Námsleiðin Hæfni er hönnuð í samstarfi Fræðslusetursins Starfsmenntar, skrifstofu mannauðsmála Landspítala háskólasjúkrahúss og fulltrúa frá fagfélagi heilbrigðisritara. Námsleiðin er liður í að móta heildstætt námskerfi fyrir heilbrigðisritara út frá þörfum þeirra fyrir starfstengda fræðslu. Þá er einnig verið að bregðast við breytingum á aðalnámsskrá náms heilbrigðisritara frá 2008 með því að fræða þá sem þegar hafa lokið námi um breyttar áherslur og nýja námsþætti. Námsleiðinni er skipt í námslotur sem hver um sig er um 20-24 stundir sem verður að taka í heild sinni.