Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Veffréttabréf október 2009

Útgáfa um gæðastarf Starfsmenntar

Mikilvægt er að efla gæði í símenntun og vinnutengdu námi til að auka skýrleika í mati og auðvelda yfirfærslu þekkingar á milli ólíkra sviða. Innan símenntunar er boðið upp á annarskonar nám en innan framhaldsskólanna sem  þó á að geta verið jafngilt. Að námi loknu skiptir mestu máli að hafa tileinkað sér nýja færni en ekki hvar nám var stundað. Ný framhaldsskólalög leggja áherslu á fjölda vinnustunda á bakvið hverja framhaldsskólaeiningu sem meta má á margskonar hátt. Þessi áhersla dregur úr þeirri bóknámsnálgun sem hefur verið ríkjandi í langan tíma og hampar fjölbreytileika í stað einhæfs mats. Um leið opnast nýr vettvangur til að meta fullorðinsfræðslu og símenntun til eininga og greiða þannig leið starfsfólks í framhaldsskólanám, ef það kýs það. Til að kynna eigið gæðastarf og gildi símenntunar hefur Fræðslusetrið Starfsmennt gefið út möppu þar sem sagt er frá fyrirkomulagi þjónustunnar á hnitmiðaðan hátt. Þar má sjá eftir hvaða reglum setrið vinnur við uppsetningu og framkvæmd náms og hvers samstarfsaðilar um allt land mega vænta ef óskað er eftir þjónustu setursins. Sjá  útgáfuna  hér.


Nokkur námskeið framundan:

Verkefnastjórnun- vinnulag sem virkar

Færð þú oft hugmyndir sem þú nærð ekki að hrinda í framkvæmd? Eða dettur þér oft í hug hvernig bæta má verklag á vinnustað? Ef svo er þá gæti okkar 24 stunda nám í verkefnastjórnun hentað þér. Námskeiðið veitir hagnýta skemmri skírn í verkefnastjórnun þar sem þátttakendur vinna með hugmynd frá upphafi til enda með því að flokka hana og greina þannig að utanumhald verður auðveldara. Einnig er lögð áhersla á samskipti og mikilvægi góðs upplýsingaflæðis í stærri verkefnum. Námið hefst 28. okt. og er kennt hjá Endurmenntun Háskóla Íslands sem fjarkennir til Akureyrar, Egilsstaða, Ísafjarðar og á Selfoss.

Nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu

Mannauðsstjórnun er mikilvægt samstarfsverkefni allra á vinnustað sem ætlað er að stuðla að skilvirkri starfsemi og vellíðan í starfi. Starfsmennt  býður því upp á 32 stunda nám um helstu hugtök og aðferðir mannauðsstjórnunar í opinberum rekstri. Námið er ætlað millistjórnendum s.s. starfsmannastjórum, verkefnastjórum og fulltrúum í starfsmannahaldi, fræðslufulltrúum og öðrum þeim sem axlað hafa aukna ábyrgð í starfi.
Markmið námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauð stofnana og efla þannig starfsbrag. Gefin verður innsýn í kenningar, fjallað um stefnumótun, gildi og vinnustaðarmenningu. Farið verður í ráðningaferlið og kynntar ýmsar starfsþróunaraðferðir eins og mikilvægi hvatningar, hróss, starfsánægju og símenntunar. Námið hefst í Reykjavík 16. nóv. og hér má finna frekari upplýsingar og skrá sig til leiks.

Fjarkennt tölvunám um allt land- opið í allan vetur

Tölvunámskeið Starfsmenntar hafa notið mikilla vinsælda en þau er fjarkennd og því aðgengileg hvar sem er. Kennarinn veitir persónulega leiðsögn og stuðning en forkröfur eru lágmarksþekking í tölvuvinnslu. Skráningar standa nú yfir í Myndvinnslu og Publisher sem hefjast 3. nóv. og Word sem hefst 24. nóv. Einnig má skrá sig til 20. okt. í Excel og PowerPoint.  Hér er um 26 stunda námskeið að ræða sem verða opin í allan vetur. Þátttakendur ráða því á hvaða hraða þau eru tekin. Það verður því enginn fyrir vonbrigðum með þessi fjarkenndu tölvunámskeið ef marka má umsagnir nemenda hér.

Talsmaður lærdóms – nýtt og spennandi nám

Viltu verða talsmaður lærdóms á þínum vinnustað á tímum þegar menntun og þjálfun starfsfólks skiptir öllu máli? Ert þú sá eða sú sem getur greitt leið breytinga á vinnustað með opnum huga og hefur sýnt leikni í samskiptum? Ef þú ert námsfús og hefur áhuga á að sjá samstarfsfólk þitt blómstra í starfi þá er spennandi nám fyrir þig í boði snemma á næsta ári. Um er að ræða 72 stunda nám þar sem farið verður í mikilvægi uppbyggingar starfshæfni og persónulegrar leiðsagnar í síbreytilegu umhverfi. Lögð verður áhersla á getu til að takast á við breytingar og nema hvaða framtíðarhæfni þarf að þjálfa. Hlutverk talsmannsins er m.a. að tryggja að allir starfsmannahópar eigi aðgang að vinnutengdu námi við hæfi og koma þeim skilaboðum áleiðis. Talsmaðurinn er virkur starfsmaður símenntunar á meðal jafningja sem miðlar þekkingu og hvetur til náms. Í náminu verður farið í viðtalstækni og samningatækni ásamt aðferðum til að setja fram og kynna góðar hugmyndir. Einnig verður fjallað um margskonar stjórnunarþætti eins og þátttökustjórnun, þekkingarstjórnun og leiðtogahæfni ásamt umfjöllun um starfsfóstrakerfi og jafningjafræðslu. Námið hefst 8. febrúar og eru skráningar þegar hafnar enda um yfirgripsmikið nám að ræða eins og sjá má á námslýsingu hér.