Veffréttabréf til leiðbeinenda og fræðslufulltrúa

Kennslufræðinámskeið fyrir leiðbeinendur

Fræðslusetrið Starfsmennt býður öllum þeim sem hafa leiðbeint eða  kennt á námskeiðum setursins upp á stutt nám í kennslufræðum innan fullorðinsfræðslu.  Annarsvegar er um að ræða  20 stunda nám í kennslufræðum og hinsvegar 6 stunda nám um rafrænt námsumhverfi. Hluti námskeiðanna er kenndur yfir netið en þau eru haldin í Reykjavík. Markmiðið er að styrkja þátttakendur sem leiðbeinendur í námi fyrir fullorðna og skerpa á kennsluaðferðum og rafrænum nýjungum á netinu. Kennarar eru báðir lektorar innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands eða  þau Hróbjartur Árnason sem kennir Árangursrík kennsla og Salvör K. Gissuradóttir sem kennir um Nýtt námsumhverfi á netinu.

Á námskeiðunum er ætlunin að hjálpa leiðbeinendum að auka færni sína í að skipuleggja og halda námskeið fyrir fullorðna. Farið er í hagnýtar aðferðir sem nýtast vel við að hjálpa fullorðnum námsmönnum að læra. Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn og alla þá sem kennt hafa eða sinnt ráðgjafastörfum fyrir Starfsmennt og eru þeir sérstaklega hvattir til að nýta sér þetta einstæða tækifæri til að verða enn betri fagmenn. Námið er einnig opið fræðslustjórum og verkefnastjórum sem halda utan um nám á vinnustað.

Árangursrík kennsla (20 kst)

Hér er um hagnýtt námskeið í kennslufræði fullorðinna að ræða þar sem leiðbeinendum er kennt að kenna samstarfsfólki sínu og jafningjum. Lögð er áhersla á sérstöðu kennslu fyrir fullorðinna en reynslan hefur sýnt að það er mikill munur á því að kenna fullorðnum námsmönnum og „venjulegum“ skólanemum.  Sjónarhorn, viðhorf og reynsla fullorðinna námsmanna er sérstök og er árangur í námi þeirra að miklu leyti undir því kominn að leiðbeinandi náms geri sér grein fyrir sérstöðu þeirra og axli ábyrgð á aðstæðunum.  Námskeiðið fer fram með stuttum fyrirlestrum, almennum umræðum, einstaklingsvinnu og hópvinnu ásamt stuðningi og samvinnu á netinu á milli funda.
Námskeiðið hentar öllum þeim sem koma að fræðslu fullorðinna og símenntun, einkum þeim sem kenna af og til á námskeiðum á vinnustað sínum.
Kennt er í Reykjavík  17. feb., 24. feb., 10. mars og 5. maí kl. 15-18 og má skrá sig til þátttöku HÉR.

Nýtt námsumhverfi á netinu (6 kst)

Þróunin í vefheimum er ör og á fólk fullt í fangi með að fylgjast með og tileinka sér nýja tækni. Á vefnum koma margar nýjungar fram sem ýmist missa flugið eða festa sig í sessi. Samhæft og opið netumhverfi náms byggist hratt upp og býður upp á fjölbreyttari kennsluhætti, matsaðferðir og gerð námsgagna en þekkst hefur. Nú gefst bæði kennurum og leiðbeinendum Starfsmenntar ásamt fræðslufulltrúum stofnana tækifæri til að skyggnast inn í þennan heim og taka fyrstu skrefin. Námskeiðið er 6 stunda langt og er hluti af því verklegar æfingar í tölvuveri og í fjarnámi. Umfjöllun þessa námskeiðs um rafrænt námsumhverfi varðar alla þá sem koma að menntun og fræðslu starfsfólks þar sem vinnuvenjur í miðlun efnis og verklag í kennslu er að taka stórstígum breytingum.
Kennt er í Reykjavík  2. og 3. apríl kl. 16 -18 og geta þátttakendur skráð sig HÉR.

Viltu fara í viku námsferð til Evrópu?

Starfsmennt hefur fengið einstaklingsstyrki frá menntaáætlun Evrópusambandsins til að senda 23 fræðslufulltrúa í viku kynnisferðir erlendis. Markmiðið með námsferðunum er að skoða nýjungar í símenntun og þjálfun ríkisstarfsmanna og miðla þeirri þekkingu áfram. Farið verður í þessar námsferðir fram á mitt þetta ár og er nokkrum styrkjum enn óráðstafað. Áhugasamir geta snúið sér beint til Starfsmenntar en viðbúið er að heimsóknirnar örvi umræðu um metnaðarfullt fyrirkomulag á sviði símenntunar og greiði leið nýrra hugmynda. Nánari upplýsingar og skilyrði fyrir styrkveitingu má sjá HÉR.