Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

 

 

 

      

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Veffréttabréf maí 2010

Starfsnám haustið 2010? Skráðu þig í júní

Námsframboð haustsins 2010 er að líta dagsins ljós á vefnum þessa dagana hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt. Boðið er upp á bæði lengri námsleiðir og styttri námskeið í samstarfi við fræðsluaðila, símenntunarmiðstöðvar og framhaldsskóla víðsvegar um land. Í flest allt lengra nám þarf að skrá sig til þátttöku í júní svo bæði kennarar og nemendur geti skipulagt tíma sinn með góðum fyrirvara. Námsleiðir Starfsmenntar eru hluti af vinnu fólks og ætlað að efla starfshæfni þess og koma til móts við þær breytingar sem eru að verða á starfsumhverfi og störfum. Þátttaka í námi er því ekki tilviljunarkennd heldur samstarfsverkefni starfsmanna og stjórnenda. Þá henta mörg námskeiða Starfsmenntar atvinnuleitendum og þeim sem standa höllum fæti á vinnumarkaði mjög vel. Fræðsla Starfsmenntar fer einnig fram inni á vinnustöðum og geta stofnanir valið úr fjölda fyrirlestra til að koma til móts við fjölbreyttar fræðsluþarfir starfsmanna. Nú er einnig lag fyrir stofnanir að huga að starfstengdri fræðslu haustsins og skoða t.d. staka farandfyrirlestra eða auglýsingu um mannauðseflingu og ráðgjöf til stofnana. Sem fyrr eru öll námskeið á vegum Starfsmenntar félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en einnig oftast opin öðrum sem þá greiða þátttökugjöld.

Skrifstofubraut í fjarnámi

Skrifstofubrautin er ætluð skrifstofufólki í margvíslegum störfum og miðar að því að efla almenna og sérhæfða færni í íslensku, ensku, bókhaldi, skipulagi og stýringu verkefna. Námið er haldið í samstarfi við MK og metið til eininga. Hægt er að velja um skrifstofubraut I eða skrifstofubraut II og einnig er hægt að óska eftir raunfærnimati inn í námið. Námið hefst 27. ágúst og rennur umsóknarfrestur út 15. júní. Hér er má skrá sig á Skrifstofubraut I 1 önn eða 3 önn eða Skrifstofubraut II, 3 önn eða óska eftir mati. Þá verður staðbundið nám einnig í boði fyrir þá sem geta sótt nám á daginn.

Brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara

Starfsmennt hefur samið við Fjölbrautaskólann við Ármúla um brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara. Brúin felur í sér mat á símenntun og starfsreynslu sem styttir námið úr 80 einingum niður í 35 einingar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Námið varir í 3 annir og er boðið upp á námskeið í dagskóla (sjá umsóknareyðublað) eða í fjarnámi. Umsóknarfrestur er til 11. júní og hér má nálgast rafræn umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar.

Starfsnám stuðningsfulltrúa

Starfsnám stuðningsfulltrúa grunn- og framhaldsnám hefur notið mikilla vinsælda enda gefur það þátttakendum færi á faglegum starfsgrunni og opnar möguleika á frekara nám á heilbrigðis- og félagssviði. Grunnnámið sem er 160 kst hefst í Reykjavík 6. sept. og er kennt er á morgnana aðra hverja viku til 10. des. Markmið námsins er að auka þekkingu og færni þeirra starfsmanna sem starfa í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka.  Sækja þarf um námið fyrir 27. ágúst. Hér má einnig nálgast námsskrá og stundatöflu. Framhaldsnámið er alls 80 stundir og er ætlað þeim sem lokið hafa grunnnáminu. Tvö námskeið verða í boði haustið 2010. Fyrra námskeiðið verður kennt í hverri viku og hefst 13. sept. en síðara námið verður kennt aðra hverja viku og hefst 11. okt. í Reykjavík og fjarkennt til Ísafjarðar. Hér má nálgast námsskrá og stundatöflur fyrir fyrra og seinna námið. Þetta nám hefur undanfarið verið vel nýtt af þeim atvinnuleitendum sem hafa áhuga á þessum starfsvettvangi og vilja mennta sig til nýrra starfa. Enda er leiðin greið fyrir reynda starfsmenn í félagsliðabrú.  

Félagsliðabrú fyrir verðandi félagsliða

Starfsmennt býður upp á brúarnám fyrir verðandi félagsliða í samstarfi við Borgarholtsskóla. Brúin felur í sér mat á námi félagsliðabrautar á grundvelli skilyrða sem sjá má hér. Um er að ræða staðbundið nám og dreifnám sem er fjarkennt að mestu leyti. Sækja verður um námið á umsóknareyðublaði sem nálgast má hér fyrir 1. júní.

Launaskólinn

Launaskólinn er nýtt nám fyrir launafulltrúa og þá sem koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og bæ. Námsleiðin hentar einnig stjórnendum ofl. sem vilja efla þekkingu sína á þessu sviði. Námsleiðin er alls 83 stundir og er skipt upp í 4 þemu sem öll verða kennd haustið 2010. Þema I fjallar um Opinberan vinnumarkað, ráðningar, starfslok og starfsskyldur og verður það kennt í september. Þema II fjallar um Vinnutíma og afgreiðslu launa og er kennt í október. Því þema er skipt í eitt grunnnámskeið og tvö valnámskeið: Vaktavinna, bakvaktir og afbrigðilegur vinnutími og Starfsfólk skóla - sérstakir launaútreikningar. Þema III fjallar um Fjarveru frá vinnu - launaðar fjarvistir og er kennt í nóvember. Þema IV fjallar um Mannauð og hæfni og rekur lestina í desember. Hér má sjá námsskrá og skrá sig til leiks. Allt námið fer fram hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og greiðir Starfsmennt ferða- og dvalarstyrki til sinna félagsmanna skv. reglum setursins. 

