Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

Fræðslusetrið Starfsmennt

óskar viðskiptavinum sínum og samstarfsaðilum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Við þökkum fyrir frábæra þátttöku í námi og þjónustu setursins og hlökkum til að takast á við áskoranir ársins 2010 í samstarfi við ykkur.

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Veffréttabréf desember 2009

Jólakveðja og öflugt námsár framundan

Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á margskonar nýtt nám árið 2010 til að mæta erfiðum aðstæðum og brýnni þörf fyrir áframhaldandi uppbyggingu á starfshæfni. Um er að ræða sérhæfðar námsleiðir fyrir einstaka starfsstéttir, almennt þverfaglegt nám, fjarkennt tölvunám og námskeið fyrir þá félagsmenn BSRB sem misst hafa vinnuna. Sett hefur verið upp námsleið sem nefnist Nýr vettvangur- breytt starf sem samanstendur af 18 sjálfstæðum námskeiðum sem nýtast BSRB félagsmönnum í atvinnuleit og kennd verða 2svar í viku alla vorönnina. Þá hefur Launaskólinn göngu sína í febrúar sem ætlaður er launafulltrúum og þeim sem sýsla með kaup og kjör hjá ríki og bæ.

Að venju er öll þjónusta setursins félagsmönnum aðildarfélaganna að kostnaðarlausu og hefur Starfsmennt gert sérstaka samninga við önnur félög eða sjóði um samskonar kjör. Þá er unnið að því þessa dagana að setja upp náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur í samstarfi við Vinnumálastofnun og veita þeim ráð og stuðning í erfiðum aðstæðum. Ráðgjafar Starfsmenntar munu því hvetja og styðja þá sem misst hafa vinnuna til að nýta þann tímann vel til að byggja upp frekari færni með menntun, þjálfun og sjálfseflingu.

Launaskólinn- nám fyrir launafulltrúa og starfsfólk starfsmannadeilda hjá ríki og bæ NÝTT

Launaskólinn er nýtt nám fyrir launafulltrúa og þá sem koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og bæ. Námsleiðin var hönnuð í samstarfi við fjármálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Launafulltrúar gegna ábyrgðarmiklu starfi þar sem lítið má út af bregða vegna hagsmuna launþega um að afgreiðsla launa og ávinnsla réttinda sé framkvæmd á réttan hátt. Því er mikilvægt að þekkja sem best umhverfið og lagarammann og hafa vettvang til að deila vinnulagi og ræða verkferla og túlkanir. Launaskólinn svarar einnig aðkallandi þörf fyrir grunnmenntun á þessu sviði þar sem sérfræðiþekking þátttakenda er efld en hingað til hefur þjálfunin að mestu farið fram á vinnustað og ekki verið vottuð. Námsleiðin er alls 83 stundir og skipt upp í 4 þemu sem kennd verða allt árið 2010. Hvert þema samanstendur af  nokkrum sjálfstæðum námskeiðum og þurfa þátttakendur að skrá sig á vef Starfsmenntar í hvert námskeið. Þannig er komið til móts við mismunandi fræðsluþarfir reyndra starfsmanna en þátttakendur eru þó hvattir til að taka öll námskeiðin. Á vorönninni er boðið upp á tvö þemu, annarsvegar um Opinberan vinnumarkað, ráðningar, starfslok og starfsskyldur og hinsvegar um Fjarveru frá vinnu - launaðar fjarvistir. Fyrsta námskeiðið hefst 9. febrúar hjá Endurmenntun Háskólans, hér má skrá sig og fá allar nánari upplýsingar.

Námskeið fyrir atvinnuleitendur: Nýr vettvangur – breytt starf NÝTT

Hér er um að ræða 18 sjálfstæð námskeið sem haldin verða í BSRB húsinu á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10-13 alla vorönnina 2010. Námskeiðin eru ætluð atvinnuleitendum og þeim sem hyggja á störf á nýjum vettvangi eða eru að takast á við breytingar. Markmiðið með náminu er að styrkja stöðu þátttakenda á vinnumarkaði með því að auka sjálfsþekkingu, starfshæfni og námsáhuga. Margt spennandi er í boði og vonandi nýta félagsmenn BSRB sér þetta einstæða tækifæri til að hittast, fræðast og styðja hvert annað. Boðið verður upp á léttan hádegisverð á námskeiðunum en hér má fá nánari upplýsingar og skrá sig á fyrsta námskeiðið. Náms- og starfsráðgjafar Starfsmenntar veita einnig allar nánari upplýsingar og bjóða atvinnuleitendum upp á margskonar þjónustu til að marka stefnu í námi og starfsleit.

