1.tbl. 1.árg.

Veffréttabréf 1.tbl. 1.árg.

Nýjungar hjá Starfsmennt

Veffréttabréf hefur göngu sína

Nú hefur Fræðslusetrið Starfsmennt hrint úr vör fyrsta veffréttabréfinu. Markmiðið er að auka upplýsingaflæði til stofnana okkar með umfjöllun um almenna starfsemi Starfsmenntar, væntanleg námskeið, áhugavert efni, ráðstefnur og fundi auk þess sem bréfið verður ríkt af myndum úr starfsemi setursins, einkum af þátttakendum námskeiða. Áhugasamir skrái sig á póstlistann á heimasíðu Starfsmenntar www.smennt.is.
 

Ný heimasíða Starfsmenntar

 Ef slegið er inn www.smennt.is birtist fólki ný heimasíða Starfsmenntar sem hefur verið þróuð og unnin í samvinnu við ecWeb. Lagt var upp með að heimasíðan yrði aðgengileg og einföld í notkun, gæfi upplýsingar um framboð námskeiða fram í tímann og skýra leiðsögn um skráningar á námskeið. Einnig er lögð áhersla á margvíslegt áhugavert efni sem sótt er af ýmsum heimasíðum, úr bókum og blöðum. Auk þess verður púlsinn tekinn á viðburðum líðandi stundar með því að segja frá ráðstefnum, fundum, fyrirlestrum og öðrum áhugaverðum samkomum sem framundan eru. 
Það verður einnig lögð áhersla á að veita  innsýn í starfsemi okkar með lifandi myndum af af þátttakendum og kennurum á námskeiðum sem og öðrum viðburðum á vegum Starfsmenntar. 
Gaman er frá því að segja að frá því að heimasíðan var tekin í notkun í október síðastliðnum hafa 750 þátttakendur skráð sig á námskeið í gegnum hana. Aðsókn á heimasíðuna hefur verið að aukast jafnt og þétt frá því hún var tekin í notkun og er hún heimsótt að jafnaði 1200 sinnum á viku.



Helstu þjónustuþættir heimasíðunnar

Heimasíðan hefur nokkra þjónustuþætti sem vert er að kynna fyrir notendum okkar. Fyrst ber að nefna viðburðadagatalið sem birtist vinstra megin á heimasíðunni undir yfirskriftinni námskeið framundan. Það kallar fram yfirlit námskeiða fram í tímann og er valinn mánuður sem við. Ef eitthvað tiltekið námskeið vekur áhuga er hægt að skrá sig beint til þátttöku með því að ýta á þartilgerðan hnapp sem birtist á skjánum.


Fyrir neðan viðburðadagatalið er að finna könnun sem við hvetjum félagsmenn okkar að taka þátt í. Markmiðið með könnuninni er meðal annars að taka púlsinn á starfsaðstæðum félagsmanna og fá hugmyndir um óskir þeirra varðandi þjónustu Starfsmenntar. Endilega gefið okkur hugmyndir að spurningum ef einhverjar sérstakar brenna á ykkur með því að senda póst á sara@smennt.is


Á miðri heimasíðunni er að finna námskeiðsflokkana okkar Almenn námskeið, Járnsíða, Netnámskeið og Starfstengd námskeið. Með því að smella á þessi námskeiðsflokka fæst yfirlit yfir þau námskeið sem eru í boði, nánari upplýsingar um efnisþætti námskeiðanna og hnappur til að skrá sig til þátttöku. 


Almenn námskeið leitast við að styrkja hæfni fólks bæði í daglegu lífi og starfi. Þau taka á þáttum er snúa meðal annars að bættri þjónustulund, sjálfsmati og samskiptum, vellíðan í starfi, notkun starfsmannasamtala, siðfræði, tölvufærni, samskiptahæfni og sjálfstrausti. Ef þú hefur áhuga á að skoða úrval almennra námskeiða smelltu þá hérna.

Járnsíða er skóli fyrir starfsmenn sýslumannsembættanna. Hann eykur færni starfsmanna meðal annars með  kennslu í lögum, fullnustugerð, málefnum útlendinga, Oracle bókhaldskerfinu, starfsmannasamtölum og kjaramálum. Skoðaðu námskeiðsþættina og uppbyggingu námsins. 

Netnámskeið Starfsmenntar kennir byrjendum og lengra komnum m.a. á stýrikerfið, ritvinnslu (Word), töflureikni (Excel), internetið, tölvupóstinn og upplýsingatækni. Nánari upplýsingar má finna hér. upplýsingar smellið þá hér.

