Yfirlit námsleiða og þjónustu
Símenntun ...
..opnar þér nýjar leiðir
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf maí 2009
Starfstengt nám í haust – hvað hentar þinni starfsþróun?
Þessa dagana er unnið hörðum höndum hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt við að setja upp nám fyrir haustið. Starfsmennt býður upp á bæði lengra og styttra nám í samstarfi við fræðsluaðila víðsvegar um land og fer fræðslan fram þar sem best hentar hverju sinni. Kennt er því hjá símenntunarmiðstöðvum, framhaldsskólum, háskólum eða inni á stofnunum. Stýrihópar sem endurspegla jafnt hlutfall starfsmanna og stjórnenda ákveða fyrirkomulag fræðslunnar og gæta þess að hún sé í takt við þarfir stofnana.Nú hefur verið opnað fyrir skráningar í lengra nám sem skipuleggja þarf með góðum fyrirvara eða sækja um í tíma. Sem fyrr eru öll námskeið á vegum Starfsmenntar félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en einnig oftast opin öðrum sem þá greiða þátttökugjöld.
Skrifstofubraut í fjarnámi
Skrifstofubrautin er ætluð skrifstofufólki í margvíslegum störfum og miðar að því að efla almenna og sérhæfða færni í íslensku, ensku, bókhaldi, skipulagi og stýringu verkefna. Námið er haldið í samstarfi við MK og metið til eininga. Hægt er að velja um skrifstofubraut I í 3 annir og einnig er hægt að óska eftir raunfærnimati inn í námið. Námið hefst 11. sept. og rennur umsóknarfrestur út 19. júní. Hér er má skrá sig á 1 önn eða 2 önn eða óska eftir mati.Brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara
Starfsmennt hefur samið við Fjölbrautaskólann við Ármúla um brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara. Brúin felur í sér mat á símenntun og starfsreynslu sem styttir námið úr 80 einingum niður í 35 einingar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Námið varir í 3 annir og er boðið upp á námskeið í dagskóla (sjá umsóknareyðublað) eða í fjarnámi. Umsóknarfrestur er til 11. júni og hér má nálgast rafræn umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar.Starfsnám stuðningsfulltrúa
Grunnnámið sem er 160 kst hefst í Reykjavík 31. ágúst og er kennt er á morgnana aðra hverja viku til 11. des. Markmið námsins er að auka þekkingu og færni þeirra starfsmanna sem starfa í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka. Sækja þarf um námið fyrir 30. júní hér.
Framhaldsnámið er ætlað þeim sem lokið hafa grunnnáminu. Um er að ræða 80 stunda nám sem hefst 5. okt. í Reykjavík. Hér má skrá sig til leiks og nálgast námsskrá og stundatöflu.
Félagsliðabrú fyrir verðandi félagsliða
Starfsmennt býður upp á brúarnám fyrir verðandi félagsliða í samstarfi við Borgarholtsskóla. Brúin felur í sér mat á námi félagsliðabrautar á grundvelli skilyrða sem sjá má hér. Um er að ræða staðbundið nám og dreifnám sem er fjarkennt að mestu leyti. Sækja verður um námið á umsóknareyðublaði sem nálgast má hér fyrir 12. júní.Enska fyrir atvinnulífið
Eitt af vinsælli námskeiðum hjá Starfsmennt eru enskunámskeið þar sem ýmist er raðað í hópa eftir getu eða áhugasviði. Markmiðið með náminu er að auka orðaforða og öryggi nemenda í að tjá sig. Námið er í boði um allt land s.s. á Selfossi, Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum en í Reykjavík er hægt að velja um annarsvegar geturaðað styttra nám hjá Námsflokkum Hafnarfjarðar eða hinsvegar einingabært nám í MK.Mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu
Þetta rúmlega 30 stunda nám hefur hlotið frábærar viðtökur hjá ríkisstarfsmönnum og í haust verður það í boði um allt land. Markmiðið er að kenna aðferðir til að virkja mannauðinn á hverjum vinnustað út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana Námið er sniðið að þörfum millistjórnenda s.s. starfsmannastjóra, starfsmanna í starfsmannahaldi, verkefnastjóra og fræðslufulltrúa stofnana. Námið verður haldið í nóvember í Reykjavík hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og í samvinnu við Háskólann á Akureyri sem fjarvarpar á Selfoss, Ísafjörð, Egilsstaði og Siglufjörð. Fjarnámið hefst 8. september og er einingabært fyrir þá sem kjósa að þreyta próf.Fjarkennt tölvunám næsta haust
Tölvunámskeið Starfsmenntar eru fjarkennd og geta þátttakendur því ráðið hraðanum og hvenær lært er. Kennari námskeiðsins veitir persónulega ráðgjöf í síma sem opinn er alla daga. Boðið er uppá 80 stunda grunnnám þar sem bæði er kennt á Office 2003 og Office 20007. Sex framhaldsnámskeið eru einnig í boði sem hvert um sig er 26 stundir: Outlook, Excel, Power-Point, Publisher, myndvinnsla og Word.Rekspölur 1 og Framrás 1
Af stærri almennum námskeiðum sem kennd verða haustið 2009 er Rekspölur I (60 kst) þar sem fjallað er um tengsl einstaklings, vinnu og samfélags og Framrás I sem tekur á gæði samskipta út frá sjálfsskoðun og eflingu sjálfsmyndar. Bæði þessi námskeið miða að því að styrkja starfsmenn í starfi, efla þjónustu stofnana og eru afar hagnýt fyrir fólk sem vinnur í framlínustörfum.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin, tímasetningar og dagsetningar má finna á skráningarsíðum og hjá starfskonum Starfsmenntar. Þá geta stofnanir kallað eftir námi fyrir sitt starfsfólk t.d. úr starfstengdum námsleiðum eða óskað eftir farandfyrirlesara á vinnustað eða Ráðgjafa að láni.