Námskeið framundan



Járnsíða

Járnsíða er skóli fyrir starfsmenn sýslumannsembættanna út um allt land og er hluti af starfsþróunarkerfi þeirra. Markmið Járnsíðu er meðal annars að auka færni starfsmanna með kennslu á námsþáttum er varða dagleg störf þeirra. Jafnframt er hugsunin sú að sambærileg þjálfun starfsmanna leiði til samhæfingar á vinnubrögðum milli embætta, auknum tengslum og þekkingu milli þeirra. Járnsíðu er ætlað að stuðla að aukinni hæfni, skilvirkni og starfsánægju starfsmanna embættanna og er nám hverrar annar ákveðið í samráði við stýrihóp verkefnisins sem í eiga sæti auk Starfsmenntar, þrír sýslumenn og þrír starfsmenn. Nýlega var tekið upp það fyrirkomulag að bjóða upp á 3-4 lotur á önn á höfuðborgarsvæðinu sem samanstanda af sjálfstæðum námskeiðum sem kennd eru yfir tvo samliggjandi daga. Járnsíða er 184 stunda námsleið sem samanstendur af 31 námskeiði. Starfsmenn geta því valið alla lotuna eða þann hluta sem hentar þeirra starfsþróun og fræðsluþörfum. Starfsmennt greiðir styrki til ferða og dvalarkostnaðar skv. reglum setursins. Embættin geta einnig óskað eftir námskeiðum hvenær sem þeim hentar best.

Fræðslusetrið Starfsmennt hlaut Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs 2008 fyrir samstarf innan Járnsíðu við Sýslumannafélag Íslands. Hér má sjá stutta samantekt á áhersluatriðum samstarfsins og glærukynningu.

Allar nánari upplýsingar um upphaf og þróun Járnsíðu sem og um 31 námsþætti hennar má finna í námsskránni hér.

Námskeið vorannar 2012

Mælst er til að stofnanir kalli eftir fræðslu eða ráðgjöf þegar best hentar og að starfsmenn nýti sér fjölbreytt framboð þverfaglegra námskeiða og fjarkennt tölvunám.

Fjarkennd tölvunámskeið

Almenn námskeið



Nafn námskeiðsStaðsetning
-
Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningumHöfuðborgarsvæðið
Talsmaður breytinga - NýttHöfuðborgarsvæðið


* Námskeiðin eru án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Fræðslusetursins Starfsmenntar


Fræðslusetrið Starfsmennt
Ofanleiti 2 · 103 Reykjavík · Sími 550 0060· smennt@smennt.is · kt. 441001-2070