Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

 

 

 

       Fyrri útskriftarhópur úr Starfsnámi stuðningsfulltrúa - Grunnnám vor 2010

 

 

 

 

 

 

 

 

 

     

 Símenntun - á þínu færi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

      

 

 

 

 

 

 

 


Veffréttabréf apríl 2010

Þátttaka í starfstengdri símenntun á þessari vorönn hefur gengið afar vel. Mikil aðsókn hefur verið í almenn þverfagleg námskeið, stór sem smá, sem nýtast öllum hvar sem þeir starfa. Einnig hefur ráðgjafaþjónusta og námskeiðaröð fyrir atvinnuleitendur innan BSRB verið vel nýtt. Minni þátttaka hefur verið í námi fyrir stofnanir sem skrifa má á aukið álag og annir þar á bæ. Það ástand er þó einungis tímabundið því margar stofnanir hafa nýtt tímann til að þróa og undirbúa framtíðarsímenntun sinna starfsmanna. Enda brýn þörf á, þar sem fyrirsjáanlegar eru breytingar á bæði verkefnum og vinnustöðum sem mæta verður með aukinni menntun starfsfólks.

Starfsmennt býður stofnunum upp á margskonar ráðgjafaþjónustu og aðstoðar við fræðsluhönnun en á heimasíðu setursins má finna fyrirmyndarverkefni um starfstengdar námsleiðir stofnana eða skoða gátlista um uppsetningu námskeiða. Og þar sem vorönnin er brátt á enda er núna rétti tíminn til að skoða námsframboð haustannar og þá sérstaklega það nám sem sækja verður um í byrjun sumars. Sem fyrr eru öll námskeið á vegum Starfsmenntar félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en einnig  oftast opin öðrum sem þá greiða þátttökugjöld.

Öflugt starfsnám næsta haust

Starfsnám stuðningsfulltrúa – viðamikið grunn- og framhaldsnám

Næsta haust verða tvö framhaldsnámskeið (80 stundir) í boði og þar af annað fjarkennt á Ísafjörð og eitt grunnnám (160 stundir) sem hefst í Reykjavík 6. sept. Framhaldsnámskeiðin eru ætluð þeim sem lokið hafa grunnnáminu og hefjast þau 13. sept. og 11. okt., kennd misþétt.  Mjög góð þáttttaka hefur verið í þessu námi á árinu og þess vegna er boðið upp á fleiri námskeið en áður. Enda er hér um metnaðarfullt starfsnám að ræða sem bæði eflir fagmennsku starfsfólks sem vinnur á félags- og heilbrigðissviði og opnar fyrir ýmsa möguleika til starfsþróunar eða á frekara námi. Námið er ætlað þeim sem vinna með fötluðum, öldruðum eða sjúkum, eða hyggja á störf á þeim starfsvettvangi, og þarf að skrá sig til leiks hjá Starfsmennt fyrir lok júní þar sem flest námskeiðin hefjast strax næsta haust.

Brúarnám fyrir verðandi félagsliða

Með svokölluðu brúarnámi er verið að viðurkenna starfsreynslu fólks og þátttöku í starfstengdri símenntun. Starfsmennt hefur í samstarfi við Borgarholtsskóla boðið upp á brúarnám fyrir verðandi félagsliða samhliða störfum. Annars vegar er um staðbundið nám að ræða og hinsvegar svokallað dreifnám sem fer að mestu fram á netinu og hentar því starfsfólki utan höfuðborgarsvæðisins. Námið byrjar snemma næsta haust og má sækja umsóknareyðublöð á heimasíðu Starfsmenntar en þeim ber að skila til Borgarholtsskóla fyrir 1. júní nk. ásamt fylgigögnum.

Brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara

Starfsmennt býður upp á 3ja anna brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara í samvinnu við Fjölbrautaskólann við Ármúla þar sem starfsreynsla er metin inn í dagskólanám eða fjarnám. Forkröfur inn í námið eru að hafa 4 ára starfsreynslu að baki hið minnsta sem hjúkrunar- og móttökuritari og hafa lokið 120 stundum í  sérhæfðri fræðslu.  Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má nálgast á heimsíðu Starfsmenntar og ber að skila umsóknum til Fjölbrautskólans við Ármúla fyrir 11. júní nk.

