Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

 

 

 

Fræðslusetrið Starfsmennt óskar viðskiptavinum sínum og samstarfsaðilum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Um leið þökkum við fyrir okkur og frábæra þátttöku í námi og þjónustu setursins

 

 

 

 

 

 

 

 


Veffréttabréf des 2008

Almennt starfsnám á nýju ári

Fræðslusetrið Starfsmennt hefur opnað fyrir skráningar á fjölbreyttu framboði almenns starfsnáms. Um er að ræða nám sem eflir þá almennu hæfnisþætti sem allir verða að kunna einhver skil á. Hér er um að ræða þætti eins og stjórnun, samskipti, tungumálakunnáttu og tölvuþekkingu.  Margskonar fleira starfstengt nám, sem unnið er með einstaka stofnunum og starfshópum, mun líta dagsins ljós á vef Starfsmenntar næstu vikurnar en nú er lag að huga að almenna náminu sem kemur starfsfólki til góða hvar sem er og í hvaða aðstæðum sem er.

Nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur – um allt land

Á vorönn 2009 verður  boðið upp á nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur sem starfa í opinberum rekstri á fimm stöðum á landinu. Námið er haldið í samvinnu við háskóla og símenntunarmiðstöðvar og hentar vel samhliða vinnu.  Endurmenntun Háskóla Íslands  sér um 32 stunda nám sem boðið er upp á annarsvegar 9. mars og hinsvegar samfellt í 4 virka daga frá  7. maí.  Háskólinn á Akureyri sér um námið fyrir aðra staði á landsbyggðinni  og hefst það 20. janúar nk. Þeirri kennslu verður fjarvarpað á Ísafjörð og Egilsstaði og er skráning nú þegar hafin.  Þá er boðið upp á 20 stunda nám í mannauðsstjórnun á Selfossi sem beint er að starfsfólki í heilbrigðis- og félagsgreinum. Markmið náms í mannauðsstjórnun  er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauð stofnana með því að þekkja til helstu aðferða mannauðsstjórnunar og geta nýtt þær til mannauðseflingar á vinnustað. Námið er sniðið að þörfum millistjórnenda s.s. starfsmannastjóra, verkefnastjóra  í starfsmannahaldi, fræðslustjóra og annarra starfsmanna sem axlað hafa aukna ábyrgð í starfinu.

Að styrkja hæfni sína  í lífi og starfi

Af stærri  almennum námskeiðum sem kennd verða á vorönn 2009 má nefna tvær klassískar námslínur sem skipt er upp í þemu. Þær eru Rekspölur I -  II og Framrás I - III. Rekspalarnámskeiðin leggja áherslu á persónulega hæfni, almenna þekkingu og samspil einkalífs og starfs. Þessi námskeið vara í 60 stundir og hafa oftar en ekki lagt grunn að frekara námi eða þátttöku í félagsstörfum. 

Framrásarnámskeiðin miða að því að styrkja starfsmenn í starfi, efla þjónustu stofnana og eru afar hagnýt fyrir fólk sem vinnur í framlínustörfum stofnana.

Námskeiðin eru haldin með mismunandi sniði, sum keyrð þétt en öðrum dreift yfir lengri tíma. Þá má nefna tveggja daga nám í verkefnastjórnun sem haldið er í Reykjavík 26. feb. þar sem farið er í hugmyndafræðina og hagnýt rafræn forrit. 

Fjarkennt  tölvunám um allt land

Tölvur og tölvunotkun eru netnámskeið sem kenna byrjendum og lengra komnum á tölvur og ýmis tölvuforrit. Námskeiðin hafa það að markmiði að efla almennt tölvulæsi starfsfólks til að takast á við sérhæfðari verkefni og flóknari tölvuvinnslu.  Tölvunámskeiðin eru sjö talsins. Um er að ræða Grunnnámskeið (80 stundir) þar sem m.a.  farið er yfir tölvuleikni, ritvinnslu, töflureiknir og upplýsingatækni  og hinsvegar sex framhaldsnámskeið sem hvert um sig er 26 stundir. Hér um ræða dýpri nálgun á Word, Excel, Outlook, Power-Point, Publisher og Myndvinnsluforriti.

Enska fyrir atvinnulífið

Enskunám er í boði um allt land þar sem lögð er áhersla á talmál, talþjálfun og orðaforða. Þátttakendum er ýmist skipt í hópa eftir getu eða eftir starfssviði.  Flest enskunámskeiðanna hefjast snemma á vorönn svo brýnt er að fólk skrái sig sem fyrst. Námið í Reykjavík er t.a.m. metið til eininga og hefst það 28. jan. Námið á Akureyri hefst degi síðar. Einnig er boðið upp á námið á Austurlandi og Suðurlandi.   Frekari upplýsingar má sjá á vefsíðum námskeiðanna og hjá Starfsmennt.

Allar nánari upplýsingar um inntak, tímasetningar og dagsetningar námskeiða má finna á vef Starfsmenntar þar sem skráningar fara fram og er fólk hvatt til að skrá sig sem fyrst. Námið er félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu en opið öðrum þátttakendum.