Talsmaður lærdóms NÝTT

Þessi námsleið er alls 72 stundir og er ætluð þeim sem vilja greiða leið lærdóms og breytinga á vinnustað. Þátttakendur þurfa að þekkja til mikilvægi símenntunar og hafa sýnt leiðtogafærni við innleiðingu umbóta. Talsmaðurinn fær þjálfun í að greina góðar hugmyndir og koma þeim á framfæri við stjórnendur og meðal jafningja. Þá þarf hann að búa yfir góðum samskiptahæfileikum, vera lausnamiðaður í hugsun og hafa áhuga á velferð samferðamanna sinna. Hér er um nýja nálgun að ræða í námi þar sem lykilstarfsmenn er þjálfaðir til forystu á sviði hæfnisuppbyggingar og til að geta tekið að sér margskonar þjálfun á vinnustað s.s. nýliðafræðslu. Námið hefst 8. febrúar hjá Endurmenntun Háskólans og hér má fá frekari upplýsingar og skrá sig og hér fylgir auglýsing sem kynna má á vinnustað.

Nám fyrir starfsmenn í stjórnunareiningum NÝTT

Þessu 52 stunda námi var afar vel tekið á haustönninni og fékk frábæra dóma þátttakenda. Markmið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við breiðara starfssvið og flóknari verkefni sem góðir liðsmenn. Miklu skiptir að stjórnendur geti falið starfsfólki að fullvinna verkefni og tryggja góða yfirsýn. Hér er stefnt að því að treysta grunn faglegra og úrræðagóðra starfsmanna með því að veita þeim innsýn í stjórnunarfræði og treysta skipulags- og samstarfshæfni. Námið nýtist einnig þeim sem undirbúa sig fyrir störf á nýjum vettvangi. Hér er hægt skrá sig í námið í Reykjavík og í fjarnám á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum. Hér má sjá auglýsingu um námið sem má prenta út og nota til kynninga á vinnustöðum.

Annað spennandi og hagnýtt stjórnunar- og starfsnám

Nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu

Hér er m.a. fjallað um hvernig efla megi starfsánægju og möguleika til starfsþróunar en markmið þessa 36 stunda náms er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauðinn á hverjum vinnustað út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana. Áhersla er lögð á skipulagningu og stjórnun starfsmannamála og að gefa yfirsýn yfir fræðasviðið sem og hagnýt verkfæri. Kennt verður í Reykjavík og á Akureyri og fjarkennt þaðan til Egilsstaða, Ísafjarðar, Selfoss og á Siglufjörð.

Skrifstofubraut í fjarnámi fyrir ritara og skrifstofustjóra

Starfsmennt býður upp á skrifstofubraut í fjarnámi fyrir þann stóra hóp sem vinnur fjölbreytt skrifstofustörf. Námið er í samstarfi við MK. Boðið er upp á nám á skrifstofubraut I og II og raunfærnimat fyrir reynt starfsfólk sem stendur traustum fótum námslega. Hér er um úrvals starfsnám að ræða sem ætlað er að efla almenna og sérhæfða færni í íslensku, ensku, bókhaldi, rekstri, skipulagi og stýringu verkefna. Námið hefst 25. janúar og þarf að skrá sig fyrir 15. janúar á Skrifstofubraut I á 2.önn eða 3. önn, Skrifstofubraut II eða í raunfærnimat. Allir þátttakendur fá kennslu í námstækni í upphafi til að tileinka sér ný og breytt vinnubrögð.

Enska fyrir atvinnulífið

Eitt af vinsælli námskeiðum hjá Starfsmennt eru þessi 20-30 stunda enskunámskeið þar sem ýmist er raðað í hópa eftir getu eða áhugasviði. Markmiðið með náminu er að auka orðaforða og öryggi nemenda í að tjá sig. Námið er í boði um allt land s.s í Reykjavík, á Selfossi, Ísafirði, Akureyri, Hornafirði og Reyðarfirði og hefjast mörg námskeiðin í lok janúar.



Eldri fréttabréf