Skrifstofubraut í fjarnámi

Skrifstofubrautin er ætluð skrifstofufólki í margvíslegum störfum og miðar að því að efla almenna og sérhæfða færni í íslensku, ensku, bókhaldi, skipulagi og stýringu verkefna. Námið er haldið í samstarfi við MK og metið til framhaldsskólaeininga. Hægt er að velja um skrifstofubraut I og II í 3 annir og einnig er hægt að óska eftir raunfærnimati inn í námið.  Námið hefst strax í haust og rennur umsóknarfrestur út um miðjan júní. Fljótlega má skrá sig til leiks á heimasíðu Starfsmenntar í skrifstofubraut I (1. önn, 2. önn eða 3ja önn)  eða skrifstofubraut II (1.önn, 2. önn eða 3ja önn) eða óska eftir mati.

Launaskólinn- nám fyrir launafulltrúa og starfsfólk starfsmannadeilda hjá ríki og bæ

Launaskólinn er nám fyrir launafulltrúa og þá sem koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og bæ og svarar aðkallandi þörf fyrir grunnmenntun á þessu sviði. Námið var hannað í samstarfi við fjármálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga og er alls 83 stundir sem skipt er í 4 þemu. Opnað hefur verið fyrir skráningar í nám haustsins og er bæði um grunnnámskeið að ræða sem allir taka og sérhæfð valnámskeið. Allar upplýsingar má fá á heimasíðu námsins og á skrifstofu Starfsmenntar.

Sérhæfð námskeið á næstunni

Verkefnastjórnun (24 stundir)

Enn er hægt að skrá sig á þetta hnitmiðaða námskeið um verkefnastjórnun. Farið er í mótun hugmyndar, markmiðssetningu, framkvæmdaáætlun, verkáætlun og tímaáætlun ásamt kostnaðargreiningu og kynningaráætlun. Einnig er samskiptahlið verkefnastjórnunar gerð góð skil. Námið hefst í Reykjavík 28. apríl og er fjarkennt til Egilsstaða, Selfoss, Akureyrar og Ísafjarðar. Námskeiðið hentar öllum þeim sem vinna við verkefnastjórn og vilja ná betri tökum á starfinu ásamt þeim sem hyggja á störf á þessum vettvangi.
 

Nám í mannauðsstjórnun (32 stundir)

Hér er boðið upp á stutt nám í mannauðsstjórnun þar sem sjónum er beint að vinnustaðnum, fólkinu og samskiptum þess. Megintilgangur námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauði út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana. Kynnt eru hugtök eins og starfsánægja, starfsþróun, hæfni, hvatning og stjórnunarstílar. Kennsla hefst í Endurmenntun HÍ þann 6. maí og er kennt í 2x2 samliggjandi daga sem hentar þeim sem koma langt að. Einvala lið kennara frá Háskóla Íslands sjá um kennsluna.

Fjarkennt tölvunám næsta haust

Ein vinsælustu námskeið Starfsmenntar hafa verið fjarkennd tölvunámskeið sem nýst hafa fólki víðsvegar um landið. Hér er um níu námskeiðstitla að ræða sem ætlað er að efla almennt tölvulæsi starfsmanna og auka þannig hæfni þeirra til að takast á við sérhæfðari aðgerðir. Búið er að opna fyrir skráningar fyrir haustið í Grunnnámskeiði (80 kst) og átta (26 kst) framhaldsnámskeið um Word, Excel, Outlook, Power Point, Publisher, Myndvinnsluforrit, Hugkortagerð og möguleika Google.
 

Áhugasviðsgreining fyrir atvinnuleitendur

Síðasta námskeiðið í Nýr vettvangur fyrir atvinnuleitendur verður haldið 6. maí næstkomandi og er þar um að ræða kynningu á áhugasviðgreiningum þar sem einstaklingum gefst tækifæri til að korleggja áhuga sinn og skoða í ljósi mögulegra starfa og starfsumhverfis. Þátttakendum er boðið upp á einkatíma til að skoða eigin niðurstöður úr áhugasviðskönnunum og ræða framtíðarhorfur í starfsleit.