Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf júní 2010
Fræðslusetrið Starfsmennt kynnir tvær nýjar og hagnýtar námsleiðir
sem haldnar verða á haustönn og er ætlað að mæta auknum kröfum sem gerðar eru til starfsmanna. Námsleiðirnar taka á ýmsum framsæknum og spennandi námsþáttum sem varða stjórnun, samskipti, sköpun og eflingu vinnustaðarmenningar. Þar sem hér er um lengra nám að ræða þá hvetjum við áhugasama til að taka frá tíma næsta haust til að geta sótt námið.
Talsmaður breytinga
Íslenskur vinnumarkaður gengur nú í gegnum mikið umbrotaskeið og breytingar á störfum og stofnunum hafa verið boðaðar. Vanda þarf til verka þegar ráðist er í breytingar og bæði huga að sálfræðilega þættinum sem og raunverulegum ávinningi. Starfsmennt hefur hannað 72 stunda námsleið sem ætlað er að styðja starfsfólk og stjórnendur við innleiðingu breytinga og auka þannig þátttöku allra sem málið varðar. Aukin menntun og þjálfun til að takast á við breyttar aðstæður ásamt greiðu flæði upplýsinga getur skipt öllu máli um hvernig til tekst. Þessi námsleið hentar þeim sem hafa sýnt leiðtogafærni, leikni í samskiptum og kynningum eða hafa áhuga á símenntun og hæfnisuppbyggingu á vinnustað. Í náminu er lögð áhersla á að þróa, breyta og skapa nýtt vinnulag í breiðu samstarfi. Námið hefst 9. nóvember og er kennt í Endurmenntun Háskóla Íslands alla þriðjudagseftirmiðdaga til 22. mars. Námið er félagsmönnum aðildarfélaganna að kostnaðarlausu en opið öllum öðrum hvort sem að þeir starfa hjá stofnunum eða fyrirtækjum. Hér má skrá sig til leiks og fá allar nánari upplýsingar ásamt því að skoða námsskrá. Námsleiðin samanstendur af 15 spennandi námsþáttum sem fjalla um nýtt verklag og hugsun á vinnustað:
Starfsmaðurinn og breytingar ◊ Vellíðan á vinnustað ◊ Að vera talsmaður breytinga á vinnustað ◊ Viðtalstækni ◊ Samningatækni ◊ Að vinna með jafningjum og veita forystu ◊ Framsetning upplýsinga og að skrifa góða íslensku ◊ Að geta talað máli sínu ◊ Lærdómsstofnun og námsmenning ◊ Að þekkja námsleiðir og menntaúrræði ◊ Að hvetja til náms og efla áhuga ◊ Meistari og nýliði ◊ Þekkingarstjórnun ◊ Þátttökustjórnun
Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum
Þessi 52 stunda námsleið hlaut frábærar viðtökur á síðasta ári og var vel sótt af þeim sem vilja styrkja stjórnunar- og skipulagshæfni sína. Markmiðið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við breiðara starfssvið og flóknari verkefni. Hér er því verið að treysta grunn faglegra og úrræðagóðra liðsmanna sem halda utan um marga þræði á vinnustað. Námið nýtist einnig þeim hyggja á nýjan starfsvettvang og vilja styrkja grunninn. Námið hefst 11. október og er kennt hjá Endurmenntun Háskóla Íslands þaðan sem fjarkennt er á Akureyri, Ísafjörð og Egilsstaði. Hér má sjá auglýsingu um námið, námsskrá þess og helstu námsþætti:
Skilvirkir fundir og viðburðastjórnun ◊ Uppsetning og röðun tækja ◊ Rafræn skipulagning ◊ Samskipti á vinnustað ◊ Leiðtogahæfni ◊ Líkamsbeiting og álagsstjórnun ◊ Þjónustustjórnun ◊ Gæðastjórnun ◊ Viðhorf og virkni í breytingum ◊ Hugkortagerð og áætlanir ◊ Upplýsinga-og skjalastjórnun ◊ Drifkraftur í teymisvinnu