Apríl 2008

Símenntun og starfsefling - næstu skref!

Vorönnin stendur nú sem hæst hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt og er bekkurinn oft þröngt setinn á þeim fjölmörgu námsleiðum sem Starfsmennt heldur í samstarfi við ríkisstofnanir um allt land. Á þessum vetri hafa mörg ný verkefni litið dagsins ljós m.a. námsleið fyrir starfsfólk Vinnumálastofnunar sem kölluð er Vinnumálaskólinn, nám fyrir starfsfólk héraðsdómstóla sem nefnt er Vísdómur og röð námskeiða fyrir Tryggingastofnun ríkisins, einstaka embætti skattstjóra og nú síðast fyrir Veðurstofu Íslands. Þá hefur verið kallað eftir aðstoð Starfsmenntar við innleiðingu starfsmannasamtala á vinnustað.  Ríkisstofnanir nýta sér því í auknu mæli þjónustutilboð Starfsmenntar til að vinna að mannauðseflingu og umbótastarfi í þágu starfsfólks og starfsumhverfis. Nú þegar dregur úr námskeiðahaldi er vert að leggja drög að áframhaldandi námi, hvort sem það er sérhæft starfstengt nám næsta haust eða að kalla eftir  margvíslegri þjónustu Starfsmenntar við stofnanir.

Starfsnám stuðningsfulltrúa næsta haust

Starfsfólk sem vinnur með fötluðum, öldruðum eða sjúkum á stofnunum eða heimilum á þess kost að fara í eins annar langt nám sem hluta af starfi sínu. Hér er um að ræða annarsvegar Starfsnám stuðningsfulltrúa- grunnnám (160 stundir) og Starfsnám stuðningsfulltrúa- framhaldsnám (80 stundir) sem kennt verður frá og með næsta hausti í Reykjavík. Grunnnámið hefst 1. september og er kennt á morgnana aðra hverja viku til jóla en framhaldsnámið hefst 6. október og er kennt með sama hætti. Þar sem hér er um langt og krefjandi nám að ræða er nauðsynlegt að hefja undirbúning í vor með því að ráðfæra sig við yfirmenn og skrá sig til leiks á heimasíðu Starfsmenntar þar sem einnig má nálgast frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk.

Brúarnám fyrir verðandi félagsliða

Með svokölluðu brúarnámi er verið að viðurkenna starfsreynslu fólks og þá þekkingu sem reyndir starfsmenn afla sér með því að vinna á vettvangi í nánum tengslum við skjólstæðinga sína. Fræðslusetrið Starfsmennt hefur unnið með Borgarholtsskóla í nokkur ár að tvennskonar námsleiðum fyrir verðandi félagsliða þar sem námi er sinnt með starfi. Annars vegar er um staðbundið nám að ræða sem kennt er þrjá eftirmiðdaga í viku og hinsvegar er um svokallað dreifnám að ræða sem fer að mestu fram á netinu og hentar því starfsfólki utan höfuðborgarsvæðisins. Báðar þessar námsleiðir byrja snemma næsta haust og má sækja umsóknareyðublöð á heimasíðu Starfsmenntar en þeim bera að skila til Borgarholtsskóla fyrir 13. júní nk. ásamt staðfestingu á virkri þátttöku í uppbyggingu eigin símenntunar.

Fjarkennt tölvunám næsta haust

Ein vinsælustu námskeið Starfsmenntar hafa verið fjarkennd tölvunámskeið sem nýst hafa fólki víðsvegar um landið. Hér er um sjö námskeiðstitla að ræða sem ætlað er að efla almennt tölvulæsi starfsmanna og gera þá þannig sókndjarfari í að takast á við sérhæfðari verkefni og  flóknari tölvuvinnslu. Um er að ræða Grunnnámskeið (80 stundir) þar sem farið er yfir upplýsingatækni almennt og helstu forrit og hefjast þessi vinsælu námskeið annarsvegar 5. maí og hinsvegar 22. sept. Þá eru í boði sex framhaldsnámskeið sem hvert um sig er 26 stundir. Hér er um að ræða dýpri nálgun á Word, Excel, Outlook, Power Point, Publisher og Myndvinnsluforrit. Námskeiðin hefjast öll næsta haust en búið er að opna fyrir skráningar hjá Starfsmennt. Námskeiðin eru án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar.