Janúar 2008

 

Tilvalið að þreyja þorrann með námskeiðum Starfsmenntar.

Framundan er fjölbreytt úrval námskeiða þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi en fullt yfirlit er að finna undir tenglunum hér til vinstri. Munið að öll námskeiðin eru félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu en opin öðrum gegn gjaldi.

Almenn námskeið

Á almennum námskeiðum Starfsmenntar er leitast við að styrkja hæfni fólks bæði í daglegu lífi og starfi. Námskeiðin eru þverfagleg og varða hvaða starfsemi sem er. Má þar nefna umfjöllun um vinnustaðarmenningu, þjónustulund, sjálfstraust, lífsleikni og tilfinningagreind auk tímastjórnunar og verkefnastjórnunar.

Stóru almennu námskeiðin sem hefjast í febrúar eru eftirfarandi:

Framrás 1 - Ég og starfið (36 kst).

Frábær námskeið og alltaf vel sótt um sjálfseflingu og betri samskipti.
Hefst í Reykjavík 4. feb. og er kennt tvisvar í viku, mánudaga og fimmtudaga frá kl. 8.30-12.30. Námið fer fram hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sjá nánar um námskeiðið og skráningu hér. 

Framrás 3 - Markviss vinnubrögð og vinnuumhverfi (40 kst)

Spennandi námskeið um stjórnun og markmiðasetningu.
Hefst á Akureyri 7. feb. og er kennt einu sinni í viku, á fimmtudögum, frá kl. 13-16. Námið fer fram hjá Símey. Sjá nánar um námskeiðið og skráningu hér. 

Rekspölur 1 (60 kst)

Almennt og alhliða starfsnám.
Hefst í Reykjavík 19. feb. og er kennt tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 8.30-12. Námið fer fram hjá Framvegis. Sjá nánar um námskeiðið og skráningu hér

Starfstengdar námsleiðir

Starfsmennt vinnur að fjölmörgum starfstengdum námsleiðum í samvinnu við starfsfólk og stjórnendur stofnana. Mikill vöxtur er í þessu námi og skemmtilegir vaxtasprotar framundan. Hér ber helst að nefna þrjár splunkunýjar námsleiðir.

Á vettvangi - fyrir læknaritara.

Þessi námsleið er reyndar ekki ný en hefur verið endurskoðuð frá grunni og í framhaldi af því er nú boðið upp á þrjár nýjar 20 stunda lotur og hefst sú fyrsta í Reykjavík þann 25. feb. og fjallar hún um mannauðsstjórnun og samskipti á vinnustað. Kennt verður hjá Endurmenntun Háskóla Íslands tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 13-15.50. Sjá nánar hér. Einnig verður þessi lota í boði á Akureyri með vorinu sjá hér.

Hæfni - fyrir heilbrigðisritara.

Þessi námsleið er glæný og hafa verið settar saman þrjár lotur sem telja samtals 62 stundir. Á þessari önn verða tvær lotur í boði í Reykjavík og hefst sú fyrsta sem fjallar um miðlun og framsetningu upplýsinga þann 12. feb. Kennt verður í húsi BSRB við Grettisgötu 89 og má sjá nánari upplýsingar um lotuna og skráningu á hana hér.

Vinnumálaskólinn - nýtt 98 stunda nám

Námsleiðin er unnin í samstarfi Vinnumálastofnunar og Fræðslusetursins Starfsmenntar og sérhönnuð fyrir starfsfólk Vinnumálastofnunar um allt land. Námskeið hefjast bæði í Reykjavík og á Sauðárkróki nú í febrúar. Sjá nánar um námskeið Vinnumálaskólans hér.

Þá eru í boði fjölmargar aðrar starfstengdar námsleiðir sem eru opnar einstaka stofnanahópum og skyldum starfsgreinum. Sjá nánar um þær hér.

Tölvunámskeið

Að vanda bjóðum við upp á hin sívinsælu tölvunámskeið í umsjón Bjartmars Kristinssonar. Þann 11. feb. hefjast tvö námskeið annarsvegar 10 vikna Grunnnámskeið (80 kst) um tölvur og tölvunotkun smellið hér fyrir frekari uppl. og skráningu og hinsvegar 3 vikna námskeið í Outlook (26 kst) smellið hér.

 

Athugið að efst til vinstri í fréttabréfinu er að finna tengil á öll eldri Fréttabréf Starfsmenntar.