Nóvember 2007

Hvernig viltu haga þinni símenntun?

Nú á lokamánuðum þessa árs er lag að huga að því næsta og leggja drög að nýjum verkefnum.  Eitt af þeim verkefnum sem er sífellt brýnna að sinna er eigin símenntun. Öll verðum við vör við þær breytingar sem eiga sér stað á vinnustað, hvort sem þær varða uppstokkun á skipulagi eða stjórnun, innleiðingu nýrra verklagsreglna og jafnvel tölvukerfa eða útvíkkun á okkar starfssviði. Vinnumarkaðurinn er svið í mótun og okkar hlutverk er að fylgja eigin hæfnisuppbyggingu eftir, bæði til að vera verðmætir starfsmenn og virkir þátttakendur í mótun nútímavinnuumhverfis.

Starfstengt nám stofnana

Fræðslusetrið Starfsmennt hefur boðið ríkisstarfsmönnum upp á öflugt starfsnám sem oftar en ekki er sérsniðið að þörfum einstakra stofnana og faghópa.  Á komandi ári fjölgar þessum námsleiðum til muna og áfram verður boðið upp á námskeið sem fyrir löngu hafa sannað sig.  Starfmennt hefur um nokkurra ára skeið starfað með sýslumannsembættum út um allt land að Járnsíðu og nú hafa bæst í þann hóp héraðsdómstólar og dómstólaráð, Tryggingastofnun ríkisins og Vinnumálastofnun. Þá hafa fagfélög innan heilbrigðis- og félagsgreina leitað til Starfsmenntar um endurbætur á þeirra sí- og endurmenntun og má í þeim hópi nefna félagsliða, læknaritara og heilbrigðisritara. Í þeirri þróunarvinnu er leitast við að koma til móts við breytt starfssvið, framtíðarþróun starfanna og helstu nýjungar. Allar nánari upplýsingar um þessar námsleiðir verður að finna á heimasíðu Starfsmenntar á næstu vikum.

Öflugt grunnnám og brúarnám

Að venju býður Starfsmennt upp á öflugt nám fyrir stuðningsfulltrúa sem starfa í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka. Um er að ræða 160 stunda grunnnám sem hefst um miðjan janúar og er kennt á morgnana, aðra hverja viku fram á vor. Framhaldsnámið hefst upp úr miðjum febrúar og eru kenndar á sama hátt 80 stundir.  Hér er um heildstætt nám að ræða sem krefst mikillar fyrirhyggju og skipulagningar en umbunar með aukinni fagmennsku og styrk í starfi.  Þessar tvær námsleiðir opna líka leiðina inn í brúarnám félagsliða þar sem starfsreynsla og sú þekking sem aflað hefur verið í starfi eru metin til eininga. Brúarnám félagsliða fer fram í Borgarholtsskóla og er kennt bæði staðbundið og í dreifnámi sem hentar fólki af landsbyggðinni. Enn er opið fyrir skráningar í þessar þrjár námsleiðir og fá áhugasamir allar nánari upplýsingar á skrifstofu Starfsmenntar.

Tölvunám á netinu

Tölvunámskeið Starfsmenntar í samvinnu við Bjartmar Kristinsson tölvukennara hafa sannað gildi sitt. Um er að ræða nám á netinu þar sem nemendur fá námsgögn, fyrirlestra, glærur og verkefni og geta síðan valið hvar og hvenær þeir stunda námið. Sérstaða þessa náms er sú persónulega þjónusta sem kennari veitir með símatíma þar sem tryggt er að tæknilegir erfiðleikar verða ekki hindrun í náminu. Stuðningur af þessu tagi kemur í veg fyrir brottfall nemenda og einnig hafa nemendur allt skólaárið til að ljúka verkefnum ef þeir ná ekki að skila á tilsettum tíma. 

Á þennan hátt er reynt að koma til móts við mismunandi þarfir nemenda og auðvelda þeim útskrift.  Á vorönn 2008 verður boðið upp á tvö 80 stunda grunnnámsskeið og sex 26 stunda framhaldsnámskeið t.d. í Word, Excel, Power Point, Outlook, myndvinnslu og gerð kynningarefnis. Markmiðið með þessu tölvunámi er að efla almennt tölvulæsi ríkisstarfsmanna svo að þeir geti tekist á við sértækari tölvu- og gagnavinnslu á vinnustað.  Opnað hefur verið fyrir skráningar á heimasíðu Starfsmenntar og eru þær nú þegar komnar vel af stað sem segir margt um gæði námsins.

Almennt starfsnám

Starfsmennt hefur staðið fyrir almennu starfsnámi sem hentað hefur breiðum hópi starfsmanna. Um er að ræða tvennskonar stóra námskeiðspakka:  Framrás 1 og 3 og Rekspöl I-II. Á vorönn 2008 verða kennd tvö Framrásarnámskeið  hjá Endurmenntun Háskólans. Fyrra námskeiðið, Framrás 1 hefst 4. febrúar og er það í höndum tveggja sálfræðinga þeirra Jóhanns Inga Gunnarssonar og Sæmundar Hafsteinssonar. Megininntak þessa 36 stunda náms er efling sjálfstraust sem grunns að góðum samskiptum. Þetta námskeið hefur verið þétt setið árum saman. Framrás 3 verður kennd með vorinu og hefst 21. apríl og er sjónum þar beint meira að stjórnun, áætlanagerð og markmiðssetningu.

Rekspalarnámskeiðin verða alls tvö talsins og eru þau hvort um sig 60 stundir. Þau hafa fyrir löngu sannað gildi sitt sem almennt starfsnám og hafa oftar en ekki lagt grunn að frekara námi og áskorunum þátttakenda.  Rekspalarnámskeið taka á hinum ýmsu hlutverkum einstaklingsins, möguleikum, sköpunarmætti og stöðu í samfélaginu. Rekspölur I verður kenndur í Reykjavík í febrúar tvo morgna í viku en Rekspölur II verður  öllu þéttari, þ.e.a.s. kennt verður í heila viku í höfuðborginni með vorinu og fjarvarpað í gegnum símenntunarmiðstöðvar ef áhugi er fyrir hendi.  

Allar nánari upplýsingar um þessar námsleiðir, inntak, markmið, stað og stund, er að finna á heimasíðu Starfsmenntar þar sem skráningar fara fram.  Þá veita starfskonur Starfsmenntar frekari upplýsingar og aðstoð.

Fara efst í fréttabréf