Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf júní 2009
Nám fyrir millistjórnendur
Skrifstofubraut í fjarnámi
Næsta haust verður áfram boðið upp á nám á skrifstofubraut í samstarfi við MK sem telur alls 33 einingar sem teknar eru á 3 önnum hið minnsta. Hér er um úrvals starfsnám að ræða þar sem Starfsmennt hefur náð afar góðum samningum fyrir félagsmenn aðildarfélaganna. Skrifstofubrautin er ætluð skrifstofufólki í margvíslegum störfum og miðar að því að efla almenna og sérhæfða færni í íslensku, ensku, bókhaldi, rekstri, skipulagi og stýringu verkefna. Hægt er að velja um skrifstofubraut I í 3 annir og einnig er hægt að óska eftir raunfærnimati og hefja nám þar sem þekkingu og reynslu starfsmanna sleppir. Námið hefst 11. sept. og rennur umsóknarfrestur út 19. júní. Hér er hægt að skrá sig á 1. önn , 2. önn eða óska eftir mati.Mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu
Starfsmennt býður upp á nám í mannauðsstjórnun til að koma til móts við fræðsluþarfir hins ört vaxandi hóps millistjórnenda hjá ríkinu. Hér er um að ræða starfsfólk sem axlað hefur aukna ábyrgð í starfi sínu og sinnir flóknari verkefnum. Námið er sniðið að starfsmannastjórum og verkefnastjórum í starfsmannahaldi og deildarstjórum eða fræðslufulltrúum stofnana. Þetta rúmlega 30 stunda nám hefur hlotið frábærar viðtökur og í haust verður það í boði um allt land. Markmiðið er að kenna aðferðir til að virkja mannauðinn á hverjum vinnustað út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana Námið verður haldið í nóvember í Reykjavík hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og í samvinnu við Háskólann á Akureyri sem fjarvarpar á Selfoss, Ísafjörð, Egilsstaði og Siglufjörð. Fjarnámið hefst 8. september og er einingabært fyrir þá sem kjósa að þreyta próf.Þjónustustjórnun
Góð þjónusta skiptir stofnanir miklu máli hvað varðar skilvirka starfsemi og ímynd bæði inn á við sem og út á við. Það er gaman að vinna hjá stofnun sem leggur áherslu á góða þjónustu og jákvætt viðmót starfsmanna gagnvart viðskiptavinum og samstarfsfélögum. Það að vilja veita aðstoð og að greiða leið skjólstæðinga smitar út frá sér og eykur líkur á betri starfsanda og hollustu. Starfsmennt býður upp 20 stunda námskeið um hvernig gera má góða þjónustu enn betri og hvað ber að varast, með lýsandi og skemmtilegum dæmum úr raunveruleikanum. M.a. verður farið yfir myndband sem hlotið hefur frábærar viðtökur. Fjallað verður um fimm grunnþætti þjónustu eins og móttöku þjónustuþega, símsvörum og upplýsingamiðlun og ráð veitt til að takast á við erfið samskipti eins og reiði og pirring. Kennt er í Reykjavík í nokkra eftirmiðdaga og hér má skrá sig til þátttöku og fá nánari upplýsingar. Hægt er að kalla eftir þessu námskeiði út á land m.a. í fjarkennslu.Verkefnastjórnun
Starfsmennt býður upp á 24 stunda námskeið um verkefnastjórnun þar sem farið er í hugmyndafræði og helstu aðferðir þessa vinsæla verklags. Þetta námskeið hefur verið lengt frá því sem áður var og er meiri áhersla lögð á uppsetningu og eftirfylgd verkefnahugmynda. Farið er í mótun hugmyndar, markmiðssetningu, framkvæmdaáætlun, verkáætlun og tímaáætlun ásamt kostnaðargreiningu. Þá fær samskipta- og upplýsingaþátturinn aukið rými þar sem fjallað er um hlutverk og skyldur verkefnastjóra ásamt kynningu á niðurstöðum. Námið verður haldið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands með möguleika á fjarkennslu í samstarfi við háskóla og símenntunarmiðstöðvar. Fjarkennt verður til Akureyrar, Egilsstaða, Ísafjarðar og á Selfoss.Upplýsinga- og skjalastjórnun
Starfsmennt býður upp á 10 stunda námskeið í Upplýsinga- og skjalastjórnun sem ætlað er þeim sem vinna við skjalavörslu, vistun gagna og málefnaskrár. Meginviðfangsefni námskeiðs er að kynna fyrir þátttakendum hugmyndafræði, tilgang og helstu aðferðir upplýsinga- og skjalastjórnunar. Farið verður í regluverkið, gæðastaðla, áætlanagerð og skjalaflokkunarkerfi. Lögð verður áhersla á skipulag málasafna, bókhaldsgagna, ljósmynda, teikninga og kynningarefnis- á pappír og rafrænu formi. Sýnt verður fram á hvernig hægt er að nota ýmis konar tölvukerfi við skipulagningu gagna, skráningu, vistun og endurheimt. Kennt verður hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og hér má skrá sig til leiks og fá nánari upplýsingar. Möguleiki er á fjarkennslu til stofnana á landsbyggðinni ef eftir því er óskað.Starfsnám stuðningsfulltrúa – 160 stunda grunnnám
Starfsnám stuðningsfulltrúa er öflugt og vinsælt nám sem Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á enda eru margir möguleikar á framhaldsnámi að því loknu. Þátttakendur hafa bæði nýtt námið sem faglegan grunn í eigin starfi eða lokið námi sem félagsliðar síðar meir. Grunnnámið er alls 160 stundir og hefst það 31. ágúst nk. þar sem kennt er á morgnana aðra hverja viku til 11. des. Markmið námsins er að auka þekkingu og færni þeirra starfsmanna sem starfa í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka. Hér má nálgast stundaskrá, námslýsingu og allar frekari upplýsingar en sækja þarf um námið fyrir 30. júni nk.
Hátíðleg stund á útskrift stuðningsfulltrúa
Starfsfólk Fræðslusetursins Starfsmenntar veitir allar nánari upplýsingar og tekur á móti óskum um uppsetningu fjarnáms.