Námskeið framundan



Félag íslenskra félagsliða

Félag íslenskra félagsliða og Fræðslusetrið Starfsmennt hafa sett upp 5 stutt námskeið sem ætluð eru félagsliðum um allt land veturinn 2011-2012. Um er að ræða sjálfstæð námskeið sem félagsliðar geta valið úr eftir eigin áhugasviði og starfsvettvangi en flest námskeiðin byggja á upprifjun á fyrra námi og kynningum á þróun þjónustunnar, hérlendis sem og erlendis. Skráning fer fram hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt og er öllum félagsmönnum sveitarfélaga að kostnaðarlausu en Félag íslenskra félagsliða eða fræðslusjóðir eins og Sveitamennt og Ríkismennt kosta þátttöku sinna félagsmanna. Hvert námskeið verður kennt tvisvar á höfuðborgarsvæðinu og fjarkennt út á land. Námskeiðin verða haldin haustönn 2011 og vorönn 2012.  Fyrsta námskeiðið hefst í desember 2011, kennt verður  frá kl. 17-20.

Námskeið framundan vor - 2012

Námskeið

Tími

Kennari

Vor 2012

Þjónusta við fatlað fólk á heimilum sínum (Hægt að velja um 2 dagsetn. í Rvk.)

17/18. jan. kl. 17-20

Þór G. Þórarinsson

Starfsendurhæfing og atvinna með stuðningi

14./15. febrúar kl. 17-20 

Salome A. Þórisdóttir

Geðsjúkdómar

21/22. mars

Salbjörg Bjarnadóttir

Aldraðir og lífsgæði (hægt að velja um 2 dagsetn. í Rvk.)

11/12. apr. kl. 17-20

Hlíf Guðmundsdóttir

Námskeiðið Starfsendurhæfing og atvinna með stuðningi verður einnig kennt, í fjarfundi, á Ísafirði, Akureyri, Húsavík og Sauðárkróki þann 14. feb. kl. 17-20. og 15. feb. á Selfossi, Höfn í Hornafirði, Reykjanesbæ, Egilsstöðum og Borgarnesi.
Það hefur verið opnað fyrir skráningar á fjarfundastaði um allt land.  Vinsamlega hafið samband við skrifstofu Starfsmenntar í síma: 5500060 fyrir skráningar.

Sjá nánar um hvert námskeið hér



Nafn námskeiðsStaðsetning
-
Félag íslenskra félagsliða - Starfsendurhæfing, atvinna með stuðningi - EgilsstöðumEgilsstöðum
Félag íslenskra félagsliða - Starfsendurhæfing, atvinna með stuðningi - Höfn í HornafirðiHöfn í Hornafirði
Félag íslenskra félagsliða - Starfsendurhæfing, atvinna með stuðningi - BorgarnesBorgarnes
Félag íslenskra félagsliða - Starfsendurhæfing, atvinna með stuðningi - ReykjanesbærReykjanesbær
Félag íslenskra félagsliða - Starfsendurhæfing, atvinna með stuðningi - SauðárkrókurSauðárkrókur
Félag íslenskra félagsliða - Starfsendurhæfing, atvinna með stuðningi - ÍsafjörðurÍsafjörður
Félag íslenskra félagsliða - Starfsendurhæfing, atvinna með stuðningi - HúsavíkHúsavík
Félag íslenskra félagsliða - Starfsendurhæfing, atvinna með stuðningi - SelfossSelfoss
Félag íslenskra félagsliða - Starfsendurhæfing, atvinna með stuðningi - AkureyriAkureyri
Félag íslenskra félagsliða - Starfsendurhæfing, atvinna með stuðningiHöfuðborgarsvæðið


* Námskeiðin eru án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Fræðslusetursins Starfsmenntar


Fræðslusetrið Starfsmennt
Ofanleiti 2 · 103 Reykjavík · Sími 550 0060· smennt@smennt.is · kt. 441001-2070