Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf janúar 2010
Námsvísir vorannar 2010 er kominn út þar sem kynnt er fjölbreytt námsframboð Fræðslusetursins Starfsmenntar. Í boði eru fjölmörg þverfagleg námskeið sem efla starfshæfni á sviði tungumála, stjórnunar, samskipta og leiðtogafræða. Finna má bæði stutt námskeið og lengri námsleiðir sem dýpka þá þekkingu og hæfni sem fyrir er og styrkja stöðu starfsmanna. Starfsmennt setur líka upp símenntunarkerfi með stofnunum og faghópum og hér má sjá þá fjölmörgu skóla og sérhannaðar námsleiðir sem í boði eru á vorönn. Að venju er öll þjónusta Starfsmenntar félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en einnig aðgengileg öðrum gegn gjaldi.
Talsmaður lærdóms veitir jafningjum forystu og leiðbeinir NÝTT
Hér er um 72 stunda samfellt nám að ræða sem ætlað er þeim sem áhuga hafa á að taka þátt í innleiðingu breytinga og efla menningu lærdóms á vinnustað. Námið hentar þeim sem hafa sýnt leiðtogafærni, leikni í samskiptum og geta hvatt til náms meðal jafningja. Hér er lögð áhersla á þátttöku starfsmanna í að þróa, breyta og skapa nýtt vinnulag með því að auka hlut starfstengdrar símenntunar í samvinnu við stjórnendur. Námið hefst 8. febrúar og er kennt í Endurmenntun Háskóla Íslands og hér má skrá sig til leiks og skoða kynningarplagg. Námsleiðin samanstendur af 15 spennandi námsþáttum sem fjalla um nýtt verklag og hugsun á vinnustað:
Starfsmaðurinn og breytingar - Vellíðan á vinnustað -Að vera talsmaður lærdóms á vinnustað- Viðtalstækni - Samningatækni - Að vinna með jafningjum og veita forystu - Framsetning upplýsinga og að skrifa góða íslensku - Að geta talað máli sínu - Lærdómsstofnun og námsmenning - Að þekkja námsleiðir og menntaúrræði - Að hvetja til náms og efla áhuga -Meistari og nýliði - Þekkingarstjórnun - Þátttökustjórnun
Launaskólinn- nám fyrir launafulltrúa og starfsfólk starfsmannadeilda hjá ríki og bæ NÝTT
Launaskólinn er nýtt nám fyrir launafulltrúa og þá sem koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og bæ. Námið var hannað í samstarfi við fjármálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Launafulltrúar gegna ábyrgðarmiklu starfi þar sem lítið má út af bregða vegna hagsmuna launþega um að afgreiðsla launa og ávinnsla réttinda sé framkvæmd á réttan hátt. Því er mikilvægt að þekkja sem best umhverfið og lagarammann og hafa vettvang til að deila vinnulagi og ræða verkferla og túlkanir. Launaskólinn svarar einnig aðkallandi þörf fyrir grunnmenntun á þessu sviði. Námsleiðin er alls 83 stundir og skipt upp í 4 þemu sem kennd verða allt árið 2010. Bæði er um að ræða grunnnám og valnámskeið. Hér má fá upplýsingar um öll námskeiðin og skrá sig. Fyrsta námskeiðið hefst 9.feb. hjá Endurmenntun HÍ en vegna mikillar eftirspurnar verður námið einnig sett upp víðsvegar um land og auglýst síðar.
Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum
Þessi 52 stunda námsleið hlaut frábærar viðtökur á síðasta ári og var vel sótt af þeim sem vilja styrkja stjórnunar- og skipulagshæfni sína. Markmiðið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við breiðara starfssvið og flóknari verkefni. Hér er því verið að treysta grunn faglegra og úrræðagóðra liðsmanna. Námið nýtist einnig þeim sem undirbúa sig fyrir störf á nýjum vettvangi. Námið hefst 1. mars og mér má skrá sig í Reykjavík þaðan sem fjarkennt er á Akureyri, Ísafjörð og Egilsstaði. Hér má sjá auglýsingu um námið.
Námskeið fyrir atvinnuleitendur: Nýr vettvangur – breytt starf NÝTT
Starfsmennt býður þeim félagsmönnum BSRB sem misst hafa vinnuna upp á röð námskeiða til að viðhalda virkni í atvinnuleit og takast á við afleiðingar atvinnuleysis. Um er að ræða 18 sjálfstæð námskeið sem haldin verða í BSRB húsinu á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10-13 alla vorönnina Markmiðið með náminu er að styrkja stöðu þátttakenda á vinnumarkaði með því að auka sjálfsþekkingu, starfshæfni og námsáhuga. Margt spennandi er í boði og vonandi nýta félagsmenn BSRB sér þetta einstæða tækifæri til að hittast, fræðast og styðja hvert annað. Boðið verður upp á léttan hádegisverð en hér má sjá yfirlit yfir öll námskeiðin og hér má skrá sig til leiks. Fyrsta námskeiðið hefst 2. febrúar. Náms- og starfsráðgjafar Starfsmenntar veita allar nánari upplýsingar og bjóða upp á viðtöl til að marka stefnu í námi og starfsleit.
Annað hagnýtt starfsnám á næstunni:
Mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu (36 stundir) hefst 26. janúar á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Siglufirði og Selfossi.
Árangursrík kennsla (20 stundir) fyrir leiðbeinendur og ráðgjafa í fullorðinsfræðslu hefst í Reykjavík 18. feb.
Enska fyrir atvinnulífið (24 stundir) hefst um allt land í lok janúar. Skráning hér.
Skrifstofubraut til eininga hefst um allt land 15. janúar
Fjarkennt tölvunám – Sjö námskeið í boði um allt land og hefst það fyrsta 9. feb.
ll
Símenntun - á þínu færi
