Febrúar 2007

Vorönnin á fullri ferð hjá Starfsmennt

Fullt af spennandi námskeiðum í gangi

Námskeiðahald á vegum Fræðslusetursins Starfsmenntar er í miklum blóma þessi misserin og aðsókn á námskeið sjaldan verið meiri. Skráningar á tölvunámskeið  hafa verið með mesta móti enda eru 7 námskeið fjarkennd þessa önnina. Áhugasamir geta kynnt sér nánar hvað er framundan í tölvunámi Starfsmenntar með því að smella hér.

Starfsmennt býður upp á tvö tungumálanámskeið þessa önnina, annars vegar Hagnýta dönsku sem hefst 6. mars og hins vegar enska fyrir atvinnulífið - talmál sem nú stendur yfir.

Gaman er frá því að segja að hin gömlu, góðu og klassísku námskeið Rekspölur, Framrás og nám fyrir stuðningsfulltrúa hafa verið afar vel sótt þessa önnina enda leggja þau góðan grunn að frekari ávinningum. Þessi námskeið hafa verið í boði hjá Starfsmennt í áraraðir og ávallt skilað sínu. Þess má geta að Rekspölur 2 (allur dagurinn) verður í boði 11. apríl og hvetjum við alla áhugasama til að kynna sér það frekar. Sérstaklega hvetjum við félagsmenn af landsbyggðinni að skoða hvort þau eiga heimangengt til að taka þetta 60 stunda nám og sækja um ferða- og dvalarstyrk til Starfsmenntar.

Sérhannaðar námsleiðir fyrir tilteknar starfsgreinar og stofnanahópa standa einnig yfir og hefur aðsóknin verið mikil. Járnsíða - skóli fyrir starfsfólk sýslumannsembættanna, Áfangar - skóli fyrir fangaverði og Á vettvangi - nám fyrir starfandi læknaritara eru dæmi um námsleiðir sem hafa verið vel sóttar af starfsfólki þessara stétta.

Námskeið framundan  

Starfsmennt býður upp á margvísleg spennandi námskeið á þessari vorönn, sem ættu að henta flestum og nýtast þeim á vinnustað. Meðal þeirra námskeiða sem eru í boði eru eftirfarandi:

Að tjá sig án kvíða hefst 5. mars nk. Námskeiðið tekur meðal annars á því hvernig fólk getur orðað hugsanir sínar og skoðanir með skipulögðum hætti og æft sig í að koma fram án þess að missa þor. Þetta námskeið er einnig fyrir þá sem vilja bæta framsögn sína og ná betur til áheyrenda. Ávinningur námskeiðsins er að eiga      auðveldara      með hópastarf og vinnu með jafningjum.

Verkefnastjórnun - vinnulag sem virkar hefst 17. apríl á höfuðborgarsvæðinu, 7. mars á Vestfjörðum og 30. maí á Austurlandi.  Námskeiðið er ætlað þeim sem horfa til framtíðar og vilja efla sig í starfi, burtséð frá því hvaða störfum er sinnt. Aðferðirnar sem kynntar eru á námskeiðinu fela í sér að fylgja hugmynd eftir frá því hún kviknar og þar til hún er orðin að veruleika án þess að tapa yfirsýn. Skráningar á höfuðborgarsvæðinu hafa farið mjög vel af stað.

Rekspölur II (allur dagurinn) hefst 11. apríl á höfuðborgarsvæðinu. Á námskeiðinu er lögð áhersla á persónulega hæfni, almenna þekkingu og samspil einkalífs og starfs og er einstaklingurinn í miðdepli umræðunnar. Meðal áhersluþátta er umræða um sjálfstraust, samskiptahæfni, framkomu og rökvísi auk þess sem farið er í stöðu einstaklingsins í fjölmenningarlegu samfélagi.

Á vettvangi - Hagnýt enska og latína nám fyrir læknaritara hefst 25. apríl. Námskeiðið skiptist upp á þrjá námskeiðsþætti; Almenna og talaða ensku, læknaensku og latínu. Áhersla er lögð á undirstöðuatriði enskrar tungu, lestur, orðaforða, ritun og hlustun. Einnig er lögð áhersla á þjálfun í daglegri notkun enskrar tungu með æfingum sem tengjast raunverulegum aðstæðum s.s. samskipti í síma og persónuleg samskipti.

 

Þjónusta við stofnanir  

Fræðslusetrið Starfsmennt hefur aukið verulega við þjónustu við ríkisstofnanir með það fyrir augum að efla endur- og símenntun starfsmanna þeirra og greiða leið lærdóms á vinnustað. Markmiðið með þjónustunni er að auka hæfni starfsmanna og stjórnenda til að þróa áfram símenntun og vinnutengda þjálfun. Þjónustan er frí fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar og ef stofnanir hafa hug á að leita eftir henni er haft beint samband við skrifstofu setursins.

  • Ráðgjafi að láni - Starfsmennt hefur um nokkurra ára skeið boðið upp á verkefni sem nefnist Ráðgjafi að láni og er þar unnið að eflingu markvissrar mannauðsstjórnunar. Hver stofnun ákveður sitt viðfangsefni í samstarfi við þann ráðgjafa sem ráðinn er til verksins og birtist ávinningurinn í sérhönnuðum námskerfum fyrir einstaka námshópa, fræðslutilboðum og stuðningsaðgerðum á vinnustað. 
     
  • Farandfyrirlestrar - Starfsmennt býður upp á fjölbreytt úrval farandfyrirlesara þar sem ríkisstofnanir geta valið áhugavert viðfangsefni á tíma sem þeim hentar best. Markmiðið með farandfyrirlestrunum er að efla símenntun og starfsþróun ríkisstarfsmanna með því að gefa þeim kost á utanaðkomandi sérfræðingum til að fjalla um það sem er efst á baugi hverju sinni á vinnustaðnum. Fræðslan getur verið starfsfólki og stjórnendum hvatning til að breyta og bæta, vakið upp spurningar eða skapað umræður og ný sjónarhorn. 
     
  • Náms- og starfsráðgjöf - Starfsmennt býður ríkisstofnunum þjónustu náms- og starfsráðgjafa fyrir starfsfólk sitt. Náms- og starfsráðgjöfinni er ætlað að styðja starfsfólk til mennta, kynna námsframboð og hvetja fólk til þátttöku. Boðið er upp á ráðgjöf í formi kynninga, hópastarfs eða einstaklingsviðtala eftir því hvað hentar hverju sinni. 
     
  • Fræðsluhönnun fyrir starfshópa - Starfsmennt hefur mikla reynslu af fræðsluhönnun námskeiða og stærri námskerfa með einstaka starfshópum. Hönnunin byggir á þarfagreiningu sem unnin er í margvíslegu samstarfi innan stýrihópa og er ætlað að koma til móts við breytt vinnulag eða áherslur í starfi. Markmiðið með hönnuninni er að brúa bilið á milli núverandi stöðu og framtíðarhorfum starfsstétta og reynir í senn að halda í við þróunina og vera skrefi á undan.