Yfirlit námsleiða og þjónustu

Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf apríl 2009
Þátttaka í starfstengdu námi hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt er afar góð um þessar mundir þó svo að árið hafi farið heldur rólega af stað. Þann doða sem starfskonur Starfsmenntar urðu varar við fyrstu vikurnar skrifast eflaust á ástand þjóðmála þá dagana, en nú hafa bæði stofnanir og einstaka starfsstéttir tekið vel við sér og stunda nám af kappi. Enda er það svo að menntun og margskonar fræðsla til starfsfólks getur skipt sköpum í þessu árferði og bæði veitt öryggiskennd og unnið gegn álagi. Margar stofnanir hafa því nýtt sér úrval farandfyrirlestra sem Starfsmennt sendir þeim eða kallað eftir Ráðgjafa að láni til að setja upp símenntunaráætlun starfsfólks. Menntun og uppbygging starfstengdrar færni á aldrei betur við en einmitt nú.
Grunnnámið hefst í Reykjavík 31. ágúst nk. Hér er um að ræða 160 stunda nám þar sem kennt er á morgnana aðra hverja viku til 11. des. Markmið námsins er að auka þekkingu og færni þeirra starfsmanna sem starfa í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka. Hér má nálgast stundaskrá, námslýsingu og allar frekari upplýsingar en sækja þarf um námið fyrir 30. júni nk.
Framhaldsnámið er ætlað þeim sem lokið hafa grunnnáminu. Um er að ræða 80 stunda nám sem hefst 5. okt. í Reykjavík. Hér má skrá sig til leiks og nálgast námsskrá og stundatöflu.
Allar upplýsingar um námið, stundaskrá sem og umsóknareyðublað má nálgast á vef Starfsmenntar. Umsóknum skal skila inn til Borgarholtsskóla fyrir 12. júní nk. Frekari upplýsingar veitir kennslustjóri námsins í síma 535 1700 og starfskonur Starfsmenntar í síma 525 8395.
Nám næstu vikurnar
Allt nám á vegum Starfsmenntar er félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en aðrir greiða gjald sem hægt er að fá endurgreitt úr flestum starfsmenntasjóðum stéttarfélaga.Vinnumálaskólinn
er 100 stunda námsleið fyrir starfsfólk Vinnumálastofnunar sem hefur verið kennd um allt land í tæp tvö ár. Fyrstu umferð námsins lýkur í haust og hér má sjá lokanámskeiðin að þessu sinni. Um er að ræða sex námsþætti sem eru sumir hverjir í boði oftar en einu sinni. Námskeiðið Siðfræði og fagmennska í starfi verður t.d. fjarkennt um allt land þann 17. apríl og er enn hægt að skrá sig til þátttöku.Á vettvangi
er námsleið læknaritara og þar er í boði 20 stunda námskeið um gagnavinnslu og rannsóknaraðferðir. Kynntar verða tvær rannsóknarhefðir og fá þátttakendur æfingu í söfnun og úrvinnslu gagna. Námið fer fram hjá Endurmenntun HÍ og hefst 20. apríl. Markmiðið er að auka færni læknaritara í faglegri gagnaúrvinnslu og skilning þeirra á hugtökum og aðferðum.Hæfni fyrir heilbrigðisritara
Síðasta námslota annarinnar verður haldinn þann 27. apríl. Hér er um 20 stunda nám þar sem tekið er saman úrval fyrri námskeiða sem hafa komið best út úr mati þátttakenda. Námið er hugsað fyrir þá heilbrigðisritara sem sóttu ekki fyrra nám en vilja fá yfirlit yfir það besta á skjótvirkan hátt.Framrás 3
er 40 stunda námskeið þar sem fjallað er um margskonar skipulags- og stjórnunarmál sem styrkja einstaklinga í starfi. Um er að ræða kynningu á verkefnastjórnun og áætlanagerð ásamt tímastjórnun og stjórnun funda. Þá verður einnig rætt um starfsumhverfi ríkisstofnana og réttindi og skyldur starfsmanna. Námið hefst 20. apríl og er haldið hjá Endurmenntun HÍ. Hér er hægt að fá nánari upplýsingar og skrá sig til leiks.Upplýsinga- og skjalastjórnun
er haldið tvo eftirmiðdaga hjá Endurmenntun HÍ og hefst 28. apríl. Mögulegt er að fjarkenna ef nægt þátttaka fæst í héraði. Fjallað verður um tilgang, aðferðir og regluverk skjalavistunar með það fyrir augum að starfsmenn geti betrumbætt eigin aðferðir og vinnulag.Fjarkennt tölvunám
hefur átt miklum vinsældum að fagna þessa önnina eins og svo oft áður en því ræður eflaust frábær stuðningur leiðbeinandans sem er til taks í síma frá morgni til kvölds. Enn er hægt að skrá sig á tvö síðustu námskeiðin þetta vorið: Grunnnámskeið á tölvur sem er 80 stundir og hefst 5. maí og framhaldsnámskeið í ritvinnsluforritinu Word sem hefst 14. apríl.Starfsnám stuðningsfulltrúa haustið 2009
Opnað hefur verið fyrir skráningar í starfsnám stuðningsfulltrúa, grunn- og framhaldsnám og félagsliðabrú sem hefst næsta haust.Grunnnámið hefst í Reykjavík 31. ágúst nk. Hér er um að ræða 160 stunda nám þar sem kennt er á morgnana aðra hverja viku til 11. des. Markmið námsins er að auka þekkingu og færni þeirra starfsmanna sem starfa í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka. Hér má nálgast stundaskrá, námslýsingu og allar frekari upplýsingar en sækja þarf um námið fyrir 30. júni nk.
Framhaldsnámið er ætlað þeim sem lokið hafa grunnnáminu. Um er að ræða 80 stunda nám sem hefst 5. okt. í Reykjavík. Hér má skrá sig til leiks og nálgast námsskrá og stundatöflu.
Félagsliðabrú fyrir verðandi félagsliða
Starfsmennt býður upp á brúarnám fyrir verðandi félagsliða í samstarfi við Borgarholtsskóla þar sem starfsnám stuðningsfulltrúa, grunnur og framhald er metið til eininga. Brúin felur í sér mat á námi félagsliðabrautar, sem er í heildina 78 einingar í 32 einingar á grundvelli skilyrða sem sjá má hér. Um er að ræða staðbundið nám og dreifnám sem er fjarkennt að mestu leyti.Allar upplýsingar um námið, stundaskrá sem og umsóknareyðublað má nálgast á vef Starfsmenntar. Umsóknum skal skila inn til Borgarholtsskóla fyrir 12. júní nk. Frekari upplýsingar veitir kennslustjóri námsins í síma 535 1700 og starfskonur Starfsmenntar í síma 525 8395.