Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Námskeið á næstunni á vegum Starfsmenntar
Almenn námskeið
Starfsandi og samstarfsvilji 23., 25. og 30 okt
Í þessu námskeiði verður fjallað um hópasamsetningu og hóphlutverk og hvernig auka megi starfsgleði fólks. Umræðan verður tengd við gildi vinnustaðarmenningar og góðs starfsanda.
Upplýsingar og skráning hér.
Starfið-heimilið-lífið 16. og 19. nóvember
Á námskeiðinu er farið í jákvæðar leiðir til að njóta sín í öllum hlutverkum og vera sinn eigin stjórnandi í starfi og einkalífi.
Upplýsingar og skráning hér.
Starfsmannasamtöl fyrir almenna starfsmenn 19. nóvember
Starfsmannasamtal á að vera uppbyggilegt og opinskátt samtal. Í samtalinu gefst tækifæri á að bæta hlutina, skilgreina markmið starfsmannsins, ræða starfsframa og aukna ábyrgð og skilgreina þörf starfsmannsins á starfsþróun og fræðslu.
Upplýsingar og skráning hér.
Starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur 23. nóvember
Starfsmannasamtöl gerir stjórnandanum kleift að vinna með starfsmönnum sínum að betri árangri með því að veita þeim heiðarlega endurgjöf og hvatningu og vinna sameiginlega að mikilvægum bótum.
Upplýsingar og skráning hér.
Tölvunámskeið
Tölvunámskeið Starfsmenntar hafa notið mikilla vinsælda en þau eru fjarkennd gegnum netið og þar sem kennari veitir mjög góða leiðsögn og býður upp á símaþjónustu, þá eru tæknileg vandræði sjaldnast til trafala.
Tölvur og tölvunotkun - myndvinnsla 29. október
Námskeiðið Myndvinnsla hentar öllum sem vilja vinna með stafrænar myndir, hvort sem er í heimilistölvunni eða í faglegum tilgangi.
Upplýsingar og skráning hér.
Tölvur og tölvunotkun - Publisher 29. október.
Þetta námskeið er sérstaklega sniðið fyrir þá sem þurfa að búa til fjölbreytt kynningarefni eða prentgripi eins og fréttabréf, auglýsingar, kort, viðurkenningarskírteini, nafnspjöld, námsefni og annað sem þarf að gefa út með fljótvirkum hætti.
Upplýsingar og skráning hér.
Tölvur og tölvunotkun -Word framhaldsnámskeið 19. nóvember.
Á námskeiðinu er farið í flóknari hluta Word forritsins og nemendum kennt hvernig láta megi forritið vinna fyrir sig og einfalda þannig verklag. Áhersla er lögð á tengingu við önnur forrit og sjálfvirkni við vinnu.
Upplýsingar og skráning hér.
Starfstengd námskeið
Á haustönn eru í boði fjölmörg starfstengd námskeið innan ýmissa námsleiða og má sjá yfirlit yfir námsleiðirnar og námskeið innan þeirra hér.
Vert er að benda á að innan Áfanga - námsleiðar fyrir starfandi fangaverði verður boðið upp á námskeið í Viðtalstækni (sjá nánar hér) á Selfossi dagana 23. og 25. okt. (sama námskeið í boði tvisvar) og er því einnig fjarvarpað á Grundarfjörð sömu daga. Sama námskeið er svo haldið í Gerðubergi, Reykjavík dagana 30. okt. og 1. nóv.
Hér er á ferð stórgott námskeið sem getur hentað öllum þeim sem starfa með fólki ekki aðeins fangavörðum. Leiðbeinandi í námskeiðinu er Guðrún H. Sederholm.
