Launaskólinn er nýtt nám fyrir launafulltrúa og þá sem koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og bæ. Námskeiðin henta einnig stjórnendum sem vilja efla þekkingu sína á þessu sviði. Námsleiðin var hönnuð í samstarfi fjármálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga á vettvangi Fræðslusetursins Starfsmenntar. Starf launafulltrúans krefst mikillar þekkingar á inntaki kjarasamninga og yfirgripsmiklu regluverki opinbera vinnumarkaðarins. Launafulltrúar gegna ábyrgðarmiklu starfi þar sem lítið má út af bregða vegna hagsmuna launþega um að afgreiðsla launa og ávinnsla réttinda sé framkvæmd á réttan hátt. Því er mikilvægt að þeir sem vinna við launavinnslu og á starfsmannadeildum þekki sem best umhverfið og lagarammann og hafi vettvang til að deila vinnulagi og ræða verkferla og túlkanir ákvæða. Nám fyrir launafulltrúa svarar einnig aðkallandi fræðsluþörf fyrir grunnmenntun á þessu sviði þar sem sérfræðiþekking þátttakenda er efld en hingað til hefur þjálfunin að mestu farið fram á vinnustað.
Námsleiðin er alls 84 stundir og er því skipt upp í 4 þemu sem kennd verða veturinn 2011 - 2012. Hvert þema samanstendur af nokkrum sjálfstæðum námskeiðum og þurfa þátttakendur að skrá sig á vef Starfsmenntar í hvert námskeið sem þeir hyggjast taka. Þannig er komið til móts við mismunandi fræðsluþarfir reyndra starfsmanna en þátttakendur eru þó hvattir til að taka öll námskeiðin. Kennt er í Reykjavík hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og í BSRB húsinu, Grettisgötu 89.
|
|
|
|
|
9. - 10. feb. |
Reykjavík |
Þema III – Fjarvera frá vinnu - launaðar fjarvistir |
|
6. – 7. feb. |
Egilsstaðir |
Þema II – Vinnutími og afgreiðsla launa - grunnur |
|
13. feb.
|
Egilsstaði |
Þema II – Vaktavinna, bakvaktir og afbrigðilegur vinnutími - Valnámskeið |
|
14. feb.
|
Egilsstaði |
Þema II – Starfsfólk skóla – sérstakir launaútreikningar - valnámskeið |
|
20. – 22. feb. |
Ísafjörður |
Þema I – Opinber vinnumarkaður, ráðning, starfslok og starfsskyldur |
|
5. mars
8. mars
13. mars |
Akureyri |
Þema III –Fjarvera frá vinnu -launaðar fjarvistir |
|
11.-13. apríl |
Reykjavík |
Þema IV –Mannauður og hæfni |
Skráning á námskeið vorannar Launaskólans sjá neðst á síðu.
Hér má sjá námskrá Launaskólans.