Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Fræðslusetrið Starfsmennt óskar félagsmönnum sínum og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Námskeið á vorönn - fullt af nýjungum
Nú fer starfsári Starfsmenntar senn að ljúka og handan við hátíðarnar tekur við nýtt ár með fjölbreyttu úrvali nýrra og klassískra námskeiða og þjónustu við stofnanir.
Ný námskeið, einkum á sviði almennra námskeiða og tölvunámskeiða verða áberandi á komandi önn auk þess lagt verður meira upp úr þjónustu við stofnanir ríkisins. Breytingar felast einkum í auknu framboði á þjónustuþáttum sem auðveldar forsvarsmönnum stofnana að sérsníða þjónustuna að þörfum starfseminnar og starfsmannanna sinna, með það fyrir augum að þróa enn frekar símenntun og starfstengdt nám. Starfsfólk stofnana geta valið um Ráðgjafa að láni, farandfyrirlesara, náms-og starfsráðgjöf eða fræðsluhönnun fyrir tiltekna starfshópa. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir námsframboð á vorönn og margvíslega þjónustu við stofnanir. Hægt er að smella á tiltekin námskeið sem lokið hefur verið við að setja inn á heimasíðu Starfsmenntar til nánari kynningar.
STARFSTENGD NÁMSKEIÐ
Áfangar – nám fyrir fangaverði
Á vettvangi – nám fyrir starfandi fangaverði
Járnsíða – nám fyrir starfsmenn sýslumannsembættanna
Námsbrýr – styttri leiðir í námi á framhaldsskólastigi
Starfsnám stuðningsfulltrúa - grunnnámskeið og framhaldsnámskeið
Umsjónarmenn fasteigna NÝTT
ALMENN NÁMSKEIÐ
Rekspölur – almennt starfsnám
Framrás - almennt starfsnám
Verkefnastjórn – vinnulag sem virkar NÝTT
Að tjá sig án kvíða NÝTT
Vellíðan í vinnunni
Starfsandi og samstarfsvilji NÝTT
Áhugasvið og starfsánægja NÝTT
Skjala- og upplýsingastjórn í fyrirtækjum og stofnunum NÝTT
Enska fyrir atvinnulífið – talmál NÝTT
Hagnýt danska NÝTT
Starfsmannasamtöl – fyrir almenna starfsmenn og stjórnendur
TÖLVUR OG TÖLVUNOTKUN
Tölvur og tölvunotkun – grunnnámskeið
Tölvur og tölvunotkun – framhaldsnámskeið – WORD
Tölvur og tölvunotkun – framhaldsnámskeið – EXCEL
Tölvur og tölvunotkun – skipulagning, tímastjórnun og tölvupóstur með OUTLOOK NÝTT
Tölvur og tölvunotkun – POWER POINT NÝTT
Tölvur og tölvunotkun – Kynningarefni, fréttabréf og fl. Með MICROSOFT PUBLISHER NÝTT
Tölvur og tölvunotkun – Myndvinnsla með Photoshop NÝTT
Endurbætt þjónusta við stofnanir
Fræðslusetrið Starfsmennt veitir ríkisstofnunum fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að efla endur- og símenntun starfsmanna og markvissa mannauðsstjórnun. Þjónustan er frí fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar og ef stofnanir hafa hug á að leita eftir henni er haft beint samband við skrifstofu setursins í gegnum netfangið smennt@smennt.is eða með því að hringja í síma 525-8395.
Á vorönn 2007 býður Starfsmennt samstarfsstofnunum sínum eftirtalda þjónustu:
Ráðgjafi að láni
Starfsmennt hefur um nokkurra ára skeið boðið upp á verkefni sem nefnist Ráðgjafi að láni og er þar unnið að eflingu markvissrar mannauðsstjórnunar. Hver stofnun ákveður sitt viðfangsefni í samstarfi við þann ráðgjafa sem ráðinn er til verksins. Ávinningurinn af Ráðgjafa að láni hefur verið mikill og birst m.a. í sérhönnuðum námskerfum fyrir einstaka starfshópa, fræðslutilboðum og stuðningsaðgerðum á vinnustað. Þáttur ráðgjafa að láni hefur einnig verið mikill við innleiðingu nýunga á sviði starfsþróunar og stefnu í starfsmannamálum.
Farandfyrirlestrar
Starfsmennt býður einnig fjölbreytt úrval farandfyrirlestra þar sem ríkisstofnanir geta valið áhugavert viðfangsefni á tíma sem þeim hentar best. Markmiðið með farandfyrirlestrunum er að efla símenntun og starfsþróun starfsmanna með því að gefa þeim kost á utanaðkomandi sérfræðingum til að fjalla um það sem efst á baugi hverju sinni á vinnustaðnum. Fyrirlestrarnir eru sérsniðnir og í nánum tengslum við vinnuumhverfi og áherslur í starfsmannamálum innan hverrar stofnunnar. Fræðslan getur nýst starfsfólki og stjórnendum á margan hátt. Hún getur verið þeim hvatning til að breyta og bæta, vakið upp spurningar eða skapað umræður og ný sjónarhorn. Meginmarkmiðið er að ýta frekar undir þátttöku, samræðu og samstarf starfsfólks og stjórnenda um símenntun, starfsþróun og eflingu mannauðs.
Náms- og starfsráðgjöf
Starfsmennt býður ríkisstofnunum upp á þjónustu náms- og starfsráðgjafa fyrir starfsfólk sitt. Náms- og starfsráðgjöfinni er ætlað að styðja starfsfólk til mennta, kynna fyrir þeim námsframboð og hvetja fólk til þátttöku. Í ráðgjöfinni er einnig ítrekað mikilvægi þess að einstaklingurinn sýni frumkvæði og taki ábyrgð á þróun eigin náms- og starfsferils. Boðið verður upp á ráðgjöf í formi kynninga, hópastarfs eða einstaklingsviðtala eftir því hvað hentar hverju sinni.
Fræðsluhönnun fyrir starfshópa
Starfsmennt hefur mikla reynslu af fræðsluhönnun námskeiða og stærri námskerfa með einstaka starfshópum. Hönnunin byggir á þarfagreiningu sem unnin er í margsvíslegu samstarfi innan stýrihópa og er ætlað að koma til móts við breytt vinnulag eða áherslur í starfi. Meginmarkmiðið með fræðsluhönnuninni er að brúa bilið á milli núverandi menntunarstigs og stöðu einstaka starfshópa og þeirra nýju krafna sem eru að koma í ljós innan starfanna. Þarfagreiningin tekur því bæði á núverandi stöðu og framtíðarþróun starfsstétta og reynir í senn að halda í við þróunina og vera skrefi á undan. Fræðsluhönnun Starfsmenntar tekur einnig mið af fjölbreyttum kennsluaðferðum þar sem saman fléttast vefnám, námskeið, hópvinna, þjálfun á vinnustað og sjálfsnám.
Bæklingur Starfsmenntar í hús
Fræðslusetrið Starfsmennt leggur nú lokahönd á námsvísi sem kynnir námsframboð fyrir komandi önn og er ætlunin að dreifa honum til félagsmanna í byrjun janúar. Von okkar er sú að bæklingurinn veiti greinagott yfirlit yfir þau námskeið sem setrið stendur fyrir á vorönn og þá þjónustu sem í boði er fyrir stofnanir. Markmiðið er að starfsmenn ríkisins geti skipulagt nám með góðum fyrirvara og forstöðumenn og starfsmannastjórar ríkisstofnana geti nýtt sér námsframboð og þjónustu Starfsmenntar í starfsþróunaráætlunum stofnana sinna.