Maí 2007


Nám með vinnu næsta haust?

Opnað hefur verið fyrir skráningar á stærri námsleiðir og námsbrautir Starfsmenntar sem kenndar verða næsta haust

Fræðslusetrið Starfsmennt hefur nú opnað fyrir skráningar á stærri námsleiðir sem verða í boði næsta haust. Hér er um að ræða svokallað brúarnám sem ætlað er starfsmönnum með langa starfsreynslu og tiltekna menntun að baki. Brúarnámið er styttri útgáfa á hefðbundinni námsbraut þar sem metin er raunfærni fólks og sú reynsla og þekking sem fólk hefur aflað sér í gegnum störf sín og verkefni. Nám af þessum toga þarf að skipuleggja með góðum fyrirvara því það er bæði krefjandi og tímafrekt en gefur líka góð réttindi. Næsta haust verða í boði brú verðandi félagsliða og brú fyrir heilbrigðisritara og eru þessar námsleiðir félagsmönnum aðildarfélaganna að kostnaðarlausu, hvar sem er á landinu.

Brú fyrir verðandi félagsliða

Félagsliðabrúin er samstarfsverkefni Starfsmenntar og Borgarholtsskóla fyrir þá starfsmenn sem vinna við heimaþjónustu, umönnun fatlaðra, aldraðra eða sjúkra. Inntökuskilyrði er að hafa a.m.k. 3 ára starfsreynslu og 220 stunda starfstengt nám að baki. Námið varir í 2 ár samhliða starfi og geta væntanlegir þátttakendur valið um tvenns konar fyrirkomulag. Fyrri leiðin er hefðbundið nám þar sem kennsla fer fram þrjá eftirmiðdaga á viku en hin leiðin er svokallað dreifnám þar sem nemendur vinna afar sjálfstætt hvar sem er á landinu með aðstoð tölvutækninnar. Sá hópur hittist þó þrisvar á önn í bænum.  Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Starfsmenntar ásamt umsóknareyðublaði sem senda á í Borgarholtsskóla fyrir 1. júní næstkomandi.

Brú fyrir verðandi heilbrigðisritara

Þessi námsleið er  í boði Starfsmenntar og Fjölbrautaskólans við Ármúla og varir í 2 annir. Forkröfur inn í námið eru að hafa 4 ára starfsreynslu að baki hið minnsta sem hjúkrunar- og móttökuritari og hafa lokið 120 stundum í  sérhæfðri fræðslu.  Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má nálgast á heimsíðu Starfsmenntar og ber að skila umsóknum til Fjölbrautskólans við Ármúla fyrir 1. júní nk.

Starfsnám stuðningsfulltrúa

Að venju verður boðið upp á grunnám stuðningsfulltrúa á höfuðborgarsvæðinu næsta haust, alls 160 stundir og haldið verður áfram með 80 stunda framhaldsnámskeið. Þessi námskeið eru afar metnaðarfull og leggja góðan grunn að frekari starfsþróun starfsmanna innan heilbrigðis- og félagsmálageirans. Opið er fyrir skráningar á vef Starfsmenntar og viljum við eindregið hvetja þá sem vilja styrkja starfsvettvang sinn og fagmennsku að skrá sig til þátttöku og gera viðeigandi ráðstafanir til að geta tekist á við nám af þessari stærðargráðu.

Starfsnám – Grunnur:
Námið verður kennt í Reykjavík hjá Framvegis, Síðumúla 6, og hefst 17. september. Kennt verður á morgnana aðra hverja viku

Starfsnám – Framhald:
Námið hefst 8.október í Reykjavík og verður kennt aðra hvora viku fram undir jól

Stoð – 40 stunda nám

Starfsmennt hefur einnig unnið með Svæðisskrifstofum um allt land að hönnun 40 stunda námskerfis fyrir starfsmenn til að auka möguleika þeirra til símenntunar og koma til móts við gerðan stofnanasaming. Framkvæmd þess náms sem hlotið hefur heitið STOÐ mun liggja fyrir á haustdögum en námsvísi má sjá á heimasíðu Starfsmenntar. Námskerfið samanstendur af 6 misstórum námsþáttum sem unnir voru eftir þarfagreiningu með starfsfólki svæðisskrifstofa og verða þeir kenndir um allt land næsta haust.

Mat á námskeiðum

Mat á námskeiðum stendur nú yfir þar sem teknar eru saman niðurstöður þeirra þjónustukannana sem þátttakendur á námskeiðum okkar hafa fyllt út að þeim loknum. Eru því kennarar okkar og fræðsluhaldarar að fá einkunnir fyrir frammistöðu sína í vetur. Þessar kannanir eru mikilvægur þáttur í því að bæta námskeiðahald Fræðslusetursins Starfsmenntar og aðbúnað þátttakenda á námskeiðum. Rödd þeirra sem njóta þjónustu Fræðslusetursins skiptir máli.