Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

   ........vertu á grænni grein

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Veffréttabréf mars 2009

 Ráðgjafi að láni


Verkefnið Ráðgjafi að láni hefur verið lengi við lýði hjá Starfsmennt og hafa hátt á fimmta tug stofnana óskað eftir þjónustunni. Þá er það til marks um gæði ráðgjafarinnar að algengt er að stofnanir kalli eftir framhaldsvinnu ráðgjafans til að leggja enn betri grunn að markvissri mannauðsstjórnun. Helstu viðfangsefni ráðgjafanna sem Starfsmennt kallar til liðs við sig eru margskonar vinnustaðargreiningar, greiningar á fræðsluþörf og uppsetning símenntunarkerfis starfsfólks, starfsgreiningar eða aðstoð við gerð starfsmanna-, jafnréttis- og heilsustefnu. Þá hefur ráðgjafinn einnig aðstoðað við innleiðingu starfsmannasamtala. Verkefni ráðgjafans eru öll á sviði mannauðseflingar og kostar Starfsmennt vinnuna að því gefnu að hún nýtist félagsmönnum aðildarfélaganna. Í ljósi ástandsins í dag þar sem margir ríkisstarfsmenn starfa undir miklu álagi hefur Starfsmennt aðlagað þjónustuna meir í átt að handleiðslu og stuðningi við starfsfólk til að takast á við erfið mál og aukið álag í starfi. Einnig fer stuttum farandfyrirlestum sem Starfsmennt sendir inn á vinnustaði fjölgandi í þessu árferði en titla þeirra má sjá hér.

Námskeið framundan- fyrir alla

Mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur

er 32 stunda nám sem hefur slegið rækilega í gegn hjá Starfsmennt enda veitir námið ágætis innsýn í mannauðsfræði og styrkir þannig millistjórnendur til að takast á við flóknari verkefni. Næsta námskeið verður haldið 7. maí hjá Endurmenntunarstofnun Háskólans og er það kennt í fjóra heila daga í kringum helgi. Er það gert til að auðvelda fólki sem kemur langt að, að nýta tímann og ferðir sem best. Starfsmennt greiðir ferðakostnað skv. reglum setursins til félagsmanna.

Starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur

er heilsdagsnámskeið sem undirbýr stjórnendur til að taka árangursrík starfsmannasamtöl þar sem þeir læra að hlusta eftir skilaboðum starfsmanna og vinna úr þeim á raunhæfan hátt. Næsta námskeið verður haldið á Akureyri 4. maí og má skrá sig hér. Þá geta stofnanir kallað eftir þessari stjórnendaþjálfun til Starfsmenntar þegar þeim hentar best.

Nýtt námsumhverfi á netinu

er stutt námskeið sem ætlað er kennurum og leiðbeinendum Starfsmenntar en einnig opið öllum öðrum þeim sem sinna fræðslumálum stofnana og vilja kynnast möguleikum netsins til miðlunar upplýsinga og samskipta. Salvör Gissurardóttir, lektor við menntavísindasvið háskólans leiðir þátttakendur inn í nýja heima þar sem allt getur gerst. Sjá nánar hér en námið hefst 2. apríl og er fjarkennt að hluta.

Upplýsinga- og skjalastjórn

er 8 stunda námskeið sem er kennt er tvo eftirmiðdaga hjá Endurmenntun Háskólans. Námið hefst 28. apríl og er þar fjallað um aðferðafræði upplýsinga- og skjalastjórnunar sem gerir þátttakendum auðveldara með að þróa og skilja þau kerfi sem stuðst er við á þeirra vinnustað. Námið er fjarkennt á Blönduós og möguleiki er að opna fyrir fleiri móttökustaði ef næg þátttaka fæst í héraði. Nánari upplýsingar og skráning er hér.

Fjarkennt tölvunám

fer fram út um allt land. Síðustu námskeið vorannar eru Word-framhald sem hefst 14. apríl og 80 stunda grunnnám sem hefst 5. maí. Þá hefst kennsla í gerð kynningarefnis með Publisher 24. mars. Þessi fjarkenndu námskeið hafa verið með best sóttu námskeiðum Starfsmenntar í nokkur ár m.a. vegna þess að kennarinn styður vel við sitt fólk með persónulegum stuðningi og símaþjónustu sem opin er fram á kvöld.


Starfstengt nám ætlað einstökum starfsstéttum

Starfsmennt býður stofnunum upp á starfstengda símenntun sem ætluð er ákveðnum fagstéttum. Hér eru um að ræða 20 stunda námslotur fyrir læknaritara þar sem annarsvegar er fjallað um Aðstoðarmann stjórnanda og hinsvegar Gagnavinnslu í SPSS kerfinu. Þessar námslotur taka báðar á nýjungum í starfi ritaranna. Þá hefur verið tekið saman úrval fyrra náms fyrir heilbrigðisritara sem hafa sótt sína símenntun til Starfsmenntar undanfarin misseri. Starfstengd enska hefur verið í boði fyrir margar starfsstéttir og 21. apríl hefst í Borgarnesi nám í starfstengdri ensku innan Járnsíðu fyrir starfsfólk sýslumannsembætta og skattstofa. Þá er Vinnumálaskólinn kominn á fulla ferð aftur um allt land og stefnt er að því að ljúka fyrstu umferð námsleiðarinnar í haust.

Menntatorg fyrir atvinnulausa

Föstudaginn 6. mars verður opið hús í Skeifunni 8 frá kl. 14-18 en þar munu ýmsir fræðsluaðilar kynna nám og ýmis úrræði fyrir atvinnulausa einstaklinga. Þessi viðburður, sem hefur fengið nafnið Menntatorg, fer nú fram í fyrsta skipti en breyttar aðstæður í íslensku efnahagslífi hafa orðið til þess að atvinnuleysi hefur aukist gríðarlega á síðustu mánuðum. Atvinnuleysi hefur aukist einna mest hjá þeim sem hafa stutta skólagöngu og á Menntatorginu munu fjölmargir fræðsluaðilar kynna hversu fjölbreytt úrræði standa þessum hópi til boða. Boðið verður upp fjölbreytta dagskrá eins og t.d. örnámskeið, kynningar á námi, ráðgjöf og margvíslega þjónustu við atvinnuleitendur.