2.tbl    1.árg


Veffréttabréf 2.tbl. 1. árg.

Námskeið framundan

Tölvur og tölvunotkun

Starfsmennt býður nú félagsmönnum aðildarfélaga sinna upp á hið frábæra námskeið Tölvur og tölvunotkun sem haldið er í samstarfi við Tölvuskólann Nemanda. Námskeiðið kennir bæði byrjendum og lengra komnum á stýrikerfið, ritvinnslu (e.word), töflureikni (e. excel), internetið, tölvupóstinn og upplýsingatækni. Námskeiðið er kennt í fjarnámi, hefst 17.apríl og stendur yfir í 10 vikur eða fram til 4.júní. Nemendur hafa aðgang að persónulegri aðstoð og þjónustu símleiðis frá morgni til kvölds frá kennara námskeiðsins, Bjartmari Kristinssyni. Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningu er að finna hér.  

 

Járnsíða

Þann 24. apríl verður námskeiðið Öflug liðsheild og skapandi samskipti í boði á Suðurlandi (Selfossi) innan námskerfis Járnsíðu - skóla fyrir starfsmenn sýslumannsembættanna. Einnig verða í boði tvö námskeið innan Járnsíðu þann 25.apríl. Annars vegar Hlutverk Tryggingastofnunar, lög um almannatryggingar og félagsleg astoð á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar  Réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna á Norðurlandi. Góða skemmtun.

Starfstengd námskeið

Þann 24. apríl verður námskeiðið  Framrá 3 - Markviss vinnubrögð og vinnuumhverfi í boði á höfuðborgarsvæðinu. Upphaflega voru Framrásarnámskeiðin hugsuð fyrir starfandi skrifstofufólk en hefur nú verið opnað öðrum áhugasömum þátttakendum. Vert er að taka fram að Framrásarnámskeiðin eru sjálfstæð námskeið sem byggja ekki hvert á öðru. Því getur áhugasamur þátttakandi skráð sig til þátttöku á Framrás 3 námskeið þótt hann hafi ekki setið Framrás 1 og 2. Allar nánari upplýsingar um framrásarnámskeiðin má finna hér.    


Fréttir

Starfsmennt og HR í samstarf

 
Fræðslusetrið Starfsmennt og Heilsugæslan í Reykjavík hafa tekið höndum saman. Markmiðið er að koma á laggirnar endur- og símenntunarkerfi fyrir starfsmenn heilsugæslunnar sem eru félagsmenn í aðildarfélögum setursins. Markmiðið er að móta heildstætt námskerfi í anda Járnsíðu - skóla fyrir sýslumannsembættin sem byggir á fjölbreyttum námsþáttum sem taka mið af störfum starfsmanna og þeim margvíslegu verkefnum sem þeir sinna.
Öðrum heilbrigðisstofnunum um allt land stendur til boða að taka þátt í verkefninu og á allra næstu dögum verða forsvarsmönnum og forstöðumönnum þeirra sent boð þess efnis. Öll vinna við undirbúning, hönnun og framkvæmd námskerfisins er á kostnað Fræðslusetursins Starfsmenntar. Setrið mun einnig bera kostnað af því að halda úti kerfinu fyrir félagsmenn aðildarfélaga setursins. Aðrir þátttekendur greiða námskeiðsgjald. Stefnt er að því að gangsetja fyrstu námskeið kerfisins haustið 2006. Nánari upplýsingar um verkefnið hér en einnig veitir stjórnandi verkefnisins, Sara Hlín hjá Starfsmennt allar upplýsingar í síma 525-8397.

Nýtt námskerfi fyrir fangaverði

Fræðslusetrið Starfsmennt og Fangelsismálastofnun hafa unnið saman að myndun námskerfis fyrir fangaverði sem ætlunin er að hrinda úr vör í næstu vikum.  Námskerfið sprettur upp úr verkefninu Ráðgjafi að láni sem Fræðslusetrið Starfsmennt hefur boðið stofnunum að taka þátt í undanfarin ár. Það felur  í sér ráðgjöf sérfræðinga í starfsþróunarmálum viðkomandi stofnunar til að styrkja stoðir endur- og símenntunar starfsmanna hennar.
Námskerfið kemur meðal annars til með að innihalda námsþættina Saga fangelsismála á Íslandi, Lög um fullnustu refsinga og reglugerð, Stjórnsýslulög, upplýsingalög og lög um persónuvernd , Afplánunaráætlanir, Sjálfsmat og samskipti, Lyfjafræði og eiturefnafræði og Að takast á við erfiða einstaklinga. Allar nánari upplýsingar um námskerfið verður að finna á heimasíðu Starfsmenntar, www.smennt.is innan skamms.

Myndasyrpa

Framrás 2

Skjala og upplýsingastjórnun