Námskeið framundan



Stoð

Tilgangur námsleiðarinnar er að bregðast við vaxandi þörf á starfstengdu námi fyrir stuðningsfulltrúa og að koma til móts við ákvæði í stofnanasamningi um símenntun. STOÐ er viðbót við núverandi námsframboð svo sem grunn- og framhaldsnám fyrir stuðningsfulltrúa og  stendur því samhliða sem annarskonar nám sem eflir fólk í starfi. Námskeiðið er  40 stundir alls og hentar vel bæði nýliðum í starfi en einnig  þeim sem hafa starfað lengi á sviðinu en vilja rifja upp aðferðir og skerpa sýn á fagmennsku. Meginmarkmið námsins er að auka þekkingu og færni þeirra starfsmanna sem starfa í þjónustu við fólk með fatlanir á Íslandi. Þannig er jafnframt stuðlað að auknum lífsgæðum fólks með fatlanir svo sem líkamleg, efnisleg, félagsleg og tilfinningaleg.

Aðallega er lögð áhersla á:

  • Að auka faglega vitund og skilning þeirra starfsmanna sem starfa við að veita fólki með fötlun þjónustu.
  • Að styrkja jákvætt viðmót og viðhorf þeirra starfsmanna sem veita fólki sem býr við fötlun þjónustu.
  • Að auka almenna færni þeirra starfsmanna sem veita fólki sem býr við fötlun þjónustu.
  • Að þjónustu við fólk með fatlanir hafi á að skipa sem hæfustu starfsfólki, sem er í stakk búið til að takast á við stuðningsstarf við fatlaða einstaklinga.

Smellið á námskrá til að kynna ykkur námsleiðina frekar.

Námskrá



Nafn námskeiðsStaðsetning
-
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi-Áhrif sjálfsmats á gæði samskiptaAusturland
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum - Samskipti á kvennavinnustaðÍsafjörður


* Námskeiðin eru án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Fræðslusetursins Starfsmenntar



Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070