Námskeið framundan



Ferða- og dvalarkostnaður

Þeir þátttakendur sem þurfa að sækja námskeið um langan veg, eiga rétt á stuðningi við ferða- og dvalarkostnað. Stuðningur þessi fer eftir reglum Starfsmenntar hverju sinni. Þegar um akstur er að ræða er miðað við einstaklingsbundinn rétt sem nemur 1/4 af aksturgjaldi eins og það er í samningum hverju sinni. Þegar fleiri en einn þátttakandi koma saman í bíl er gert ráð fyrir þeim möguleika að farþegar framselji rétt sinn til eiganda bíls, enda er stuðningurinn ætlaður til að standa undir kostnaði við farartækið. Ef þátttakendur koma langt að og möguleiki er á flugi, þá miðast stuðningurinn við þann ferðamáta sem ódýrari er.

Þegar um gistingu er að ræða þá miðast stuðningur við ódýra gistingu og nemur styrkur 5.400.-kr. pr. nótt á hóteli eða gistiheimili gegn framvísun kvittunar (á nafni þátttakanda) eða ef þátttakendur sjá um sína gistingu sjálfir þá geta þeir fengið stuðning sem nemur 2.700.- kr. á hverja gistinótt.

Þegar þátttakendur þurfa að fara um Hvalfjarðargöng þá greiðist styrkur 1040.- kr. per ferð (fram og tilbaka), nema ef um fleiri en 10 ferðir er ræða á eitt námskeið þá greiðast 690 - kr. per ferð (fram og tilbaka). Þá er hægt að fá niðurgreidda miða í göngin á skrifstofu SFR, Grettisgötu 89.

Stuðningur þessi á einungis við í þeim tilfellum þegar vegalengdin milli þeirra bæjarfélaga sem um ræðir er  meira en 12 km. frá ystu mörkum þeirra. Vegalengdin sem notuð er við útreikninga akstursstuðnings miðar við uppgefna vegalengd eins og Vegagerðin gefur hana út.
Ekki er greiddur styrkur fyrir ferðir á höfuðborgarsvæðinu.

Til að sækja umsóknareyðublað smellið þá hér.





Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070