Launaskólinn er nýtt nám fyrir launafulltrúa og þá sem koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og bæ. Námskeiðin henta einnig stjórnendum sem vilja efla þekkingu sína á þessu sviði. Námsleiðin var hönnuð í samstarfi fjármálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga á vettvangi Fræðslusetursins Starfsmenntar. Starf launafulltrúans krefst mikillar þekkingar á inntaki kjarasamninga og yfirgripsmiklu regluverki opinbera vinnumarkaðarins. Launafulltrúar gegna ábyrgðarmiklu starfi þar sem lítið má út af bregða vegna hagsmuna launþega um að afgreiðsla launa og ávinnsla réttinda sé framkvæmd á réttan hátt. Því er mikilvægt að þeir sem vinna við launavinnslu og á starfsmannadeildum þekki sem best umhverfið og lagarammann og hafi vettvang til að deila vinnulagi og ræða verkferla og túlkanir ákvæða. Nám fyrir launafulltrúa svarar einnig aðkallandi fræðsluþörf fyrir grunnmenntun á þessu sviði þar sem sérfræðiþekking þátttakenda er efld en hingað til hefur þjálfunin að mestu farið fram á vinnustað.
Námsleiðin er alls 84 stundir og er því skipt upp í 4 þemu sem kennd verða veturinn 2010 - 2011. Hvert þema samanstendur af nokkrum sjálfstæðum námskeiðum og þurfa þátttakendur að skrá sig á vef Starfsmenntar í hvert námskeið sem þeir hyggjast taka. Þannig er komið til móts við mismunandi fræðsluþarfir reyndra starfsmanna en þátttakendur eru þó hvattir til að taka öll námskeiðin. Kennt er í Reykjavík hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og í BSRB húsinu, Grettisgötu 89. Á Ísafirði er kennt hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Námskeið haustannar 2010 - Skráning hafin
Námskeið haust 2010
Þema I verður kennt í Reykjavík og á Ísafirði í september.
Þema II verður kennt í Reykjavík í október og nóvember.
Þema III verður kennt í Reykjavík í nóvember.
Þema IV verður kennt í Reykjavík í desember og janúar 2011.
Hér má sjá námsskrá Launaskólans.
|
Haldið á Ísafirði hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Námskeið eru án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Fræðslusetursins Starfsmenntar en kosta samtals 17.600 fyrir aðra. Fjármálaráðuneytið hefur greitt fyrir lága verðinu til að gefa sem flestum starfsmönnum færi á að sækja þessi námskeið.
|
|
Skráning er hafin á haustnámskeiðin 2010. Á haustönninni 2010 verður boðið upp á Þema I, Þema II, Þema III og Þema IV.
Námskeiðin eru án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Fræðslusetursins Starfsmenntar. Fjármálaráðuneytið hefur greitt fyrir lága verðinu til að gefa sem flestum starfsmönnum færi á að sækja þessi námskeið.
|