Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf janúar 2009
Nýr námsvísir Starfsmenntar
Nýr námsvísir Starfsmenntar um nám og þjónustu á vorönn er kominn út og berst félagsmönnum aðildarfélaganna þessa dagana. Í bæklingnum eru kynntar nokkrar starfstengdar námsleiðir og námsskrár þeirra m.a. til að gefa öðrum stofnanahópum hugmyndir um hvernig má setja saman nám sem nýtist bæði starfsmanni og er í takt við starfsmarkmið stofnana. Ef stofnun hefur hug á að greina fræðsluþarfir starfsmanna og búa til heildstæða námsleið, þá lánar Starfsmennt ráðgjafa í þá vinnu. Allt nám á vegum Starfsmenntar er félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en einnig opið öðrum og fara skráningar fram á vef setursins. Þar geta þátttakendur einnig nálgast eigin heimasvæði þar sem finna má yfirlit yfir allt tekið nám hjá Starfsmennt, þátttökuskjöl og þjónustukönnun. Vefkerfi Starfsmenntar er því afar framsækið og í stöðugri þróun og gerir Starfsmennt kleift að setja upp nám um allt land og skömmum tíma.
Starfstengdar námsleiðir
Starfsmennt klæðskerasníður allt nám í samvinnu við stýrihópa verkefna sem í sitja fulltrúar stjórnenda og starfsmanna. Námið er síðan sett upp þegar að stofnunum hentar best. Erfiðleikar á vinnumarkaði þessa dagana og álag á stofnanir getur hamlað áframahaldandi uppbyggingu á starfstengdri færni en í þessu ástandi er brýnna er nokkru sinni fyrr að byggja starfsfólk upp til að takast á við krefjandi verkefni og hlú að þeim í starfi. Nám getur virkað sem vítamínsprauta í erfiðu árferði og aukið bæði sjálfstraust og víðsýni.
Á vorönn er í boði nýtt nám fyrir læknaritara sem nefnt er Aðstoðarmaður stjórnanda (20 kst) og nám um gagnavinnslu í rannsóknum (22 kst). Heilbrigðisriturum standa til boða þrjár 20 stunda námslotur um Starfstengda ensku, þjónustustjórnun og úrval fyrra náms. Þá er vinningshafi Starfmenntaverðlaunanna 2008-Járnsíða fyrir starfsfólk sýslumannsembætta á fullri ferð enda embættin leiðandi í fræðslu starfsfólks. Vísdómur sem ætlaður er starfsfólki héraðsdómstóla býður einnig upp á 6 námskeið úr sinni 140 stunda námsleið. Þá sinnir Starfsmennt starfsfólki Vinnumálastofnunar sérstaklega vel, þar sem þau standa í eldlínunni og fá þau Ráðgjafa að láni til að styðja við starfsfólk og handleiða.
Almenn námskeið fyrir alla
Margir námstitlar prýða þennan flokk almennra námskeiða að þessu sinni þar sem tekið er á samskiptum, stjórnun, tungumála- og tölvukunnáttu. Enskunám er í boði um allt land og er það metið til eininga á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur mannauðsstjórnunarnám (36 kst) notið mikilla vinsælda og er það fjarkennt á marga staði á landinu (Akureyri, Siglufirði, Ísafirði, Egilsstöðum og Ólafsfirði). Í Reykjavík er það kennt tvisvar hjá Endurmenntun Háskólans á önninni. Framrásarnámskeið I sem taka á uppbyggingu sjálfstraust og samskiptum á vinnustað er haldin bæði á Akureyri og í Reykjavík og Rekspalanámskeið (60 kst) sem eru stór um sig eru tvö talsins í Reykjavík, kennd þétt og dreift yfir lengri tíma. Þá verður í boði i Reykjavík nám í verkefnastjórnun þar sem unnið er með hugmynd frá því hún kviknar og þar til hún kemst af teikniborðinu, nám um framsögn og flutning máls og nám um miðlun upplýsinga. Síðast en ekki síst má telja upp fjarkennt tölvunám þar sem boðið er upp á grunnnám (80 st) og sex framhaldsnámskeið í Word, Excel, Outlook, PowerPoint, gerð kynningarefnis og myndvinnslu.
Símenntun er svar við áskorunum
Símenntun hefur nú um árabil mætt samfélagslegum áskorunum um betra mannlíf og bætt lífskjör og á það aldrei betur við en einmitt nú. Símenntun hefur verið svarið við hröðum breytingum á störfum og starfsumhverfi og sá sem hugar að uppfærslu þekkingar sinnar og þjálfunar er líklegri til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði en sá sem situr hjá. Vertu því þinn eigin smiður og láttu símenntun varða þig!
