Mars 2008

Starfstengdar námsleiðir- Mikil gróska á vorönn

Fræðslusetrið  Starfsmennt  býður upp á fjölbreytt úrval starfstengdra námsleiða fyrir einstaka starfsgreinar og stofnanahópa. Framboðið eykst jafnt og þétt og eru námsleiðirnar ávallt unnar í nánu samstarfi við starfsmenn og stjórnendur, sem tryggir gæði og góða framkvæmd. Framundan eru mörg hagnýt námskeið sem geta komið starfsfólki að góðum notum í starfi. Hér fyrir neðan má sjá þau helstu:

Innan Heilsu - námsleiðar fyrir heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins standa nú yfir Starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur og Starfsmannasamtöl fyrir almenna starfsmenn. Þessi námskeið eru ætluð sem undirbúningur fyrir hin árlegu starfsmannasamtöl sem eru orðin viðtekin venja í flestum stofnunum og fyrirtækjum.

Innan námsleiðarinnar Á vettvangi - námsleið fyrir læknaritara eru nú í boði þrjár sjálfstæðar námslotur sem hver um sig er 20 stundir. Nú þegar hefur ein lota farið fram á höfuðborgarssvæðinu við góðar undirtektir og hefst næsta lota sem fjallar um stjórnun verkefna og gæða  í Reykjavík, 7. apríl. Þriðja og síðasta lotan hefst síðan í maí og verður þar fjallað um skjalastjórnun og úrvinnslu upplýsinga. Fyrsta lotan sem fjallar um mannauðsstjórnun og samskipti hefst svo á Akureyri 21. apríl og seinni tvær loturnar verða í boði fyrir norðan í haust.

 Hæfni - námsleið fyrir starfandi heilbrigðisritara var ýtt úr vör í febrúar og voru undirtektir  afar góðar. Næsta lota sem er 20 stundir fjallar um Samskipti og siðfræði á vinnustað  og hefst  hún 8. apríl nk.

Járnsíða - námsleið fyrir starfsfólk sýslumannsembættanna er ein af elstu námsleiðum Starfsmenntar og er ætluð starfsfólki embættanna um allt land. Framundan eru fjölmörg námskeið sem sjá má hér.

Fyrir ári síðan fór af stað námsleiðin Á fjölunum og er hún fyrir leiksviðstækna. Fyrstu námskeiðin voru haldin á síðasta ári en fyrirhugað er að halda tvö nú á vorönn. Hið fyrra verður haldið í maí um ágrip af leiklistarsögu og en hið síðara  er í samstarfi við Iðnskólann í Reykjavík  og verður haldið dagana 9. og 10. júní. Þar verður fjallað um hagnýt ráð í smíði, málun, pípulögnum og logsuðu.

Aðrar nýlegar námsleiðir eru Vísdómur - námsleið fyrir héraðsdómstól  sem fór af stað í haust, námsleið fyrir Tryggingastofnun og önnur fyrir Vinnumálastofnun sem kallast Vinnumálaskólinn.

Almenn námskeið- fyrir alla!

Á almennum námskeiðum er leitast við að styrkja hæfni fólks bæði í daglegu lífi og starfi. Á námskeiðunum er tekið á ýmsum almennum hæfnisþáttum sem koma að notum bæði í einkalífi og starfi.

Í Rekspeli 2 er lögð áhersla á persónulega hæfni einstaklingsins, almenna þekkingu hans og samspil einkalífs og starfs. Rekspölur 2 hefst 4. apríl og kennt er allan daginn frá 8.30-16. Sjá nánar um námið og skráningu hér!

Í Framrás 3 er áherslan á markviss vinnubrögð og vinnuumhverfi. Meðal efnisþátta má nefna markmiðasetningu, tímastjórnun, verkefnastjórnun og framkomu og ræðumennsku. Námið hefst 21. apríl og er kennt frá 8.30-12.30. Sjá nánar um námið og skráningu hér!

Af minni námskeiðum má nefna námskeiðið Starfsandi og samstarfsvilji  þar sem starfsandi er styrktur og fjallað um gildi hópastarfs og vinnustaðarmenningar. Námskeiðið  hefst 14. apríl.

Þá er boðið upp á opin námskeið í starfsmannasamtölum bæði fyrir starfsmenn og stjórnendur þar sem farið er í ástæður, undirbúning og framkvæmd starfsmannasamtalsins. Starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur fer fram 28. apríl  en Starfsmannasamtöl fyrir almenna starfsmenn fer fram 6. maí. 

Að lokum má nefna námskeiðið Verkefnastjórnun - vinnulag sem virkar sem nýtur gríðarlegra vinsælda. Námskeiðið miðar að því að kynna aðferðir verkefnastjórnunar og að fylgja hugmynd eftir frá því hún kviknar þar til hún er orðin að veruleika. Námskeiðið fer fram 15. - 16. maí í Reykjavík og greiðir Starfsmennt ferða- og dvalarstyrki til félagsmanna aðildarfélaga á landsbyggðinni.

Tölvunámskeið

Tölvunámskeið Starfsmenntar hafa hlotið frábærar viðtökur. Þau eru fjarkennd yfir netið sem ætti þó ekki að vera neinum fjötur um fót þar sem kennari veitir mjög góða leiðsögn og býður upp á símaþjónustu. Námskeiðin henta bæði byrjendum og lengra komnum við að læra á tölvur og ýmis tölvuforrit og efla þar með almennt tölvulæsi starfsmanna. Nám í gegnum netið er frábær leið fyrir þá sem vilja stjórna náminu sjálfir.  

80 stunda Grunnámskeið hefst bæði 25. mars og 5. maí. og einnig hefjast námskeiði í Outlook, Myndvinnslu og Publisher 25. mars. Hægt er að skrá sig út fyrstu vikuna. Að lokum má svo nefna Word framhaldsnámskeið sem hefst 14. apríl.