Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

 

  

Símenntun á þínu færi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kynningarbæklingur um námskeið og þjónustu Starfsmenntar vorið 2010

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

febrúar 2010

Veffréttabréf febrúar 2010

Samstarf við Vinnumálastofnun um þjónustu við atvinnuleitendur

Fræðslusetrið Starfsmennt skrifaði nýverið undir samstarfssamning við Vinnumálastofnun um að taka að sér tímabundna ráðgjafaþjónustu við þá félagsmenn sem misst hafa vinnuna undanfarið. Samstarfið felur í sér að að bjóða atvinnuleitendum upp á náms- og starfsráðgjöf til að skýra stefnu í námsvali og starfsleit og tryggja þátttöku í virkniúrræðum. Á meðan atvinnuleysi varir er talið mikilvægt að efla og viðhalda starfshæfni og auka þannig möguleika á nýju starfi. Einstaklingsráðgjöfin er nú þegar hafin á skrifstofu Starfsmenntar og einnig hefur verið sett upp námsleið sem nefnist Nýr vettvangur og er ætluð atvinnuleitendum til að viða að sér þekkingu, efla samstöðu og rjúfa einangrun. Námið er einnig opið öllum þeim sem velta fyrir sér náms- og starfsvali. Um er að ræða 18 sjálfstæð 3 klst. námskeið sem sjá má á þessu yfirliti en kennt er á morgnana á þriðjudögum og fimmtudögum alla vorönnina í BSRB húsinu. Starfsmennt hefur fengið til liðs við sig færustu sérfræðinga til að fjalla um hagnýt og brýn málefni sem nýtast í atvinnuleit. Nokkur námskeið í febrúar fjalla m.a. um hollustu og heilbrigðan lífsstíl, viðbrögð við áföllum og breytingum, framsögn og gagnrýna hugsun. Námskeiðin í mars fjalla m.a. um starfsval, námsstyrki, þróun starfa, hvatningu og að landa nýju starfi. Hérna má sjá dagskrá yfir öll námskeiðin sem standa fram í maí og skrá sig til þátttöku. Einnig má panta náms- og starfsráðgjafaviðtöl í síma 525 8395 en þau eru í boði fyrir alla félagsmenn. 

Starfsmennt ríkisstarfsmanna – sérsniðin símenntun stofnana

Stærsti hluti þjónustu Starfsmenntar er uppsetning og þróun starfstengdra námsleiða sem unnar eru í samstarfi við stjórnendur og starfsmenn sem sjálfsagður hluti vinnunnar. Símenntun og öflug starfsþjálfun er komin til að vera vegna örrar þróunar og breytinga á störfum og verkefnum. Starfsmennt hefur nú sett fram efnisflokkað yfirlit yfir algengustu námskeiðin sem kennd hafa verið í gegnum tíðina og er markmiðið með þeirri flokkun að auðvelda stofnunum að setja upp eigin símenntunaráætlun til lengri tíma og auka skýrleika og yfirsýn yfir námsframboð. Starfsmennt veitir síðan alla aðstoð ef eftir því er óskað og minnir á að öll þjónusta setursins er félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu. Efnisflokkaða framsetningin kallast StarfsMennt ríkisstarfsmanna og hér má prenta út gátlista. Settar hafa verið fram grunnlýsingar á námskeiðum innan hvers efnisflokks sem má aðlaga að hverri stofnun. Flokkarnir eru: KynningarMennt, SamskiptaMennt, NýsköpunarMennt, TungumálaMennt, VinnustaðarMennt, MannauðsMenntStarfsþróunarmennt og Tölvu- og tækniMennt. Þá má einnig leita fyrirmynda að fræðslu í fjölda starfstengdra námsleiða sem sérhannaðar hafa verið fyrir stofnanir eða faghópa og kynna sér fyrirkomulag eða einstaka námsskrár. Starfsmennt hvetur stofnanir eindregið til að huga nú sem aldrei fyrr að símenntun starfsfólks til að efla faglegan grunn og framtíðarhæfni.

Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum.

Þessi 52 stunda námsleið hlaut frábærar viðtökur á síðasta ári og var vel sótt af þeim sem vilja styrkja stjórnunar- og skipulagshæfni sína. Markmiðið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við breiðara starfssvið og flóknari verkefni. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, sveigjanleika ásamt samskipta- og leiðtogahæfni. Námið nýtist einnig þeim sem undirbúa sig fyrir störf á nýjum vettvangi. Námið hefst 1. mars hjá Endurmenntun HÍ og mér má skrá sig í Reykjavík þaðan sem fjarkennt er á Akureyri, Ísafjörð, Vestmannaeyjar og Egilsstaði. Hér má sjá auglýsingu um námið.

