Námskeið framundan



Félagsliðar - viðbótarnám

Starfsmennt og Borgarholtsskóli hafa hannað viðbótarnám fyrir félagsliða sem ætlað er að dýpka grunnþekkingu, efla fagmennsku og kynna nýjar áherslur í þjónustunni. Viðbótarnáminu er ætlað að koma til móts við auknar kröfur sem gerðar eru til starfa félagsliða. Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar á þjónustu við þá hópa þjóðfélagsins sem þurfa sértæka aðstoð og kröfur til velferðarþjónustu hafa aukist til muna. Þá er enn frekari vöxtur innan félags- og heilbrigðisgreina fyrirsjáanlegur þar sem stórir árgangar nálgast nú eftirlaunaaldur auk þess sem félagslegar afleiðingar efnahagskreppunnar eru þegar byrjaðar að segja til sín. Við slíkar aðstæður er hætt við því að þeir hópar sem þegar standa höllum fæti í samfélaginu verði undir, óvirkir og glími við depurð, vanmátt og aðra vanlíðan.

Félagsliðar gegna mikilvægu hlutverki í félagslegri endurhæfingu þessara þjóðfélagshópa. Starfsvettvangur þeirra spannar vítt svið félagslegrar endurhæfingar og virkniúrræða fyrir þá sem vegna félagslegra aðstæðna, veikinda, öldrunar, þroskaraskana eða hvers konar áfalla, þurfa á sérstökum stuðningi að halda. Til þess að búa félagsliða enn betur undir þau vandasömu verkefni sem framundan eru er mikilvægt að efla faglega þekkingu þeirra og menntun.

Námið er alls 36 einingar og skiptist í 11 áfanga. Þrír 3ja eininga áfangar verði kenndir á haustönn 2012 í dreifnámi hjá Borgarholtsskóla. Í dreifnámi fer námið að stærstum hluta fram á netinu, með vikulegum umræðutímum, klukkutíma í senn í hverju fagi ásamt þrem staðbundnum lotum á önn þar sem kennsla fer fram í Borgarholtsskóla.

Hér má sjá námsskipulagnámskrá og umsóknareyðublað fyrir nám á haustönn 2012

Umsóknarfrestur er til 1. júní.

ÁFANGAR
Sérgreinar Áfangaheiti
Fatlanir, viðhorf, þjónusta H-2012 FVÞ 103
Félagsleg virknin og starfsendurhæfing FVS 103
Félagssálfræði SÁL 353
Geðheilbrigði og samfélagið GOS 103
Hagnýt siðfræði SIÐ 213
Lokaverkefni LOK 103
Óhefðbundin samskipti ÓHS 103
Sérhæfð upplýsingatækni ÓHS 103

Stjórn og hagur H-2012

STH 103
Vinnustaðanám STÞ 2016

Öldrun og lífsgæði H-2012

ÖOL 103

Starfsmennt greiðir eininga- og innritunargjöld fyrir félagsmenn aðildarfélaganna en væntanlegum þátttakendum er bent á að snúa sér beint til kennslustjóra námsins í síma 866 9092 eða thorkatla@bhs.is.

Starfsmennt veitir einnig upplýsingar um námið.



Nafn námskeiðsStaðsetning
-
Félag íslenskra félagsliða-Aldraðir og lífsgæði - EgilsstaðirEgilsstaðir


* Námskeiðin eru án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Fræðslusetursins Starfsmenntar


Fræðslusetrið Starfsmennt
Ofanleiti 2 · 103 Reykjavík · Sími 550 0060· smennt@smennt.is · kt. 441001-2070