Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf september 2009
Sí- og endurmenntun starfsfólks hefur fest sig í sessi sem sjálfsagður hluti vinnunnar og nú skiptir sköpum að fá tækifæri til að tileinka sér nýja þekkingu, viðhorf eða verklag til að mæta auknum og óvæntum kröfum. Við höfum öll eitthvað til málanna að leggja um þær breytingar sem eru að verða á umhverfi okkar og aðstæðum. Aukin menntun og starfstengd þjálfun leggur okkur þar lið. Starfsefling og persónuleg uppbygging má því ekki mæta afgangi í núverandi ástandi heldur á hún þvert á móti að fá forgang sem aldrei fyrr. Fræðslusetrið Starfsmennt getur mætt starfsmönnum og stjórnendum í þeirri vinnu og boðið margskonar úrræði til að efla vinnustaði og vilja til verka. Hér fyrir neðan má sjá hluta af þeirri fræðslu sem í boði er næstu vikurnar.
Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum – NÝTT
Öll höfum við skoðun á góðu og slæmu samstarfi og viljum að ákvarðanir um framvindu verkefna standist. Stjórnendur hafa oft í mörg horn að líta og þurfa því að geta reitt sig á gott samstarfsfólk. Þetta 52 stunda nám er ætlað samstarfsfólki stjórnenda sem þurfa að búa yfir fjölbreyttri hæfni til að auðvelda framgang verkefna og tryggja efndir. Námið hefst 5. okt. hjá Endurmenntun HÍ og er kennt tvisvar í viku til 16. nóv. Markmið námsins eru kenna þátttakendum hagnýtar stjórnunaraðferðir til að mæta auknum kröfum og hafa yfirsýn yfir verkefnastöðu. Lögð er áhersla á sveigjanleika, sjálfstæði og skipulagshæfni. Einnig verður veitt þjálfun í samskiptafræðum og leiðtogahæfni.
Námsþættir eru afar spennandi eins og sjá má hér fyrir neðan en skráning stendur nú yfir á heimsíðu Starfsmenntar. Að venju er námið félagsmönnum aðildarfélaganna að kostnaðarlausu en einnig opið öllum öðrum áhugasömum. Námsþættir eru: Skilvirkir fundir og viðburðastjórnun (4 kst), Uppsetning og röðun tækja og rafræn skipulagning (4 kst), Samskipti á vinnustað (4 kst), Leiðtogahæfni (4 kst), Líkamsbeiting og álagsstjórnun (4 kst), Þjónustustjórnun (8 kst), Gæðastjórnun (4 kst), Viðhorf og virkni í breytingum (4 kst), Hugkortagerð (e. mind manager 4 kst), Upplýsinga-og skjalastjórnun (8 kst), Drifkraftur í teymisvinnu (4 kst). Skráning og frekari upplýsingar má sjá hér.
....fleiri námskeið fyrir millistjórnendur og sérhæfða starfsmenn
Öll finnum við að vinnustaðurinn gerir aukna kröfur til okkar og við þurfum því alltaf annars lagið að endurskoða vinnulag okkar, læra nýja tækni eða tileinka okkur nýja færni. Hér er enginn undanskilinn og því fjöldi fjölbreyttra námskeiða í boði til að svara þeirri þörf.Verkefnastjórnun – vinnulag sem virkar NÝTT OG ENDURBÆTT
Í þessu 24 stunda námskeiði er hugmyndafræði og helstu tæki og tól verkefnastjórnunar kynnt en þessa vinnuaðferð þurfa sífellt fleiri að kunna einhver skil á. Námið er haldið hjá Endurmenntun HÍ og hefst 28. október og er fjarkennt til Akureyrar, Egilsstaða, Ísafjarðar og á Selfoss. Frekari upplýsingar um námið í Reykjavík má finna á skráningarsíðu hér.Nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu
Hér eru kynntar til sögunnar ýmsar aðferðir til að efla mannauð út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisins. Námið er ætlað starfsfólki starfsmannadeilda og þeirra sem axlað hafa aukna ábyrgð í starfi eða hafa mannaforráð. Fjallað er um kenningargrunninn, starfsmannastefnu, ráðningar, starfsþróunarhugtakið, stjórnunarstíla og vinnustaðamenningu. Námið hefst í Reykjavík 16. nóv. Nánari upplýsingar og skráning hér.Framrás 1 – Ég og starfið
Gott sjálfstraust og sjálfsþekking leggja grunninn að góðum samskiptum bæði í einkalífi og starfi. Í þessu 36 stunda námskeiði er fjallað um árangursrík samskipti, tilfinningagreind og hvernig draga má úr streitu og andlegu álagi. Reyndir sálfræðingar kenna og styðja þátttakendur í að skoða eigin hegðun. Námið hefst í Reykjavík 12. okt. og má sjá nánari upplýsingar á skráningarsíðu hér.Þjónustustjórnun
Viltu vita hvað einkennir góða þjónustu og hvernig sú slæma birtist? Og viltu kanna hvað þjónustustigið hefur með vellíðan á vinnustað að gera? Tvö námskeið um þetta mikilvæga viðfangsefni eru haldin á næstunni. Stutt 4 stunda fjarkennt nám hefst 2. nóv. fyrir starfsmenn um allt land og ítarlegra 20 stunda námskeið er haldið í Reykjavík 3. nóv.
Önnur spennandi námskeið sem nýtast öllum eru t.d. starfsmannasamtöl fyrir starfsmenn (4 kst)og fyrir stjórnendur (8 kst). Einnig er boðið upp á námskeiðin Starfsanda og samstarfsvilja (12 kst) í Reykjavík og hvernig takast má á við frammistöðukvíða (16 st).
Fjarkennt tölvunám um allt land
Tölvunámskeið Starfsmenntar hafa notið mikilla vinsælda en þau er fjarkennd gegnum netið og því aðgengileg hvar sem er. Kennari námskeiðsins veitir persónulega leiðsögn og stuðning en forkröfur er lágmarksþekking í tölvuvinnslu. Skráningar standa nú yfir og er boðið upp á 80 stunda grunnnám og 6 framhaldsnámskeið sem hvert um sig er 26 stundir í eftirtöldum forritum: Outlook, Excel, Power-Point, Publisher, myndvinnslu og Word. Það verður enginn fyrir vonbrigðum með þessi fjarkenndu tölvunámskeið ef marka má umsagnir nemenda hér.Ráðgjafi að láni til stofnana
Nám og þjónusta Starfsmenntar s.s. Ráðgjafi að láni miðar að því að efla starfsfólk í að takast á við síbreytilegt umhverfi og aðstoða stofnanir við að koma þessum mikilvæga málaflokki í góðan farveg. Tilgangurinn er að gera stofnanir ríkisins að enn betri vinnustöðum og efla hæfni og líðan starfsfólks sem vinna mikilsverð störf á umbrotatímum. Ráðgjafi að láni er öflugt úrræði sem stofnanir geta kallað eftir til að vinna að margvíslegri mannauðseflingu á vinnustað. Sjá auglýsingu hér og útgáfu um verkefnið.