Starfstengd námskeið efla færni fólks í starfi. Þau eru sérsniðin að tilteknum starfsstéttum eins og læknaritunum, skrifstofufólki, félagsliðum, hjúkrunar-og móttökuritunum og stuðningsfulltrúum.  

Myndir

Framrás 3 (janúar-febrúar sl.)

Starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur LSR (febrúar sl.)

Skrifstofa Starfsmenntar (febrúar sl.)

Fréttir

Góð þátttaka á námskeiðum frá áramótum


Námskeið á vegum Starfsmenntar virðast höfða til flestra félagsmanna okkar ef skoðaður er fjöldi þátttakenda á námskeiðum frá áramótum. Hátt í fimmhundruð manns hafa sótt hin ýmsu námskeið meðal annars Innheimta skatta og gjalda, Fullnustugerðir, Farmúrskarandi þjónustu og Rekspöl. Auk þessara námskeiða býður Starfsmennt áhugasömum upp á Framrás, Starfsmannasamtöl, Öfluga liðsheild og skapandi samskipti, Sjálfsmat og samskipti, Vellíðan á vinnustað, Tölvunotkun, Á vettvangi, Starfsnám stuðningsfulltrúa  og svo mætti áfram telja. Til að skoða nánar úrval námskeiða hjá Starfsmennt smelltu þá hér og veldu á milli almennra námskeiða, netnámskeiða eða starfstengdra námskeiða.

Námskeið framundan

Á næstu vikum verða fjölbreytt námskeið í boði hjá Starsfmennt. Undir Almennun námskeiðum má nefna Starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur 9.mars nk.  (Austurlandi), Hvaða stefna er í gangi hér? 13.mars, Sjálfsmat og samskipti 15.mars, Starfsmannasamtöl, 20.mars, Starfsmannasamtöl - Heilbrigðisstofnun Austurlands 27.mars og Starfsmannasamtöl - Landbúnaðarháskólinn Hvanneyri (Vesturland) 31.mars. Undir Starfstengdur námskeiðum er einkum um að ræða Framrás 2 - góð þjónusta fyrir skrifstofufólk  

Á vettvangi - nám fyrir læknaritara

Þann 3.maí næstkomandi hefst námskeiðið Íslenska og íslensk stafsetning sem er hluti af náminu Á vettvangi, sem er ætlað sérstaklega fyrir læknaritara.  Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist færni í íslenskri málnotkun með áherslu á stafsetningu. Lögð er áhersla á uppbyggingu íslenskunnar, málsgreinar og réttritun. Dustað verður rykið af gömlu stafsetningareglunum, farið í stíl og beygingar orða og stefnt að því að þátttakendur tileinki sér fjölbreytt málfar. 

Kennsluefni er tvenns konar; annars vegar á tölvutæku formi og hins vegar útgefin rit, svo sem kennslubækur, handbækur og orðabækur. Komið verður til móts við óskir og þarfir hvers þátttakenda með ólíkum verkefnum, einstaklingsbundnum athugasemdum og samskiptum í tölvupósti.

Hægt er að sækja námsskrána hér , skoða stundatöflu hér og fá allar nánari upplýsingar hér eða með því að hringja í okkur hjá skrifstofu Starfsmenntar í síma 5258395.

Myndirnar hér að neðan eru af læknariturum í tölvunámi, sem er hluti af námi þeirra Á vettvangi, haustið 2005.

Breytingar á skrifstofu Starfsmenntar

Frá árinu 2001 hefur Fræðslusetrið Starfsmennt verið rekið á grunni kjarasamnings samningsaðila (sjá bókun þess efnis hér). Lengstum var Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri eini starfsmaður setursins en vegna keyrslu einstakra námskeiða og annarra verkefna hafa fræðslustofnanir og fyrirtæki séð um framkvæmd þeirra samkvæmt samningi. Nú koma 10 fræðslustofnanir að verkefnum Starfsmenntar og 120 kennarar kenna á námskeiðum á vegum þess. Ljóst er að starfsemi Starfsmenntar hefur vaxið mikið síðustu misseri sem hefur leitt af sér ráðningu tveggja nýrra starfsmanna á skrifstofu Starfsmenntar í samtals 1,2 stöðugildi. Sara Hlín Hálfdanardóttir, BS í viðskiptafræði og BA  í stjórnmálafræði og áður fræðslustjóri í afleysingum hjá SFR og Brynhildur Lilja Björnsdóttir, BA próf í stjórnmálafræði hafa nú bæst í hópinn.