Námskeið framundan



Heilsa

Heilsa er starfstengd námsleið sem Starfsmennt þróaði í samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni og lýtur fræðslan að riturum og skrifstofustjórum innan stofnananna. Markmið fræðslunnar er að styrkja ritara og skrifstofufólk í störfum sínum með aukinni þekkingu og færni. Þátttakendur velja þá námsþætti sem henta þeim best í starfi og eru þeir settir upp út frá eftirspurn stofnana í samvinnu við fræðsluaðila út um allt land.

Sjá námskrá fyrir móttökuritara

Sjá námskrá fyrir skrifstofustjóra

Námskeið eru sett upp í samráði við heilbrigðisstofnanir og heilsugæslustöðvar um land allt.





Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070