Desember 2007

 

Fræðslusetrið Starfsmennt óskar félagsmönnum sínum og samstarfsaðilum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

 
 

Framundan árið 2008

Nú fer starfsári Starfsmenntar senn að ljúka og handan við hátíðarnar tekur við nýtt ár með fjölbreyttu úrvali nýrra og klassískra námskeiða og þjónustu við stofnanir.

Á árinu sem er að líða hefur fjöldi heildstæðra námsleiða aukist til muna og þar á meðal má finna Vísdóm - námsleið fyrir starfsfólk héraðsdómstóls, Hæfni - námsleið fyrir starfandi heilbrigðisritara og Heilsu - námsleið fyrir starfsfólk heilsugæslustöðva og heilbrigðisstofnana. Enn má þó finna námsleiðir eins og Járnsíðu - námsleið fyrir starfsfólk sýslumannsembætta sem hefur verið flaggskip starfstengdra námsleiða og er í stöðugri þróun og á nýju ári verður meðal annars boðið upp á nýtt námskeið innan Járnsíðu í starfstengdri ensku.

Nú þegar hefur verið opnað fyrir skráningar á fjölmörg námskeið sem hefjast á nýju ári og má þar á meðal nefna hin vinsælu tölvunámskeið en þau eru alltaf jafn eftirsóknarverð.

Þá eru fjölmörg almenn námskeið í boði að vanda þar sem flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og má þar nefna Verkefnastjórn - vinnulag sem virkar, það námskeið var síðast haldið í nóvember og komust færri að en vildu og var því ákveðið að bjóða það námskeið tvisvar á næstu önn bæði í janúar og mars.

Þá verða bæði Framrás 1- Ég og starfið og Framrás 3 - markviss vinnubrögð og vinnuumhverfi í boði á næstu önn auk Rekspalar 1 og Rekspalar 2. Markmið þessara námskeiða eru að styrkja einstaklinginn og auka hæfni hans bæði í líf og starfi. 

Þetta er aðeins sýnishorn af þeim fjölda námskeiða sem í boði verða vorönn 2008 en yfirlit allra námskeiða er að finna á heimasíðunni okkar www.smennt.is (sjá einnig flýtileiðir ofarlega vinstra megin í fréttabréfinu) og eins er væntanlegur í byrjun janúar námsvísir Starfsmenntar sem borin er út til félagsmanna, aðildarfélaga og stofnana setursins.

Von okkar er sú að bæklingurinn veiti greinagott yfirlit yfir þau námskeið sem setrið stendur fyrir á vorönn og þá þjónustu sem í boði er fyrir stofnanir. Markmiðið er að starfsmenn ríkisins geti skipulagt nám með góðum fyrirvara og forstöðumenn og starfsmannastjórar ríkisstofnana geti nýtt sér námsframboð og þjónustu Starfsmenntar í starfsþróunaráætlunum stofnana sinna.