Rekspölur 1 og Framrás 1  

Af stærri almennum námskeiðum sem kennd verða haustið 2010 er Rekspölur I (60 kst) þar sem fjallað er um tengsl einstaklings, vinnu og samfélags og Framrás I sem tekur á gæðum samskipta út frá sjálfsskoðun og eflingu sjálfsmyndar. Bæði þessi námskeið miða að því að styrkja starfsmenn í starfi, efla þjónustu stofnana og eru afar hagnýt fyrir fólk sem vinnur í framlínustörfum. Hér er um tvö spennandi námskeið að ræða sem taka annarsvegar á samfélagslegum málefnum og hinsvegar sjálfsmynd og sjálfstrausti og eru þau í höndum færustu sérfræðinga eins og sjá má á upplýsinga- og skráningarsíðum Rekspalar og Framrásar.  

Nám fyrir starfsmenn í stjórnunareiningum

Þetta 52 stunda námi hefur verið vinsælt og fengið frábæra dóma þátttakenda. Markmið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við breiðara starfssvið og flóknari verkefni sem góðir liðsmenn. Miklu skiptir að stjórnendur geti falið starfsfólki að fullvinna verkefni og tryggja góða yfirsýn. Hér er stefnt að því að treysta grunn faglegra og úrræðagóðra starfsmanna með því að veita þeim innsýn í stjórnunarfræði og treysta skipulags- og samstarfshæfni. Námið nýtist einnig þeim sem undirbúa sig fyrir störf á nýjum vettvangi. Hér er hægt skrá sig í námið í Reykjavík og í fjarnám á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum. Hér má finna nánari lýsingu á náminu sem hefst 11. október.  

Þjónustustjórnun

Viltu vita hvað einkennir góða þjónustu og hvernig sú slæma birtist? Og viltu kanna hvað þjónustustigið hefur með vellíðan á vinnustað að gera? Tvö námskeið um þetta mikilvæga viðfangsefni eru haldin á næstunni. Stutt 6 stunda fjarkennt nám hefst 20. sept. fyrir starfsmenn um allt land og ítarlegra 20 stunda námskeið sem hefst í Reykjavík 5. nóv.

Fjarkennt tölvunám næsta haust

Tölvunámskeið Starfsmenntar eru fjarkennd og geta þátttakendur því ráðið hraðanum og hvenær lært er. Kennari námskeiðsins veitir persónulega ráðgjöf í síma sem opinn er alla daga. Boðið er uppá 80 stunda grunnnám þar sem kennt er á Office 20007 og alla grunnþætti tölvuvinnslu. Þetta námskeið hentar byrjendum og þeim sem kunna  lítillega á ýmis forrit en eru óöruggir með margar aðgerðir. Átta framhaldsnámskeið eru einnig í boði sem hvert um sig er 26 stundir en þar eru kynntar sértækari aðgerðir innan einstaka forrita. Um er að ræða námskeiðið: Outlook, Excel, Power-Point, Publisher, myndvinnsla og Word, ásamt tveimur nýjum og spennandi námskeiðum um möguleika ókeypis hugbúnaðar: Fjársjóður Goggle og Hugarkort.

Ráðgjafi að láni til stofnana

Nám og þjónusta Starfsmenntar s.s. Ráðgjafi að láni miðar að því að efla starfsfólk til að takast á við síbreytilegt umhverfi og aðstoða stofnanir við að koma þessum mikilvæga málaflokki í góðan farveg. Tilgangurinn er að gera stofnanir ríkisins að enn betri vinnustöðum og efla hæfni og líðan starfsfólks sem vinna mikilsverð störf á umbrotatímum. Hátt á sjötta tug stofnana hafa kallað eftir ráðgjafanum og er það til marks um gæði ráðgjafarinnar að algengt er að óskað sé eftir framhaldsvinnu hans til að leggja enn betri grunn að markvissri mannauðsstjórnun. Helstu viðfangsefni ráðgjafanna sem Starfsmennt semur við, eru margskonar vinnustaðargreiningar, greiningar á fræðsluþörf, námslýsingar, hæfnislýsingar eða aðstoð við gerð starfsmanna-, jafnréttis- og heilsustefnu. Þá hefur ráðgjafinn einnig aðstoðað við innleiðingu starfsmannasamtala. Verkefni ráðgjafans eru öll á sviði mannauðseflingar og kostar Starfsmennt vinnuna að því gefnu að hún nýtist félagsmönnum aðildarfélaganna. Í ljósi ástandsins í dag þar sem margir ríkisstarfsmenn starfa undir miklu álagi hefur Starfsmennt aðlagað þjónustuna meir í átt að handleiðslu og stuðningi við starfsfólk til að takast á við erfið mál og aukið álag í starfi. Sjá auglýsingu hér og útgáfu um verkefnið.