Árangursrík kennsla

Þetta námskeið er ætlað þeim fjölmörgu kennurum og leiðbeinendum sem unnið hafa fyrir Starfsmennt eða sjá um fræðslu á vinnustað. Markmiðið er að kynna stefnur, strauma og hagnýtar kennsluaðferðir í fullorðinsfræðslu og undirstrika sérstöðu fullorðinna nemenda. Námskeiðið hefst í Reykjavík 18. feb og hér má skrá sig, en það er án endurgjalds fyrir félagsmenn og alla þá sem kennt hafa eða sinnt ráðgjafastörfum fyrir Starfsmennt.

Launaskólinn- nám fyrir launafulltrúa og starfsfólk starfsmannadeilda hjá ríki og bæ  NÝTT

Launaskólinn er nýtt 83 stunda nám sem  skipt er í 4 námsþemu og er samstarfsverkefni Starfsmenntar við fjármálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Viðtökur við náminu hafa verið gífurlega góðar sem sýnir þá fræðsluþörf sem er til staðar hjá starfsmönnum sem vinna mjög sérhæfð og flókin störf. Launafulltrúar gegna ábyrgðarmiklu starfi þar sem lítið má út af bregða vegna hagsmuna launþega um að afgreiðsla launa og ávinnsla réttinda sé framkvæmd á réttan hátt. Því er mikilvægt að þekkja sem best umhverfið og lagarammann og hafa vettvang til að deila vinnulagi og ræða verkferla og túlkanir. Þessa vorönn eru kennd tvö námsþemu sem fá má upplýsingar um hér en fullbókað er í fyrsta námskeiðið um Opinberan vinnumarkað, ráðningu, starfslok og starfsskyldur. Næsta námskeið um sama efni hefst  í Reykjavík 17. mars og er kennt í 3 daga samfleytt sem getur nýst þeim sem koma langt að. Sama nám verður einnig kennt á Ísafirði 10. maí. Námsþema um Fjarveru frá vinnu og launaðar fjarvistir hefst í Reykjavík 13. apríl en það samanstendur að 3 sjálfstæðum námskeiðum sem öll má sjá hér.

Fjarkennt tölvunám um allt land

Tölvunámskeið Starfsmenntar hafa notið mikilla vinsælda en þau eru fjarkennd gegnum netið og því aðgengileg hvar sem er. Kennari veitir aðstoð og persónulega leiðsögn m.a. í síma svo enginn þarf að hætta vegna tæknilegra hindrana. Skráningar standa nú yfir og er boðið upp á 80 stunda grunnnám sem hefst 16. feb. og 6 framhaldsnámskeið sem hvert um sig er 26 stundir í eftirtöldum forritum: Outlook, Excel, Power-Point, Publisher, myndvinnslu og Word. Það verður enginn fyrir vonbrigðum með þessi fjarkenndu tölvunámskeið ef marka má umsagnir nemenda hér. Og að venju eru öll námskeið og þjónusta Starfsmenntar félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en opin öllum.  

Almenn námskeið á næstunni:

Að tjá sig án kvíða (16 stundir)
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja ná tökum á frammistöðukvíða eða auka öryggi sitt í flutningi máls og hefst í Reykjavík 17. mars og á Akureyri 8. mars.

Upplýsinga- og skjalastjórnun (10 stundir)
Hér er fjallað um aðferðafræði upplýsinga- og skjalastjórnunar og hagnýt ráð sem gera þátttakendum kleift að þróa eða skilja betur þau kerfi sem unnið er með. Kennt er í Reykjavík og á Egilsstöðum.

Rekspölur 2 - alhliða almennt starfsnám (60 stundir) 
Markmiðið er að styrkja einstaklinginn í lífi og starfi með umfjöllun um sjálfstraust, samskiptahæfni, sköpunarkraft, framkomu og rökvísi. Einnig er fjallað um samfélagsleg málefni eins og fjölmenningu og samninga. Þetta nám hefur lagt góðan grunn að frekara námi nemenda eða þátttöku í félagsstörfum og verður það kennt samfellt í 5 heila daga og hefst í Reykjavík 13. apríl.

Framrás 1 – Ég og starfið (36 stundir)
Gott sjálfstraust og sjálfsþekking leggja grunninn að góðum samskiptum bæði í einkalífi og starfi. Hér er fjallað um árangursrík samskipti, tilfinningagreind og hvernig draga má úr streitu og andlegu álagi. Reyndir sálfræðingar kenna og styðja þátttakendur í að skoða eigin hegðun. Námið hefst hjá Endurmenntun HÍ 12. apríl.

Þjónustustjórnun - fjarkennt ( 4 stundir)
Á þessu stutta og fjarkennda námskeiði gefst þátttakendum kostur á að horfa á 6 afar fræðandi og skemmtilega myndbönd um hvað einkennir góða þjónustu og hvað ber að varast. Námskeiðið hefst 15. feb. og lýkur með heimaverkefni mánuði síðar en hér má skrá sig til leiks.