Yfirlit námsleiða og þjónustu
Verðlaunahafar með forseta Íslands. Talið frá vinstri: Guðmundur H. Guðmundsson, Árni Stefán Jónsson, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, Kristín Völundardóttir, Hulda Anna Arnljótsdóttir, Arna Jakobína Björnsdóttir og Ásgeir M. Kristinsson.
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf 8.tbl. 2008
Starfsmennt hlýtur Starfsmenntaverðlaun 2008
Fræðslusetrið Starfsmennt hlaut á dögunum Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs 2008 í flokki skóla og fræðsluaðila. Viðurkenningin er veitt vegna verkefnisins Járnsíða- skóli fyrir starfsfólk sýslumannsembætta sem unnið er í samvinnu við Sýslumannafélag Íslands. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem þykja vinna framúrskarandi starf í starfsmenntun eða styðja við nýsköpun á því sviði. Viðurkenningin er afar ánægjuleg þar sem Starfsmennt og Járnsíða hafa átt langt og gott samstarf þar sem nýjungar hafa fengið að blómstra. Það verklag sem myndast hefur innan Járnsíðu hefur verið fyrirmynd að símenntun annarra hópa ríkisstarfsmanna. Er þar átt við stórt hlutverk stýrihóps sem í eiga sæti jafnmargir stjórnendur og starfsmenn og sér stýrihópurinn um að námið sé hagnýtt, sveigjanlegt og mæti raunverulegum fræðsluþörfum starfsfólks. Vefkerfi Starfsmenntar var einnig smíðað samhliða þarfagreiningu innan Járnsíðu en það býður upp á einstaklingsval innan námskerfisins og rafrænt yfirlit yfir allt tekið nám hjá Starfsmennt. Verðlaunin eru Starfsmennt hvatning til að halda áfram að bjóða ríkisstarfsmönnum upp á hágæða starfstengda símenntun um allt land og veita heildstæða þjónustu á sviði starfsþróunar.
Lokasprettur millistjórnenda
Á næstu vikum eru nokkur spennandi námskeið framundan sem geta eflt nýja færni. Þann 28. nóvember er leitast við að styrkja stjórnendafærni í að taka starfsmannasamtöl en sá undirbúningur er ávísun á markvissari vinnubrögð og árangur samtalanna. Þá er einnig opið fyrir skráningar á námskeiðið Verkefnastjórn- vinnulag sem virkar sem kennt er 11.-12. des. Millistjórnendur geta einnig sótt afar hagnýtt 32 stunda nám í mannauðsstjórnun sem kennt er tvo morgna í viku hjá Endurmenntun háskólans og hefst 25. nóv. Þá eru tvö tölvunámskeið framundan þar sem annarsvegar er farið ítarlega í forritið Word í fjarkennslu og hinsvegar er öllum þeim sem leiðbeint hafa á námskeiðum Starfsmenntar boðið í kynningu á nýju netumhverfi náms sem þróast hefur hratt í vefheimum. Þar eru að opnast möguleikar og vinnulag sem allir er sinna fræðslumálum verða að þekkja og kunna skil á. Salvör Gissurardóttir, lektor við Háskóla Íslands opnar þennan spennandi heim fyrir þátttakendum.
Undirbúningur fyrir nám á næsta ári
Skráningar á stuðningsfulltrúanám og félagsliðabrú eru nú í fullum gangi en það nám hefst strax í janúar. Þá er búið að opna fyrir skráningar á okkar sívinsæla fjarkennda tölvunám og er hægt að velja úr 7 mismunandi titlum. Um er að ræða 80 st. grunnnám og 6 framhaldsnámskeið sem eru hvert um sig 26 st. Þá hefur einnig verið opnað fyrir skráningar á Rekspöl I og Rekspöl II sem lagt hefur grunn að frekara námi og þátttöku fólks í félagsstörfum. Síðast en ekki síst má nefna Framrás I (36 st.) sem Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur með meiru, leiðir. Fleiri spennandi námstilboð munu birtast á vef Starfsmenntar næstu vikurnar og leggja grunn að fjölbreyttri fræðslu ríkisstarfsmanna á komandi ári.