Yfirlit námsleiða og þjónustu
........vertu á grænni grein
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf febrúar 2009
Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á fjölda starfstengdra námskeiða sem nýtast öllum starfsmönnum. Um er að ræða styttri eða lengri námskeið á vorönn 2009 þar sem leitast er við að styrkja almenna hæfni eins og tungumálakunnáttu, stjórnunarhæfni, samskiptahæfileika eða tölvufærni. Námskeiðin eru félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu en opin öllum áhugasömum. Símenntun er besta sóknin í erfiðu árferði og getur efllt sjálfstraust og þol einstaklings undir álagi og stofnun sem vill kenna sig við lærdóm hugar að sínu starfsfólki með reglulegri inngjöf fræðslu og þjálfunar. Nýttu því tímann til náms næstu vikurnar.
Hagnýt danska (16 kst)
Markmið með námskeiðinu er að æfa almenna færni í dönsku og þjálfa talmál. Námskeiðið hefst 16. feb. í Reykjavík. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Gæðaeldhús (8 kst)
Hér er fjallað um meðferð matvæla, mikilvægi hreinlætis og innra eftirlits. Námið hentar þeim sem sjá um matseld eða aðstoða í eldhúsum án grunnnáms í faginu. Námskeiðið er haldið 17. og 19. feb. í Kópavogi. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Árangursrík kennsla (20 kst)
Þetta námskeið er ætlað leiðbeinendum Starfsmenntar og fræðslufulltrúum stofnana til að kynna sér sérstöðu kennslufræði fyrir fullorðna og verða færari í að kenna jafningjum. Námskeiðið hefst 17. feb. í Reykjavík. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Miðlun upplýsinga og þjónusta (8 kst)
Hér er fjallað skýrt og skorinort um hvernig á að veita frammúrskarandi þjónustu. Námskeiðið er haldið dagana 23. og 26. feb. í Reykjavík. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Verkefnastjórnun-vinnulag sem virkar (16 kst)
Hér er fjallað um grunnaðferðir verkefnastjórnunar og hvernig halda á utan um góða hugmynd frá upphafi til enda. Áhersla er lögð á notkun forrita. Námskeiðið er haldið dagana 26. og 27. feb. kl. 8.30-16 í Reykjavík. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Færnimappa og áhugasvið (9 kst)
Farið er í gerð færnimöppu þar sem öll reynsla sem nýtist í starfi er tekin saman. Námskeiðið er haldið 9., 12., og 16. mars. kl. 14-16.15 í Reykjavík. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu (32 kst)
Hér er leitast við að kenna aðferðir til að virkja mannauðinn á hverjum vinnustað út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana Námið er sniðið að þörfum millistjórnenda s.s. starfsmannastjóra, starfsmanna í starfsmannahaldi, verkefnastjóra og fræðslufulltrúa stofnana. Námskeiðið er haldið annarsvegar 9. mars-1. apríl og hinsvegar 7.- 12. maí í Reykjavík. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Að tjá sig án kvíða (16 kst)
Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja bæta framsögn sína og öryggi og ná þannig betur til áheyrenda. Námskeiðið hefst 11. mars í Reykjavík. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Rekspölur II (60 kst)
Hér er lögð áhersla á persónulega hæfni, almenna þekkingu og samspil einkalífs og starfs. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja auka sjálfstraust, samskiptahæfni, framkomu og rökvísi. Námskeiðið byrjar 27. mars í Reykjavík og 24. feb. á Akureyri. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Nýtt námsumhverfi á netinu (6 kst)
Hér gefst kennurum og leiðbeinendum og fræðslufulltrúum stofnana tækifæri til að kynna sér rafrænt námsumhverfi og ókeypis forrit á netinu. Námskeiðið hefst 2. apríl í Reykjavík. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Upplýsinga-og skjalstjórnun (8 kst)
Þetta námskeið hentar öllum þeim sem hafa með þennan málaflokk að gera á vinnustað eða vilja kynna sér grunnhugmyndir skjalastjórnunar. Námskeiðið hefst 28. apríl. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Framrás III (40 kst)
Á námskeiðinu er fjallað um fjölmarga þætti sem einkenna traust og góð vinnubrögð innan stofnana. Rætt er um tímastjórnun, markmiðasetningu, verkefnastjórnun, áætlanagerð og ræðumennsku sem og réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Námskeiðið hefst 20. apríl í Reykjavík og á Akureyri 11. mars. Nánari upplýsingar og skráning hér.
Tölvur og tölvunotkun-Fjarnám fyrir þig-þegar þér hentar-þar sem þér hentar.
Tölvunámskeið Starfsmenntar hafa notið mikilla vinsælda en þau er fjarkennd gegnum netið. Kennari námskeiðsins veitir persónulega leiðsögn og stuðning. Boðið er uppá 80 stunda grunnnám þar sem bæði er kennt á Office 2003 og Office 20007. Sex framhaldsnámskeið eru einnig í boði sem hvert um sig er 26 stundir: Outlook, Excel, Power-Point, Publisher, myndvinnsla og Word.