Yfirlit námsleiða og þjónustu

Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf 7. tbl. 2008
Nýtt nám í nóvember
Nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur
Á vettvangi Fræðslusetursins Starfsmenntar hefur verið hannað nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur í opinberum rekstri. Um er að ræða hagnýta nálgun á aðferðir mannauðsstjórnunar og um leið verið að svara brýnni þörf fyrir frekari þekkingu á þessu sviði. Námið er sniðið að þörfum millistjórnenda s.s. starfsmannastjóra og verkefnastjóra í starfsmannahaldi, fræðslustjóra og annarra starfsmanna sem axlað hafa aukna ábyrgð í starfi. Kennsla hefst 25. nóv. og er kennt tvo morgna í viku hjá Endurmenntun Háskólans í 4 vikur.
Markmið námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauð stofnana með því að þekkja til helstu aðferða mannauðsstjórnunar og geta nýtt þær til mannauðseflingar á vinnustað. Hér má sjá námslýsingu en m.a. er fjallað um:
• kenningar um mannauðsstjórnun
• gildi stefnumótunar og breytingastjórnun
• starfsmannaval og ráðningar
• starfsánægja, starfsþróun og persónuleg færni
• undirbúningur starfsmannasamtala og viðtalstækni
• um leiðtogafræði og stjórnunarstíla
• vinnustaðamenning og þróun lærdómsstofnana
Námið er opið öllum millistjórnendum og fara skráningar fram á vef Starfsmenntar. Námið er félagsmönnum aðildarfélaganna að kostnaðarlausu en vilyrði hefur fengist fyrir þátttöku annarra fræðslusjóða. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu og á skrifstofu Starfsmenntar.
Nýtt námsumhverfi á netinu
Á netinu á sér stað byltingarkennd þróun sem allir þurfa að fylgjast með. Starfsmennt býður því upp á 6 stunda kynningu þar sem fjallað er um þær öru breytingar sem eru að eiga sér stað á netinu. Farið verður í þróunina innan web 2.0 og kynntir möguleikar samhæfðs netumhverfis náms og opins (ókeypis) hugbúnaðar. Þá verður einnig sagt frá góðum leitarvélum sem sérhæfa sig í þekkingarsköpun og vinsælum vefþjónum gerð skil.
Námskeiðið er ætlað kennurum og leiðbeinendum Starfsmenntar og einnig þeim sem koma að og skipuleggja fræðslumál stofnana. Námið hefst 27. nóv. og er kennt tvisvar sinnum frá kl. 14-16 auk fjarvinnu. Kennari er Salvör Gissurardóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Fræðslusetursins Starfsmenntar þar sem skráningar fara fram. Námskeiðið er félagsmönnum og kennurum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en aðrir greiða kr. 10.000.
Nám fyrir stuðningsfulltrúa og félagsliða
Opnað hefur verið fyrir skráningar á starfsnám stuðningsfulltrúa sem hefst á næsta ári. Um er að ræða grunnnám stuðningsfulltrúa (160 stundir) sem hefst 19. janúar og framhaldsnám (80 stundir) sem hefst 9. mars. Framhaldsnámið verður einnig fjarkennt á Ísafirði og Egilsstöðum. Þar sem hér er um langt nám að ræða þurfa væntanlegir þátttakendur að hefja undirbúning á vinnustað til að röskun verði sem minnst og skrá sig til þátttöku á heimasíðu Starfsmenntar. Einnig hefur verið opnuð kynningarsíða um félagsliðabrú verðandi félagsliða sem unnin er í samstarfi Starfsmenntar og Borgarholtsskóla. Umsóknarfrestur er til 3. des. og má fá allar nánari upplýsingar um inntökuskilyrði og umsóknareyðublað hér. Bæði er kennt í skólanum á eftirmiðdögum en einnig er boðið upp á svokallað dreifnám sem felst aðallega í fjarvinnu og hentar því verðandi félagsliðum á landsbyggðinni vel.