Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Febrúar 2008
Viltu efla mannauðsstjórnun á þínum vinnustað?
Starfsmennt býður fram margskonar ráðgjöf og þjónustu við stofnanir
Fræðslusetrið Starfsmennt leitast við að veita ríkisstofnunum heildstæða þjónustu á sviði símenntunar og starfsþróunar til að koma til móts við breytt starfsumhverfi og auknar kröfur til starfsmanna og stjórnenda.
Starfsmennt býður því upp á Ráðgjafa að láni sem er endurgjaldslaus ráðgjöf á sviði mannauðsstjórnunar fyrir stofnanir en einnig er hægt að falast eftir farandfyrirlestri eða kalla eftir náms- og starfsráðgjöf. Einu skilyrðin fyrir þátttöku eru þau að vinnan sem fer fram innan stofnananna og þær afurðir sem verða til nýtist félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar.
Ráðgjafi að láni
Starfsmennt hefur um nokkurra ára skeið boðið upp á verkefni sem nefnist Ráðgjafi að láni og er þar unnið að eflingu markvissrar mannauðsstjórnunar innan stofnana. Hver stofnun ákveður sitt viðfangsefni í samstarfi við þann ráðgjafa sem ráðinn er til verksins. Starfsmennt hefur fengið til liðs við sig hóp mannauðs-ráðgjafa til að liðsinna þeim stofnunum sem áhuga hafa. Verkefnin sem ráðgjafinn vinnur varða öll uppbyggingu mannauðsstjórnunar og símenntunar. Þar má nefna vinnu eins og stefnumótun og gerð starfsmannastefnu eða starfslýsinga, ráðgjöf um ráðningarmál og nýliðafræðslu eða undirbúning fyrir innleiðingu starfsmannasamtala. Lögð er áhersla á að útkoma samstarfsins styðji við starfsmarkmið viðkomandi stofnana og styrki starfsmenn í starfstengdri og persónulegri hæfnisuppbyggingu. Ávinningurinn af Ráðgjafa að láni hefur verið mikill og bæði styrkt innra starf stofnana og símenntun starfsfólks.
Farandfyrirlestrar
Starfsmennt býður upp á fjölbreytt úrval farandfyrirlestra þar sem ríkisstofnanir geta valið áhugavert viðfangsefni á tíma sem þeim hentar best. Farandfyrirlestrarnir geta nýst vel á starfsdögum og fræðslufundum stofnana. Markmiðið er að efla símenntun og starfsþróun ríkisstarfsmanna með því að gefa þeim kost á utanaðkomandi sérfræðingum til að fjalla um það sem efst á baugi hverju sinni. Ríkisstofnanir geta kallað eftir þessari þjónustu að því gefnu að félagsmenn Starfsmenntar njóti fræðslunnar og að hún sé liður í hæfnisuppbyggingu þeirra.
Fræðslan getur nýst starfsfólki og stjórnendum á margan hátt. Hún getur verið þeim hvatning til að breyta og bæta, vakið upp spurningar eða skapað umræður og ný sjónarhorn. Með farandfyrirlestrunum vill Starfsmennt ýta undir þátttöku, samræðu og samstarf starfsfólks og stjórnenda um símenntun, starfsþróun og eflingu mannauðs. Hér má sjá lista yfir heiti helstu farandfyrirlestrana .
Náms- og starfsráðgjöf
Starfsmennt býður ríkisstofnunum upp á þjónustu náms- og starfsráðgjafa fyrir starfsfólk sitt. Náms- og starfsráðgjöfinni er ætlað að styðja við símenntunaráætlun einstaklinga og kynna möguleika til frekari starfsþróunar. Á þann hátt hvetur ráðgjöfin fólk til sjálfsábyrgðar og virkrar þátttöku í uppbyggingu eigin hæfni. Eitt meginmarkmið náms- og starfsráðgjafar er að efla vitund einstaklinga um hæfileika sína, viðhorf og áhuga þannig að þeir geti notið sín í námi og starfi. Ráðgjöfinni er ætlað að auðvelda fólki, á hvaða aldri sem er og við hvaða aðstæður sem er, að átta sig á styrkleikum sínum, færni og áhuga til að eiga hægara með að ákveða stefnu í námi og styrkja sig í starfi. Framkvæmd þessa verkefnis er með þeim hætti að Starfsmennt sendir náms- og starfsráðgjafa til þeirra stofnana sem eftir því óska sem vinnur síðan með starfsfólki. Sjá nánar grein í síðasta tölublaði SFR bls. 17. Janúar 1. tbl. 50. árgangur.
Vinsamlega hafið samband við skrifstofu Starfsmenntar ef þið viljið fá nánari upplýsingar eða nýta ykkur þjónustu setursins.
