Fræðslusetrið Starfsmennt og Keflavíkurflugvöllur hafa í samstarfi ákveðið að halda nokkur námskeið fyrir starfsmenn flugvallarins.
Námskeiðin lúta að ýmsum þáttum er varða þjónustu og viðmót til viðskiptavina, efla sjálfstraust, hjálpa starfsmönnum að takast á við breytingar sem verða í starfi og hvernig starfsmenn geta undirbúið sig fyrir starfsmannaviðtöl.
Námskeiðin Að takast á við erfiða viðskiptavini og Sjálfstraust og sjálfsöryggi verða haldin á flugvellinum, í fjögur skipti hvort námskeið.
Starfsmenn flugvallarins geta tekið þátt í námskeiðinu Þjónustustjórnun sem er fjarkennt á tímabilinu 20. sept. - 20. okt.
Starfsmenn er einnig hvattir til að kynna sér fjölbreytt úrval almennra þverfaglegra námskeiða og Tölvunámskeiðin sem haldin verða á haustönn 2010.
Hægt er að fá nánari upplýsingar og skrá sig með því að smella á viðeigandi námskeið hér neðar á síðunni.
| Nafn námskeiðs | Staðsetning |
|---|---|
- | |
| Þjónustustjórnun-Fjarkennt | Allt landið |