Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Námskeið
Lok á frábæru Framrásarnámskeið
Þann 1. júní sl. lauk Framrás 3 við frábærar undirtektir þátttakenda.
Útskrift Félagsliða og Hjúkrunar - og mótttökuritara
Laugardaginn 20. maí sl. luku Félagsliðar og Hjúkrunar - og mótttökuritarar námi með starfi og var haldið upp á það með pompi og prakt. 23 Hjúkrunar - og mótttökuritarar útskrifuðust, þar af 19 af svokallaðri námsbrú sem er skipulögð fyrir þá sem starfa við mótttöku. Brúin felur í sér styttingu náms úr 70 einingum niður í 20 einingar að uppfylltum tilteknum skilyrðum; 1) Að nemendur hafi náð náð 22 ára aldri, 2)að nemendur hafi lágmark 4 ára starfsreynslu sem hjúkrunar - og mótttökuritarar og 3) að nemendur hafi lokið 120-140 tíma sérhæfðri fræðslu sem nýtist í starfi eða starfstengdum námskeiðum stéttarfélags og / eða stofnunar geta stytt námstímann með því að fara brúna. Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á námið í samvinnu við Fjölbrautarskólann við Ármúla.
13 nemendur útskrifuðust sem félagsliðar laugardaginn 20. maí sl. allir af svokallaðri námsbrú fyrir verðandi félagsliða. Brúin felur í sér styttingu á námi félagsliða, sem í heildina er 81 eining, niður í 32 einingar á grundvelli eftirfarandi skilyrða; 1) að nemendi hafi náð 22 ára aldri, 2) að nemandi hafi að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu og starfar enn við heimaþjónustu eða við umönnun aldraðra, sjúkra eða fatlaðra og 3) að nemandi hafi lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga, sveitarfélaga eða annarra aðila. Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á námið í samvinnu við Borgarholtsskóla.