast 21. sept: Grunnnámskeið (80 kst) og Tímastjórnun og tölvupóstur með Outlook (26 kst). Framhaldsnámskeið í PowerPoint og Excel hefjast 12. okt. og síðar Word, Publisher og Myndvinnsluforrit. Þá er boðið upp á 2 ný og spennandi námskeið um Hugkortagerð og Fjársjóður Google.
